Talaði 64 prósent tímans og greip fram í yfir tuttugu sinnum

Heim­ildin skrif­aði upp umræður Snorra Mássonar, þing­manns Mið­flokks­ins, og Þor­bjargar Þor­valds­dóttur, sam­skipta- og kynn­ing­ar­stjóra Sam­tak­anna 78. Snorri tal­aði mun meira en við­mæl­andi sinn og þátt­ar­stjórn­andi til sam­ans, en kvartar á sama tíma yfir þöggun sem hann er beittur.

Talaði 64 prósent tímans og greip fram í yfir tuttugu sinnum
Snorri Másson Þing­maður Mið­flokks­ins leggur áherslu á að kynin séu tvö þegar rætt er um trans­fólk. Því hefur aldrei verið mót­mælt af trans­fólki, heldur að kyn­vit­und þeirra sam­ræm­ist ekki þeim lík­ama sem það fædd­ist í. Mynd: Golli

Snorri Másson, þing­maður Mið­flokks­ins, tal­aði um 64 pró­sent tím­ans þegar hann mætti Þor­björgu Þor­valds­dóttur, sam­skipta- og kynn­ing­ar­stjóra Sam­tak­anna 78, í umræðum um trans fólk sem Kastljós sýndi fyrr í vik­unni. Þorbjörg tal­aði um 30 pró­sent tím­ans og þátta­stjórn­andi um 6 pró­sent. Snorri fékk því drjúgan tíma til þess að koma sjón­ar­miðum sínum á fram­færi í um sautján mín­útna löngum þætt­inum, á sama tíma og sjón­ar­mið Þor­bjargar fengu síður tæki­færi til að skila sér inn í stofur lands­manna.

36 prósent þöggun

All­nokkuð hefur verið rætt um það sem Snorri sagði í þætt­inum. Vakti Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, sam­flokks­maður hans, athygli á því í sér­stakri yfir­lýs­ingu þar sem hann sagði meðal ann­ars að Snorri hefði verið beittur þögg­un­ar­til­burðum. Það sagði hann þrátt fyrir að Snorri tal­aði lengur en við­mæl­andi og þátta­stjórn­andi sam­an­lagt.

Meðal ann­ars sagði Sig­mundur: „Kald­hæðn­is­legt er að í hinum ofsa­fengnu við­brögðum raun­ger­ist einmitt það sem Snorri reyndi að …

Kjósa
38
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Snorra tókst í þessu eintali sínu að ganga rækilega fram af a.m.k. flestu fólki.
    6
  • Ingimundur Stefánsson skrifaði
    Tvennt opinberast við lesturinn:
    1. Viðtalsþættir í beinni lítil eða engin upplýsing fyrir almenning. Þeir fremur snuð upp í lýðinn til að totta og smjatta á, hneykslast á, svo lýðurinn beini ekki athyglinni að hagsmunum sínum. Vandaðir og fáir fréttaskýringarþættir í hverjum mánuði eins og var skila miklu meiri upplýsingu, nauðsynlegu fyrir upplýst lýðræði. Gjörbylta má tíðni fréttatíma, fréttaskýringaþátta og fréttabirtinga RÚV þannig að unnið sé í samræmi við 3. grein laga um RÚV, 7. lið s.s. um birtingu fjölbreyttra viðhorfa, gagnstæðra skoðana, og gagnreyndra upplýsinga. Minna er meira.

    2. Mikilvægi réttar fólks til að tjá skoðanir sínar, hvort sem fram sett rök styðja þær eða ekki, er nokkuð sem Heimildin fjallar lítt eða ekki um. Húnmætti greina frá hvað fræðimenn s.s. Jón Gunnar Ólafsson nýdoktor í fjölmiðlafræðum, segja um nauðsyn þess að allar raddir geti fengið að tjá sig. Og fjalla um hvað gerist þegar fólki er meinað tjá skoðun sína, eða hafa sinn skilning á hlutunum, hversu rangir eða réttir þeir kunni að vera.
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
6
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár