Ísland nær ekki markmiðum um samdrátt í losun með núverandi loftslagsaðgerðum

Ísland nær hvorki mark­miði um 41 pró­sent sam­drátt í sam­fé­lags­losun árið 2030 né skuld­bind­ingum um sam­drátt í losun frá land­notkun með núver­andi lofts­lags­að­gerðum. Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda jókst milli áranna 2023 og 2024 bæði hvað varðar sam­fé­lags­losun og losun í flugi og iðn­aði. Lítil breyt­ing er á losun frá land­notkun milli ára.

Ísland nær ekki markmiðum um samdrátt í losun með núverandi loftslagsaðgerðum
Framræst vot­lendi end­ur­heimt Stærstur hluti los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á Íslandi er vegna land­notk­unar. Mynd: Landgræðslan

Ísland nær ekki mark­miði um 41 pró­senta sam­drátt í sam­fé­lags­losun árið 2030. Miðað er við losun árs­ins 2005. Þetta kemur fram í bráða­birgða­fram­reikn­ingi Umhverfis- og orku­stofn­unar sem tekur til greina núver­andi aðgerðir í lofts­lags­málum. Stofn­unin gaf í dag út bráða­birgða­tölur um losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda árið 2024. 

Einnig má sjá að skuld­bind­ingar Íslands um sam­drátt í losun frá land­notkun á árunum 2026-2030 munu lík­lega ekki heldur nást með núver­andi aðgerðum.

Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á Íslandi jókst milli áranna 2023 og 2024 í tveimur af þremur flokkum sem metnir eru. Þriðji flokk­ur­inn – land­notkun – stóð nokkurn veg­inn í stað.

Losun jókst um tvö prósent

Sam­fé­lags­losun jókst um tvö pró­sent á milli ára. Hún er einn af þeim þremur flokkum sem los­un­ar­bók­hald­inu er skipt í. Hinir eru við­skipta­kerfi Evr­ópu­sam­bands­ins með los­un­ar­heim­ildir og land­notkun. 

Sam­fé­lags­losun felur meðal ann­ars í sér losun frá vega­sam­göngum, land­bún­aði, urðun úrgangs, jarð­varma­virkj­unum og …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Birgit Braun skrifaði
    Mér finnst þetta mjög nauðsynleg en frekar óskýr grein. Töflurnar a h.t. ekki samræmandi texta. Losun frá flugi t.d. flokkuð undir samfélagsleg losun ? eða iðnaðartengd losun? Heildartölur og samanburður á milli ára? Bæði orkuiðnaðurinn og ferðamennskan ( fólks og vöruflutningar með skipum, í flugi, á landi, uppbyggingin ( hús og hótel, vegakerfið) bílafjöldinn, mannafjöldinn sem dvelur á eyjunni etc) hlýta að hafa gífurleg æhrif á þessa þróun. Væri gott að fá velrannsað framhald sem skilgreinir vandann betur!
    0
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Heilt yfir er ekkert óeðlilegt við það að losun aukist með auknum fólksfjölda. Það er nokkuð víst að ef fólksfjöldin drægist saman þá myndi losunin einnig gera það.
    0
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    And how much is the emission increase because of increased air traffic since the Covid pandemic?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár