Ekki Hæstaréttar að leiðrétta mistök Alþingis: Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar fellt úr gildi

Virkj­un­ar­leyfi Hvamms­virkj­unar var fellt úr gildi af Hæsta­rétti Íslands í morgun. Fram­kvæmda­leyfið er þó enn í gildi. Í dóm­inum kemur fram að mis­tök við laga­setn­ingu hafi leitt til þess­ara stöðu, en það væri ekki dóms­ins að leið­rétta mis­tök Alþingis.

Þjórsá þar sem til stendur að virkja.
Þjórsá þar sem til stendur að virkja. Mynd: Friðþjófur Helgason

Virkj­un­ar­leyfi Hvamms­virkj­unar var fellt úr gildi í Hæsta­rétti klukkan ell­efu í morgun. Hæsti­réttur sagði í úrskurði sínum að það væri ekki rétt­ar­ins að leið­rétta mis­tök við laga­setn­ingu hjá Alþingi.

Hæsti­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu að óheim­ilt hafi verið að breyta vatns­hloti Þjórsár miðað við þágild­andi lög en þeim var breytt af umhverf­is­ráð­herra í júní síð­ast­liðnum og kom fram í málsvörn ríkis og Lands­virkj­unar að mis­tök vegna laga frá árinu 2011 sem end­ur­spegl­uðu ekki vilja lög­gjafans. 

Svo sagði í nið­ur­stöð­unni um heim­ild Umhverf­is­stofn­unar til að breyta vatnslot­inu Þjórsá 1 hafi Hæsti­réttur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að þágild­andi ákvæði laga um stjórn vatna­mála yrðu skýrð þannig, í ljósi lög­skýr­ing­ar­gagna og með­ferðar frum­varps til lag­anna á Alþingi, að girt hefði verið fyrir að vatns­hloti yrði breytt vegna áhrifa af fram­kvæmdum við að reisa vatns­afls­virkj­anir. Í því sam­bandi var engu talið breyta þótt mis­tök hefðu orðið við laga­setn­ing­una sem gætu með …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár