Formaður veiðifélags Haukadalsá segir slysasleppingu skell

Vel yfir átta­tíu þús­und eld­is­laxar hafa sloppið úr sjó­kvíum á síð­ustu fimm árum. Var­úð­ar­orð sér­fræð­inga hafa ítrekað verið hunsuð. Formaður veiði­fé­lags Hauka­dalsá segir ána opna enn sem komið er.

Formaður veiðifélags Haukadalsá segir slysasleppingu skell
Óskar Páll Sveins­son Hér má sjá Jóhannes Stur­laugs­son, fiski­fræð­ing, í leit að eld­is­laxi aðfara­nótt fimmtu­dags.

„Þetta eru slæmar fréttir, og ekki bara fyrir okkur, heldur almennt fyrir veiði­fé­lög á Íslandi, segir Guð­mundur Skúli Hart­vigs­son, for­maður veiði­fé­lags Hauka­dalsár, en þar hafa fund­ist eld­is­laxar og sam­tökin Íslenski Nátt­úru­vernd­ar­sjóður vöktu fyrst athygli á. Veiði­leyfi í Hauka­dalsá kosta að jafn­aði um og yfir tvö hund­ruð þús­und krónur stöngin yfir háanna­tím­annn á sumrin. Guð­mundur Skúli segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um að loka ánni í bili og að veiði­fé­lagið eigi í góðu sam­starfi við eft­ir­lits­að­ila vegna máls­ins. 

„En auð­vitað er þetta skellur eins og þetta birt­ist í fréttum,“ segir Guð­mundur Skúli. Hann segir veiði­fé­lagið, sem sam­anstendur af eig­endum árinnar, eiga í miklum sam­skiptum vegna máls­ins og munu þeir funda vegna þessa. 

Yfir áttatíu þúsund eldislaxar sloppið

Í ljós kom á fimmtu­dag, að eld­is­lax hefði sloppið úr kví Arctic Fish en fyr­ir­tækið er með fisk­eldi á tíu stöðum í fimm fjörðum: Pat­reks­firði, Tálkna­firði, Arnar­f­irði, Dýraf­irði og …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MÖG
    Magni Örvar Guðmundsson skrifaði
    Aldrei dytti mér í hug að borga 200 þúsund fyrir að veifa stöng yfir laxveiðiá og ef eitthvað kvikindi væri svo vitlaust að bíta á þá yrði ég að sleppa því. Er þá ekki bara ágætt að fá " eldislax" og mega fara með hann heim og éta hann.
    0
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Hvers vegna eru þessi laxeldisfyrirtæki með eftirlit með sjálfum sér ?
    1
    • Orri Olafur Magnusson skrifaði
      Hér á landi er allt eftirlit með reglum og lögum í skötulíki ; þetta á t d við um eftirlit með umferð og hámarkshraða á höfuðborgarsvæðinu. Þeir sem aka yfir á rauðu ljósi - sem væri lítið alvarlegum augum í Þyskalandi þar sem ég bjó um árabil - þurfa ekkert að óttast og hraðatakmarkanir einnig hugsaðar
      Við hverju er að búast í þess háttar samfélagi?.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár