Zelensky bregst við orðum Trump: „Rússar verða að binda enda á stríðið“

Fundur Zelensky í Hvíta húsinu fer fram í dag. Eftir þrýsting frá Trump segir forseti Úkraínu að hann sé bundinn af stjórnar­skrá til að gefa ekki frá sér landsvæði. Rússar verði að binda enda á stríðið sem þeir hófu.

Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, segir það undir Rússlandi komið að binda enda á innrásina, rétt áður en mikil­vægur fundir stendur fyrir dyrum með Donald Trump, sem þrýstir á Úkraínu að gefa upp landsvæði og hætta við áform um að aðild að NATO. 

Síðar í dag mun Zelensky funda með forseta Banda­ríkjanna, í kjölfar þess að Trump átti fund með Pútín í Alaska á föstudag. Sá fundur leiddi ekki til vopnahlés, en Trump er farinn að beita sér fyrir friðar­samningi í stað þess að krefjast þess að vopnahlé verði komið á. Seint í gær sagði hann að Zelensky gæti bundið enda á stríðið sem hefur staðið yfir í þrjú og hálft ár, „nánast strax, ef hann vill.“ En það kæmi ekki til greina fyrir Úkraínu að endur­heimta landsvæði sem Rússar hafa tekið yfir eða ganga í NATO.  

„Zelensky, forseti Úkraínu, getur bundið endi á stríðið við Rússland nánast strax, …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár