Brutu gegn siðareglum í máli Ásthildar Lóu

RÚV og Sunna Kar­en Sig­ur­þórs­dótt­ir brutu gegn Ásthildi Lóu Þórs­dótt­ur ráð­herra í um­fjöll­un um son henn­ar og sam­skipti við barns­föð­ur. Siðanefnd Blaða­manna­fé­lags­ins vís­aði hins veg­ar frá öll­um kröf­um ráð­herra nema einni.

Brutu gegn siðareglum í máli Ásthildar Lóu
Ásthildur Lóa Þórsdóttir Ásthildur sagið af sér sem mennta- og barnamálaráðherra í kjölfar fréttaflutnings af málinu. Mynd: Bára Huld Beck

Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands komst að þeirri niðurstöðu á mánudag að RÚV og Sunna Karen Sigurþórsdóttir hafi framið ámælisvert brot með umfjöllun um mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur, þá mennta- og barnamálaráðherra, fyrr í ár. Ásthildur sagði af sér ráðherraembætti í kjölfar umfjöllunar RÚV um að hún hafi átt barn með pilti á táningsaldri.

Ásthildur kærði Ríkisútvarpið, RÚV, Ara Pál Karlsson, Sunnu Karen og fréttastofu RÚV til siðanefndar fyrir umfjöllun um málefni hennar sem hófst þann 20. mars 2025. Siðanefndin fékk kæruna í hendur 18. maí og birti úrskurð nú á mánudag þar sem öllum kröfum Ásthildar Lóu var vísað frá nema einni.

Niðurstaða siðanefndar var að RÚV og Sunna Karen hefðu einungis gerst brotleg við 2. grein siðareglna með því að vísa til almennra hegningarlaga án fyrirvara og gefa þannig í skyn að Ásthildur Lóa hefði gerst brotleg við lög með samband sínu við piltinn.

2. grein siðareglna hljóðar svo: „Blaðamaður setur fram upplýsingar á heiðarlegan og sanngjarnan hátt samkvæmt bestu vitund hverju sinni, meðal annars með því að leita andstæðra sjónarmiða þegar við á. Blaðamaður hagræðir ekki staðreyndum og setur ekki fram órökstuddar ásakanir.“

Átti barn með unglingspilti

Þann 20. mars birtist á vef RÚV frétt með fyrirsögninni „Barnamálaráðherra átti barn með unglingspilti sem hún leiðbeindi“, en síðar var fyrirsögn hennar breytt í „Barnamálaráðherra átti barn með unglingspilti sem hún kynntist í trúarsöfnuði“.

Í fréttinni kom fram að Ásthildur Lóa hefði fyrir rúmum þremur áratugum, þegar hún var 22 ára gömul, átt í ástarsambandi með fimmtán ára dreng. „Þess var getið að þau hefðu kynnst þegar kærandi leiddi unglingastarf í trúarsöfnuði, hvar drengurinn hefði leitað haldreipis vegna aðstæðna heima fyrir,“ segir í umfjöllun siðanefndar. „Eftir samneyti þeirra varð kærandi þunguð og eignaðist son en í fréttinni segir að þá hafi móðirin verið orðin 23 ára en faðirinn sextán ára. Enn fremur var sagt frá því að umgengni föður við barnið hefði verið takmörkuð og að faðirinn hafi upplifað framkomu kæranda sem tálmun. Í fréttinni er þess getið að faðirinn hafi ekki viljað veita fréttastofu viðtal en staðfest framangreindar upplýsingar.“

Í fréttinni var málið sett í samhengi við 198. grein almennra hegningarlaga þar sem segir að óheimilt sé að eiga samneyti með einstaklingi undir átján ára aldri sé „viðkomandi til dæmis kennari eða leiðbeinandi“ og hið sama gildi eigi maður samræði við einstakling undir átján ára aldri sem sé „háður viðkomandi fjárhagslega, í atvinnu sinni eða skjólstæðingur í trúnaðarsambandi· Slíkt brot geti varðað allt að þriggja ára fangelsi.

Ásthildur Lóa sagði af sér sem ráðherra í beinu framhaldi af fréttaflutningnum.

Leiðréttu aldur og báðust velvirðingar

28. mars birti RÚV leiðréttingu þar sem kom fram að hið rétta hafi verið að þau hafi bæði verið árinu eldri og þau beðin velvirðingar.

Með bréfi til RÚV 10. maí fór Ásthildur Lóa fram á að RÚV mundi leiðrétta rangfærslur og aðdróttanir um refsivert athæfi í umfjöllun um málið og leitast við að leiðrétta fréttir sem miðlað var til erlendra sjónvarpsstöðva. RÚV svaraði með bréfi 15. maí og sagði ekki tilefni til frekari leiðréttinga.

Ásthildur Lóa bendir á að samband þeirra hafi hafist þegar drengurinn var sextán ára og því sjálfráða í skilningi þágildandi laga. Þá hafi hún ekki leitt trúarstarf í söfnuðinum heldur verið jafnsett manninum innan hans.

„Að mati kæranda hefðu fréttamenn RÚV getað, út frá fæðingardegi sonar kæranda, reiknað út hvenær umrædd samskipti áttu sér stað“

„Að mati kæranda hefðu fréttamenn RÚV getað, út frá fæðingardegi sonar kæranda, reiknað út hvenær umrædd samskipti áttu sér stað, enda hefur kærandi greint svo frá að samneyti þeirra hafi ekki hafist fyrr en getnaður átti sér stað. Með „einföldum hugarreikningi, og öflun upplýsinga um venjubundinn meðgöngutíma mannfólks, hefðu fréttamenn RÚV getað fundið út að barnsfaðir [kæranda] var 16 ára þegar barn hans og [kæranda] var getið.“

Framsetning RÚV hafi því hvorki verið heiðarleg né sanngjörn eins og siðareglur kveða á um. Þá segir Ásthildur Lóa að hún hafi aldrei hafnað viðtali heldur aðeins óskað eftir upplýsingum um tilefni þess áður en það yrði veitt. Hún hafi ekki fengið ráðrúm til að bregðast við ásökunum og staðreyndir því ekki verið leiddar í ljós.

Loks hafi aðdróttanir um refsivert athæfi ekki verið sanngjarnar, því  einföld gagnaöflun hefði leitt í ljós að tilvitnuðu ákvæði hegningarlaga var breytt í núverandi horf árið 1992, auk þess að sjálfræðis- og samræðisaldur hafi tekið breytingum á tíunda áratug síðustu aldar.

Öllum atriðum vísað frá nema einu

Í svari þeirra kærðu í málinu var bent á að Ari Páll Karlsson hefði enga aðkomu haft að málinu og því óljóst af hverju hann hafi verið kærður. Féllst siðanefnd á það sjónarmið og vísaði kæru á hendur honum frá og einnig gegn fréttastofu RÚV í heild sinni enda ótækt að bendla alla starfsmenn hennar við málið.

Þá kom fram að Sunna Karen hafi ítrekað óskað eftir viðbrögðum frá Ásthildi Lóu og sett sig í samband við aðstoðarmann hennar og fleiri sem gætu haft milligöngu um slíkt. Þá hafi Ásthildur Lóa aldrei óskað eftir því að beðið yrði með fréttaflutninginn.

Loks sögðu kærðu að ekki sé unnt að gera þá kröfu að fjölmiðlamenn geti sýnt fram á fulla sönnun hverrar og einnar staðhæfingar sem sett sé fram, enda myndi slíkt skerða svigrúm þeirra um of. Þess í stað nægi almennt að fréttir séu settar fram í góðri trú. Einnig kom fram að málið varðaði ekki aðeins ríflega þriggja áratuga gamla atburði heldur hafi Ásthildur Lóa sett sig í samband og mætt óboðin á heimili þeirrar konu sem hafði haft samband við forsætisráðuneytið vegna málsins.

Siðanefnd komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að framsetning kærðu á almennum hegningarlögum hafi verið ósanngjörn, enda gerði hún neytendum fréttarinnar, sér í lagi sjónvarpsáhorfendum, auðvelt fyrir að Ásthildur Lóa hefði gerst sek um kynferðisbrot.

Siðanefnd komst að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið um alvarlegt eða mjög alvarlegt brot að ræða heldur einungis ámælisvert. Hafnaði hún öðrum kröfum Ásthildar Lóu.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Indriði Þorláksson
1
Pistill

Indriði Þorláksson

Veiði­gjöld, hagn­að­ur og raun­veru­leg af­koma

Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa mót­mælt hækk­un veiði­gjalda með röng­um for­send­um og áróðri. Al­menn­ing­ur styð­ur hins veg­ar að hlut­ur þjóð­ar­inn­ar í arði af fisk­veiðiauð­lind­inni verði auk­inn. Reikn­uð auð­lindar­enta end­ur­spegl­ar raun­veru­lega af­komu bet­ur en bók­halds­leg­ur hagn­að­ur, sem get­ur ver­ið skekkt­ur með reikn­ings­færsl­um og eigna­tengsl­um.
Segja svör Íslands hvorki viðunandi né í samræmi við raunveruleikann
4
Fréttir

Segja svör Ís­lands hvorki við­un­andi né í sam­ræmi við raun­veru­leik­ann

Hvít­þvott­ur, inni­halds­leysi og óvið­un­andi svör sem eru ekki í tengsl­um við raun­veru­leik­ann eru með­al þeirra orða sem Geð­hjálp not­uðu til að lýsa svör­um Ís­lands um geð­heil­brigð­is­mál í sam­ráðs­gátt. Inn­an stjórn­kerf­is­ins er unn­ið að drög­um að mið­ann­ar­skýrslu Ís­lands vegna alls­herj­ar­út­tekt­ar Sam­ein­uðu þjóð­anna á stöðu mann­rétt­inda­mála.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Indriði Þorláksson
5
Pistill

Indriði Þorláksson

Veiði­gjöld, hagn­að­ur og raun­veru­leg af­koma

Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa mót­mælt hækk­un veiði­gjalda með röng­um for­send­um og áróðri. Al­menn­ing­ur styð­ur hins veg­ar að hlut­ur þjóð­ar­inn­ar í arði af fisk­veiðiauð­lind­inni verði auk­inn. Reikn­uð auð­lindar­enta end­ur­spegl­ar raun­veru­lega af­komu bet­ur en bók­halds­leg­ur hagn­að­ur, sem get­ur ver­ið skekkt­ur með reikn­ings­færsl­um og eigna­tengsl­um.

Mest lesið í mánuðinum

Forsprakki útifundar játaði fjárdrátt á leikskólanum Klettaborg
1
Fréttir

Forsprakki úti­fund­ar ját­aði fjár­drátt á leik­skól­an­um Kletta­borg

Sig­fús Að­al­steins­son, stofn­andi hóps­ins Ís­land - þvert á flokka, sem stend­ur fyr­ir úti­fund­um um hæl­is­leit­end­ur, ját­aði á sig fjár­drátt frá leik­skól­an­um Kletta­borg þeg­ar hann var for­stöðu­mað­ur þar. Hann vill ekki dæma hvort brot af því tagi séu nógu al­var­leg til að inn­flytj­end­ur sem gerð­ust sek­ir um þau ætti að senda úr landi.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár