Gætu allt eins verið á hálendinu

Lydía Angelíka Guð­munds­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur, sjúkra­flutn­inga­maður og félagi í björg­un­ar­sveit­inni Kára, segir sjúkra­við­bragð í Öræfum ekki í sam­ræmi við mann­fjölda. Ferða­þjón­usta þar hefur stór­auk­ist und­an­farin ár. Hún segir að það hægi á tím­anum á meðan hún bíði eftir aðstoð. En sjúkra­bíll er í það minnsta 45 mín­útur á leið­inni. Færðin geti orðið slík að sjúkra­bílar kom­ist ekki í Öræfin.

Happy Camper í hvassviðri
Happy Camper í hvass­viðri Frá björg­un­ar­að­gerðum í Öræfum eftir mikið hvass­viðri, þar sem um fjöldi bíla fauk út af og ferða­fólk var almennt í vand­ræðum, árið 2023. Mynd: Landsbjörg

„Ég verð leið að geta ekki verið til staðar fyrir félag­ana,“ segir Lydía Angelíka Guð­munds­dóttir. Hún er hjúkr­un­ar­fræð­ingur og sjúkra­flutn­inga­maður sem býr í Öræfunum. Lydía er félagi í björg­un­ar­sveit­inni Kára og hefur oft þurft að taka stjórn í útköllum. Félagar hennar hafa lýst yfir létti þegar hún kemst í útköll því þá sé ein­hver með sér­þekk­ingu til staðar. Henni þykir óþægi­legt að vera ekki á svæð­inu þegar það verða stór og ljót útköll. 

„Í sjúkra­flutn­ing­unum er ég með grunn­menntun sem er lægsta mennt­un­ar­stig og það er oft talað um að næsta mennt­un­ar­stig fyrir ofan, þá ertu orð­inn full­mennt­aður sjúkra­flutn­inga­maður,“ útskýrir Lydía og heldur áfram: „Ég hef það ekki en er samt að stjórna í aðstæð­unum af því ég er með mestu reynsl­una hér. En ef ég væri á Selfossi eða í þétt­býli væri lík­lega ein­hver með meiri menntun en ég að stjórna á vett­vangi. Mér finnst að það ætti …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár