Guterres segir fjárhagslegan hag af orkuskiptum

„Orku­skiptin eru óstöðv­andi,“ sagði António Guterres aðal­rit­ari Sam­ein­uðu þjóð­anna í erindi í höf­uð­stöðvum Sam­ein­uðu þjóð­anna í vik­unni. Tveimur billjónum var fjár­fest í hreina orku í fyrra. „Fylgið bara pen­ing­unum,“ sagði Guterres.

António Guterres
António Guterres Segir hreina orku hag­stæð­ari en jarð­efna­elds­neyti og að nú sé ekki aftur snúið. Mynd: EPA

„Orku­skiptin eru óstöðv­andi, en þau eru ekki nógu hröð eða sann­gjörn ennþá,“ sagði António Guterres aðal­rit­ari Sam­ein­uðu þjóð­anna. En hann hélt á þriðju­dag erindi um orku­skipti í höf­uð­stöðvum Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York.  

Í erind­inu minnt­ist Guterres á vax­andi fjár­fest­ingar í hreinni orku og lækk­andi kostnað við sólar- og vind­orku sem eru nú orðnar keppi­nautar jarð­efna­elds­neyt­is­ins. Í yfir­lýs­ing­unni kom fram að þessir orku­gjafar eru orðnir ódýr­ari. En sól­ar­orkar er 41 pró­sent ódýr­ari og vind­orka á hafi 53 pró­sent ódýr­ari en jarð­efna­elds­neyti. Guterres sagði hreina orku­gjafa geta tryggt raun­veru­legt orku­sjálf­stæði.   

Erindið bar nafnið Augna­blik tæki­fær­is­ins: Að auka orku­öld­ina og er fram­hald af erind­inu Augna­bliki sann­leik­ans sem hann flutti í fyrra. Flutti Guterres erindið sam­hliða nýrri tækni­legri skýrslu Sam­ein­uðu þjóð­anna sem byggir á gögnum alþjóð­legra orku- og fjár­mála­stofn­anna.

„Fylgið bara pen­ing­unum,“ sagði Guterres og benti á að tveimur billjónum hefði verið fjár­fest í hreina orku á síð­asta ári. Það …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár