Eldislaxar fundust í Haukadalsá: „Hryllingur að sjá!“

Nátt­úru­vernd­ar­sjóð­ur­inn ásamt fiski­fræð­ingi gripu þrjá eld­is­laxa í Hauka­dalsá. For­stjóri MAST segir erfða­grein­ingar geti leitt til nákvæmrar nið­ur­stöðu um það hvaðan lax­inn kemur, en eng­inn hefur til­kynnt um slysa­slepp­ingar nýverið.

„Klukkan er að ganga 05:00 að morgni hér við Hauku. Skelfi­legir hlutir eru í gangi hér. Við erum búnir að ná þremur eld­is­löxum í einum hyl. Náðum þó ekki nærri öllum. Klárlega eru þeir á annan tug í þessum eina hyl sem við höfum séð í nótt, Síma­streng, sem er neðsti veiði­staður Hauku.“

Svona hljóða skila­boð frá Ingólfi Ásgeirs­syni, stofn­anda íslenska nátt­úru­vernd­ar­sjóðs­ins, sem birt­ust á Facebook-síðu sjóðs­ins í morgun. Samtökin köll­uðu til Jóhann­esar Stur­laugs­sonar fiski­fræð­ings, sem hand­sam­aði laxa allt að 90 sentí­metra að lengd, sem reynd­ust vera eld­is­laxar. Það var gert eftir að veiði­maður veiddi slíkan í ánni í gær og úr varð að Nátt­úru­vernd­ar­sjóð­ur­inn kann­aði málið.

Hryllingur að sjá

Fram kemur í færslu Nátt­úru­vernd­ar­sjóðs­ins að ómögu­legt sé að segja hversu margir eld­is­laxar leyn­ist í ánni, en að þeirra mati séu þeir klár­lega tugir. „Vonandi ekki hund­ruðir,“ segir þar jafn­framt, en áréttað er að ekki sé hægt að full­yrða neitt á þess­ari stundu.

„Hryll­ingur að sjá! Verður að þræða alla ána. Og árnar í Dölum. Þetta er neyð­ar­á­stand!“ segir í færsl­unni.

Ekki er ljóst hvaðan eld­is­lax­inn kemur, en það tekur nokkurn tíma fyrir Jóhannes Stur­laugs­son að greina sýni sem tekin voru úr fisk­unum sem veidd­ust í nótt.

„Þetta mál er rétt að byrja. Enn vitum við ekki annað en að stór ótil­kynnt slepp­ing hefur átt sér stað frá ein­hverju sjó­kví­eld­is­fyr­ir­tækj­anna. Hræðileg tíð­indi,“ segir í færsl­unni, en engin slysa­slepp­ing hefur verið til­kynnt und­an­farið.

Engir strokulaxar í teljurum Hafró

Það kemur því spánskt fyrir sjónir að við­tal birt­ist á RÚV í gær þar sem fram kom að eng­inn stroku­lax hefði sést í fyrra í mynda­véla­telj­urum sem Haf­rann­sókna­stofnun hefur komið fyrir í 13 ám. Þrjátíu stroku­laxar voru þó greindir og 42 blend­ingar greindust í 15 ám. Sviðs­stjóri ferskvatns- og eld­is­fiska hjá Hafró, Guðni Guð­bergs­son, sagði í við­tal­inu að það væri góðs viti að eld­is­lax hefði ekki sést í telj­ur­unum.

„Það sem ger­ist nú er að það virkj­ast teymi sem tekur á svona málum,“ segir Hrönn Ólína Jör­unds­dóttir, for­stjóri Mat­væla­stofn­unar (MAST). Teymið sam­anstendur af full­trúum MAST, Hafró og fiski­stofu en síð­ast­nefnda stofn­unin fer nú á vett­vang og metur stöð­una. „Þeir taka þá sýni og senda til rann­sóknar hjá Hafró,“ útskýrir Hrönn.

Hún segir að eftir það verði staðan metin og stofn­an­irnar geti rakið fisk­inn, ef þetta er eld­is­fiskur, til fyr­ir­tækja og kvía, og mögu­lega atburðar, ef þetta er eldri atburður. „Rann­sóknin er á frum­stigum og fyrst þarf að sjá erfða­grein­ingu á fisk­unum,“ segir Hrönn en slík grein­ing ætti ekki að taka langan tíma.

Aðspurð segir hún eft­ir­litið það öfl­ugt að sýnin geti leitt til ansi nám­kvæmrar nið­ur­stöðu þar sem sýni eru tekin úr fiskum í sjó­kví­eldi, og því hægur vandi að rekja slepp­ingar, en Hrönn slær þó varnagla þar á, enda ekki víst að það sé raunin. 

MAST hefur ekki fengið neinar til­kynn­ingar um slysa­slepp­ingar og segir að ef eitt­hvað refsi­vert komi upp úr dúrnum, þá sé það MAST sem sækir það mál.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristján Davíðsson skrifaði
    valur@heimildin.is

    Það kemur spánskt fyrir sjónir ef ekki stendur til að uppfæra tangfærslur, sem.fram koma í þessari grein, í ljósi þess að komið hefur fram í fréttum annarra fjölmiðla að um er að ræða hnúðlax en ekki eldislax.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár