Íslensk útflutningsfyrirtæki áhyggjufull yfir tollum Trump

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti boðar 15% toll á íslenskar vörur. Þetta sýnir hversu ófyr­ir­sjá­an­leg banda­rísk stjórn­völd eru að mati fram­kvæmda­stjóra Félags atvinnu­rek­enda sem segir íslensk fyr­ir­tæki leita að nýjum mörk­uðum fyrir vörur sínar.

Íslensk útflutningsfyrirtæki áhyggjufull yfir tollum Trump
Donald Trump Tollar á íslenskar vörur verða hærri en for­set­inn boð­aði í apríl. Mynd: AFP

Banda­ríkja­stjórn til­kynnti í gær­kvöldi að fimmtán pró­senta tollur verði lagður á vörur frá Íslandi. Þetta verði raunin þrátt fyrir að Ísland flytji inn meira frá Banda­ríkj­unum en út til þeirra.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hafði í apríl til­kynnt um 10% tolla á íslenskar vörur sem var lægsta pró­sentan í nýrri tolla­stefnu Banda­ríkj­anna.

„Það var ekk­ert í kort­unum sem benti til þess að þetta yrði nið­ur­staðan,“ segir Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda. Inn- og útflutn­ings­fyr­ir­tæki eru stór hluti aðild­ar­fyr­ir­tækja félags­ins.

Ólafur Steph­en­senFram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda segir félags­menn sína hafa miklar áhyggjur af tolla­stefnu Banda­ríkj­anna.

„Þetta sýnir vel hversu ófyr­ir­sjá­an­leg banda­rísk stjórn­völd eru þessa dag­ana,“ segir hann. „Ég er nátt­úru­lega búinn að heyra í mínum félags­mönnum í morgun sem eru í útflutn­ingi til Banda­ríkj­anna og þeir hafa miklar áhyggjur af þessu. Við erum sömu­leiðis búin að heyra frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu að það verði strax farið í við­ræður við Banda­ríkin og reyna að fá þessum ákvörð­unum breytt. Án þess að maður leyfi sér að vera of bjart­sýnn hvað þetta varðar.“

Ólafur segir að afstaða félags­ins í tæpa öld hafi verið að tollar séu vont hag­stjórn­ar­tæki. „Þeir valda á end­anum öllum skaða. Þessir tollar sem Banda­ríkja­for­seti hefur verið að leggja á munu ekki síður skaða efna­hags­líf Banda­ríkj­anna en við­skipta­landa þeirra. Þetta skaðar heims­við­skiptin og veldur verð­hækk­unum og efna­hags­vand­ræðum á heims­vísu,“ segir hann.

„Fólk horfir í kringum sig og skoðar mögu­leik­ann á öðrum mörk­uðum“

Stærstur hluti útflutn­ings íslenskra fyr­ir­tækja til Banda­ríkj­anna er í tækjum og vörum til lækn­inga og sjáv­ar­út­vegi en að öðru leyti er fjöl­breyttur útflutn­ingur þarna undir. „Lyf, snyrti­vörur og sjáv­ar­af­urðir vega þungt,“ segir Ólafur.

Aðspurður segir hann að þessi fyr­ir­tæki séu farin að leita að öðrum mörk­uðum fyrir vörur sínar. „Það er þróun sem er búin að vera í gangi frá því að Trump boð­aði þessar tolla­hækk­anir. Fólk horfir í kringum sig og skoðar mögu­leik­ann á öðrum mörk­uðum. Það mun ábyggi­lega halda áfram.“

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár