Formaður Landverndar um bráðabirgðarleyfi: Virkjanir ekki smíðaðar úr legókubbum

Formaður Land­verndar gagn­rýnir harð­lega bráða­birgð­ar­leyfi Lands­virkj­unar til þess að hefja fram­kvæmdir við Hvamms­virkjun.

Þorgerður María Þorbjarnadóttir, formaður Landverndar, segir umhverfisráðherra hafa verið atkvæðalitlan þegar kemur að umhverfismálum.
Þor­gerður María Þor­bjarna­dóttir, for­maður Land­verndar, segir umhverf­is­ráð­herra hafa verið atkvæða­litlan þegar kemur að umhverf­is­málum.

Umhverfis- og orku­stofnun veitti Lands­virkjun virkj­un­ar­leyfi til bráða­birgða vegna und­ir­bún­ings­fram­kvæmda við Hvamms­virkjun í dag.

„Það segir sig sjálft að virkj­anir eru ekki smíð­aðar úr legókubbum og því varla til bráða­birgða,“ segir Þor­gerður María Þor­bjarn­ar­dóttir, for­maður Land­verndar, sem gagn­rýnir harð­lega að virkj­un­ar­leyfi sé veitt til bráða­birgða. „Það er fárán­leiki að þetta sé kallað bráða­birgð­ar­leyfi. Þarna er verið að nota almannafé til þess að fara í fram­kvæmdir fyrir virkjun sem er ekki með leyfi,“ bætir Þor­gerður við. Hæsti­réttur Íslands felldi úr gildi virkj­un­ar­leyfi Lands­virkj­unar fyrr í sumar þar sem það tald­ist brot­legt gegn vatns­hloti Þjórsár.

Lögin reynd­ust mein­gölluð vegna laga­setn­ingar frá tíð rík­is­stjórnar Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, en ný lög voru sam­þykkt á Alþingi í júní og því hefur Lands­virkjun sótt um virkj­un­ar­leyfi á ný.

Í til­kynn­ingu Lands­virkj­unar segir að leyfið taki til þeirra und­ir­bún­ings­fram­kvæmda sem þegar voru hafnar á meðan á mála­rekstri fyrir dóm­stólum stóð og gildir í sex …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÓS
    Ólöf Sverrisdóttir skrifaði
    Ég er svoo hrædd um að það verði virkjað hvað sem tautar og þessi umhverfisráðherra er ekki að standa sig hvað náttúruvernd snertir.. fæ kökk í hálsinn að hugsa um þetta..
    1
  • VK
    Víðir Kristjánsson skrifaði
    Umhverfisráðherra var búinn að fyrirskipa beint eða óbeint undirstofnun sinni að gefa út bráðabirgðarvirkjunarheimild hvað sem það þýðir í rauninni!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár