„Þegar haft var samband við mig og óskað eftir kröftum mínum í ráðuneytið þá hafði ég nýlega ráðið mig í núverandi starf. Ég fann þá að barna- og menntamálin á landsvísu toguðu enda hef ég lengi brunnið fyrir þeim málum,“ segir Ágúst Ólafur Ágústsson sem er hættur sem aðstoðarmaður Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra. Tilkynnt var um ráðningu hans sem aðstoðarmanns Heiðu á vef Reykjavíkurborgar þann 10. júní síðastliðinn.
Ágúst Ólafur tók við starfinu af Katrínu M. Guðjónsdóttur sem baðst lausnar frá starfi eftir að hún hafði sinnt því í rúma tvo mánuði.
Ágúst Ólafur segir á Facebook-síðu sinni að það sé samkomulag milli borgarstjóra og mennta- og barnamálaráðherra um að hann muni taka við nýju starfi í ráðuneytinu þar sem hann verður aðstoðarmaður Guðmundar Inga Kristinssonar.
„Sem þingmaður lagði ég fram tillögu um lögfestingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem var samþykkt. Fyrir þá baráttu fékk ég sérstaka viðurkenningu Barnaheilla á 20 ára afmælisdegi Barnasáttmálans fyrir „sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra“, sem mér þykir mjög vænt um. En ég flutti jafnframt fjölmörg önnur mál sem snúa að málefnum barna og stuðningi við barnafjölskyldur en hef einnig verið viðloðandi kennslu undanfarin 14 ár,“ skrifar Ágúst Ólafur þar sem hann þakkar sömuleiðis fyrir „stuttan en góðan tíma í Ráðhúsinu“.
Ágúst hefur störf 1. september og mun starfa ásamt Guðbjörgu Ingunni Magnúsdóttur, sem einnig er aðstoðarmaður mennta- og barnamálaráðherra.
Lögfræðingur, hagfræðingur og stjórnsýslufræðingur
Ágúst Ólafur er fyrrverandi alþingismaður og efnahagsráðgjafi forsætisráðherra. Þá sat hann í bankaráði Seðlabanka Íslands í fjögur ár og gegndi meðal annars formennsku í viðskiptanefnd Alþingis, Evrópunefnd forsætisráðherra og í framkvæmdasjóði aldraða.
Hann vann sem sérfræðingur á aðalskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í New York og hefur að undanförnu stundað doktorsnám í opinberri stjórnsýslu. Samhliða hefur hann kennt við Háskóla Íslands ásamt því að sinna ráðgjafarstörfum meðal annars fyrir Sjúkraliðafélag Íslands, Rannsóknarsetur skapandi greina og Ljósið.
Ágúst er menntaður lögfræðingur, hagfræðingur og stjórnsýslufræðingur og á sæti í stjórn Dýraverndarsambands Íslands og Evrópuhreyfingarinnar.
Ágúst Ólafur fór í leyfi frá þingstörfum í desember 2018 eftir að hafa verið áminntur af trúnaðarnefnd Samfylkingarinnar vegna kynferðislegrar áreitni gegn blaðamanni Kjarnans. Ágúst Ólafur sótti sér svo aðstoðar vegna áfengisvanda og tilkynnti um það opinberlega. Þá var umdeilt þegar hann sneri aftur á Alþingi og var það gagnrýnt af Samtökum ungra jafnaðarmanna. Hann datt út af þingi árið 2021.
Athugasemdir