Stóra, stærra og stærsta kókaínmálið

Hér er farið yfir sögu „stórra kóka­ín­mála“ sem hafa komið upp á Íslandi. Stærðir mál­anna taka sífelldum breyt­ingum, en nafn­giftin helst sú sama.

„Mörg fíkni­efna­mál hafa fengið nafnið Stóra fíkni­efna­málið í gegnum árin. Málið er að inn­flutn­ingur fíkni­efna hefur orðið djarfari með hverju árinu sem líður,“ skrif­aði blaða­maður DV þann 26. jan­úar 2002. Síðan þessi orð voru rituð hefur sann­leiks­gildi þeirra ekk­ert minnkað. Æ fleiri og alvar­legri fíkni­efna­mál koma upp en frum­leiki frétta­manna í að finna þeim nöfn hefur lítið auk­ist.

Þessi til­hneig­ing er einkum áber­andi í málum sem tengj­ast smygli á kóka­íni. Á síð­ustu ára­tugum hafa fjöl­mörg mál komið upp á Íslandi og fengið nafnið „stóra kóka­ín­málið“. Þrátt fyrir að brotin verði sífellt stærri og alvar­legri tekur nafnið engum breyt­ingum.

Stóru kókaínmálin 1988 og 1992

Að því er blaða­maður kemst næst átti hið upp­runa­lega stóra kóka­ín­mál sér stað árið 1988 þegar 970 grömmum af kóka­íni var smyglað til Íslands frá Band­ríkj­unum. Það var gert með því að fela efnin inni í vara­dekki bíls sem fluttur var til lands­ins og komst um helm­ingur …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár