Ísrael hafnar ábyrgð á hungursneyð og vísar á Hamas

Ísrael neitar að bera ábyrgð á hungurs­neyð í Gaza og sakar Hamas um að ræna hjálpar­gögnum. Sameinuðu þjóðirnar, Alþjóða­heilbrigðis­stofnunin og 111 mannúðar- og hjálpar­samtök kalla eftir tafar­lausum aðgerðum svo hægt sé að koma hjálpar­gögnum þangað sem þeirra er þörf.

Neita sök
Neita sök Ísrael sakar Hamas um að skapa vís­vit­andi mann­úð­ar­kreppu. Mynd: AFP

Ísraels­menn svöruðu vaxandi alþjóðlegri gagnrýni á að þeir bæru ábyrgð á lang­varandi matar­skorti á Gaza, með því að saka Hamas um að skapa vísvitandi mannúðar­kreppu á palestínska land­svæðinu.

Meira en 100 hjálpar- og mann­réttinda­samtök sögðu á miðvikudag að „fjölda­hungursneyð“ væri að breiðast út á Gaza-svæðinu. Frakkland varaði við vaxandi „hættu á hungurs­neyð“ af völdum „hafnar­bannsins sem Ísrael hefur sett á“. Alls kölluðu 111 samtök eftir tafar­lausu samnings­bundnu vopnahléi, opnun allra landamæra­stöðva og frjálsu flæði hjálpar­gagna í gegnum kerfi Sameinuðu þjóðanna.

Yfirmaður Alþjóða­heilbrigðis­mála­stofnunarinnar lét einnig í sér heyra og sagði að „stór hluti íbúa Gaza svelti“. „Ég veit ekki hvað annað þú myndir kalla það en fjölda­hungursneyð – og hún er manngerð,“ sagði Tedros Adhanom Ghebreyesus. 

David Mencer, talsmaður ísraelsku ríkis­stjórnarinnar, svaraði hins vegar fullum hálsi: „Það er engin hungurs­neyð af völdum Ísraels. Það er mann­gerður skortur sem Hamas hefur skipulagt.“

Saka Hamas um að ræna …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár