Finnskur dómstóll dæmir nígerískan aðskilnaðarsinna í fangelsi

Simon Ekpa var fund­inn sekur um að hafa útvegað hryðju­verka­sam­tökum vopn og hvatt fylgj­endur sína til glæpa. Hann hefur verið virkur í starfi Íhalds­flokks­ins í Finn­landi.

Finnskur dómstóll dæmir nígerískan aðskilnaðarsinna í fangelsi
Glæp­irnir voru framdir í finnsku borg­inni Lahti á árunum 2021 til 2024. Ekpa er fyrr­ver­andi full­trúi Íhalds­flokks­ins í Lahti. Mynd: Wikipedia

Finnskur dóm­stóll hefur dæmt níger­ískan aðskiln­að­ar­sinna til sex ára fang­els­is­vistar fyrir hryðju­verka­brot eftir að hann barð­ist fyrir sjálf­stæði Biafra-hér­aðs með „ólög­mætum leiðum“.

Maðurinn heitir Simon Ekpa, er 40 ára gam­all og með tvö­falt rík­is­fang; bæði í Finn­landi og Nígeríu. Hann var fund­inn sekur um að hafa útvegað hópum aðskiln­að­ar­sinna skot­vopn og sprengi­efni og hvatt fylg­is­menn sína til að fremja glæpi.

Lykilmaður

Samkvæmt dómi hér­aðs­dóms Päijät-Häme var hann lyk­il­maður í sam­tökum og hópum sem börð­ust fyrir sjálf­stæði suð­aust­ur­hluta Nígeríu, þar sem borg­ara­styrj­öldin 1967 til 1970 kost­aði hund­ruð þús­unda manns­lífa.

Í yfir­lýs­ingu sagði dóm­stóll­inn að Ekpa hefði verið sak­felldur fyrir að „taka þátt í starf­semi hryðju­verka­sam­taka og opin­bera hvatn­ingu til að fremja hryðju­verk“.

Nýtti sér samfélagsmiðla

Hann var jafn­framt fund­inn sekur um stór­felld skatta­svik. Glæp­irnir voru framdir í finnsku borg­inni Lahti á árunum 2021 til 2024. „Hann not­aði sam­fé­lags­miðla til að afla sér póli­tískra áhrifa og nýtti ringul­reið innan aðskiln­að­ar­hreyf­ingar í Nígeríu til að taka sér veiga­mikið hlut­verk,“ sagði í dóm­inum.

Hann tók þátt í skipu­lagn­ingu starf­semi hreyf­ing­ar­innar, meðal ann­ars stofnun vopn­aðra hópa „sem hér­aðs­dóm­ur­inn taldi vera hryðju­verka­sam­tök“.

„Ekpa útveg­aði hóp­unum vopn, sprengi­efni og skot­færi í gegnum tengsla­net sitt. Hann var einnig tal­inn hafa hvatt og tælt fylgj­endur sína á sam­fé­lags­miðl­inum X til að fremja glæpi í Nígeríu,“ sagði enn­fremur.

Neitaði sök

Ekpa neit­aði sök og hélt því fram að hann hefði ein­ungis miðlað skila­boðum stjórn­valda og upp­lýs­ingum um atburði í hér­að­inu. 

Hann hefur ítrekað ratað í stað­reynda­kann­anir AFP á und­an­förnum árum vegna rangra eða vill­andi full­yrð­inga sem hann hefur sett fram í tengslum við sjálf­stæð­is­bar­áttu Biafra-hreyf­ing­ar­innar í Nígeríu.

Ekpa hefur búið í Lahti frá árinu 2007 ásamt fjöl­skyldu sinni. Hann lærði finnsku, fékk finnskan rík­is­borg­ara­rétt og gegndi her­þjón­ustu í finnska hernum árið 2013 í Häme-her­deild­inni í Hennala. Hann er einnig skráður í vara­lið finnska hers­ins.

Hann hóf afskipti af finnskum stjórn­málum árið 2012 og hefur verið virkur síðan. Hann bauð sig fram fyrir Íhalds­flokk­inn Kan­sallinen Kokoomus í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2017 og aftur í svæð­is­kosn­ing­unum 2022.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár