Hvernig leysum við úr ágrein­ing? Félags­ráð­gjaf­inn og sátta­miðl­ar­inn Íris Eik Ólafs­dóttir segir mik­il­vægt að hlúa vel að sjálfum sér, hugsa hvernig maður kemur fram gagn­vart öðrum og hlusta. Mynd: Shutterstock

Hvernig náum við sáttum?

Sam­skipta­örð­ug­leikar eru því miður óum­flýj­an­legur hluti af líf­inu. Flest þurfum við ein­hvern tím­ann að takast á við sam­skipta­vanda, leysa úr ágrein­ingi eða finna lausn á flóknum vanda­málum. Íris Eik Ólafs­dóttir er félags­ráð­gjafi, sátta­miðl­ari, fjöl­skyldu­fræð­ingur og sér­fræð­ingur í rétt­ar­fé­lags­ráð­gjöf. Hún segir þrennt skipta lyk­il­máli þegar lausna er leitað.

Flest höfum við ein­hvern tím­ann lent í rifr­ildi, deilt við sam­starfs­fé­laga eða orðið vitni að ágrein­ingi ann­arra. Fyrir marga eru slíkar aðstæður óþægi­legar og sumir forð­ast þær eins og heitan eld­inn. En hvernig er hægt að takast á við þessar aðstæður og hvað er best að gera? Heim­ildin leit­aði ráða hjá Írisi Eik Ólafs­dóttur, eig­anda og fram­kvæmda­stjóra Sam­skipta­stöðv­ar­innar. 

Íris Eik er félags­ráð­gjafi, fjöl­skyldu­fræð­ingur, sátta­miðl­ari og sér­fræð­ingur í rétt­ar­fé­lags­ráð­gjöf. Til þess að efla færni okkar í að takast á við erfið mál, ágrein­ing og sam­skipta­vanda segir Íris Eik skipta lyk­il­máli að kunna að róa tauga­kerfið sitt, sýna hinum aðil­anum for­vitni og að geta stigið úr ágrein­ingnum. 

Íris Eik Ólafs­dóttirEr eig­andi og fram­kvæmda­stjóri Sam­skipta­stöðv­ar­innar. Íris Eik aðstoðar fólk í að ná sáttum í erf­iðum málum.

Eflum færni okkar

Sem sátta­miðl­ari aðstoðar Íris Eik fólk við að ná sáttum í erf­iðum málum. Það geta til dæmis verið deilur á milli …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár