Haldið í biðstöðu síðustu sjö ár

Sjö ár eru frá því að öll upp­bygg­ing var stöðvuð vegna sprungu í Svína­felli sem talin er geta valdið berg­hlaupi. „Áhrifin eru að geta ekki látið lífið halda áfram,“ segir Anna María Ragn­ars­dóttir, eig­andi Hótels Skafta­fells. Sigurjón Andr­és­son, bæj­ar­stjóri sveit­ar­fé­lags Horna­fjarðar, segir málið hafa gengið of hægt.

Hótel Skaftafell
Hótel Skafta­fell Er á ein­stökum stað undir fjöll­unum. Þar er sprungan.

Engar ákvarð­anir um næstu skref hafa verið teknar vegna sprungu í Svína­felli ofan við Svína­fells­jökul síðan í maí 2018. Anna María Ragn­ars­dóttir, eig­andi Hótels Skafta­fells, segir eins og ýtt hafi verið á takka árið 2018 en engin upp­bygg­ing hefur verið leyfð síðan þá. 

Íbúar hafa beðið eftir næstu skrefum vegna hættu sem fylgir sprungu í Svína­felli. Síðustu sjö ár hefur allri upp­bygg­ingu á svæð­inu verið slegið á frest og ekki liggur fyrir hvenær ákvarð­anir verða teknar. Anna María Ragn­ars­dóttir, eig­andi Hótels Skafta­fells, segir að til hafi staðið að byggja hús­næði fyrir starfs­fólk hót­els­ins sem gistir í dag í gámum en að enn megi þau ekki byggja neitt. „Það er ekki hægt að setja starf­semi og fólk hér á ís,“ segir hún. 

Jón Grétar Sig­urðs­son, fram­kvæmda­­­stjóri Atl­ants­flugs, sem rekur útsýn­is­flug frá Skafta­fells­flug­velli, segir: „Öll þessi ár, tekin af fólki í upp­bygg­ingu. Ég næ þessu ekki.“ 

„ …
Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár