Segja svör Íslands hvorki viðunandi né í samræmi við raunveruleikann

Hvít­þvottur, inni­halds­leysi og óvið­un­andi svör sem eru ekki í tengslum við raun­veru­leik­ann eru meðal þeirra orða sem Geðhjálp not­uðu til að lýsa svörum Íslands um geð­heil­brigð­is­mál í sam­ráðs­gátt. Innan stjórn­kerf­is­ins er unnið að drögum að mið­ann­arskýrslu Íslands vegna alls­herj­ar­út­tektar Sam­ein­uðu þjóð­anna á stöðu mann­rétt­inda­mála.

Segja svör Íslands hvorki viðunandi né í samræmi við raunveruleikann

Lands­sam­tökin Geðhjálp eru harð­orð í afstöðu sinni til svara Íslands um geð­heil­brigð­is­stefnu sem birt­ast í drögum mið­ann­arskýrslu Íslands vegna alls­herj­ar­út­tektar Sam­ein­uðu þjóð­anna á stöðu mann­rétt­inda­mála. Samtökin segja sum svör Íslands til marks um hvít­þvott auk þess að vera ekki í sam­ræmi við raun­veru­leik­ann. Þetta kemur fram í umsögn sam­tak­anna í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. 

„Vissu­lega er það jákvætt og til eft­ir­breytni að Ísland kjósi að svara lang­flestum þeirra til­mæla sem stjórn­völdum ber­ast. Gera verður þá kröfu að svörin séu í sam­ræmi við raun­veru­lega stöðu en ekki lýs­ing á ein­hverju sem ekki er á döf­inni,“ segir í nið­ur­lagi umsagn­ar­innar frá stjórn lands­sam­tak­anna Geð­hjálpar.

 Lögin séu lagfærð svo það megi brjóta á réttindum notenda

Í íslensku drög­unum segir meðal ann­ars að nú sé unnið að því að breyta lögum um rétt­indi sjúk­linga, með til­liti til tak­mörk­unar á beit­ingu nauð­ungar. „Við þá vinnu er byggt á not­enda­sam­ráði og á grund­velli samn­ings­ins um rétt­indi fatl­aðs fólks.“

Geðhjálp segir svar Íslands bæði ein­hliða og ekki í sam­ræmi við þá stöðu sem raun­veru­lega sé uppi. Samtökin benda á að þær laga­breyt­ing­arnar sem vísað sé til snú­ist ekki um að draga úr nauð­ung og þving­unum í geð­heil­brigð­is­þjón­ustu – né aðlögun að samn­ingi Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks. 

Þess í stað sé verið að lag­færa lögin þannig að það verði ekki lög­brot að brjóta á rétt­indum not­enda þjón­ust­unnar. Geðhjálp segir að vinna við breyt­ingu lag­anna hafi farið fram í kjöl­far eft­ir­lits umboðs­manns Alþingis á þremur lok­uðum geð­deildum sem leiddi í ljós að mann­rétt­indi fólks þar væru brotin nær dag­lega.

„Benti umboðs­maður á að laga­heim­ildir skorti fyrir þeirri nauð­ung og þvingun sem sjúk­lingar væru beittir. Umboðs­maður benti á ýmis­legt annað m.a. að dag­leg úti­vera væri ekki tryggð öllum sem liggja á þessum lok­uðu deildum. Geðhjálp tók undir þessar athuga­semdir umboðs­manns en benti jafn­framt á hug­mynda­fræði og með­ferð sem eru lyk­il­at­riði þegar kemur að því að draga úr þvingun og nauð­ung á geð­deildum.“

„Reynslan hefur sýnt að nauð­ung væri beitt víða þar sem veita á með­ferð með ýmsum hætti, þrátt fyrir skort á laga­heim­ildum til þess“

Ekki skýrar lagaheimildir bakvið verklag spítalans

Segir þá að Geðhjálp hafi ítrekað lýst yfir von­brigðum með það að í stað þess að ráð­ast í end­ur­skoðun á hug­mynda­fræði og með­ferð, auk bygg­ingar nútíma­legs með­ferð­ar­kjarna geðsviðs, sé verið að „lag­færa lögin svo það verði ekki lengur lög­brot að brjóta á rétt­indum not­enda þjón­ust­unnar.“

„Laga­heim­ilda hefur hingað til skort fyrir beit­ingu þving­ana á heil­brigð­is­stofn­unum hér á landi og því væri nær­tæk­ast að ætla að þeim væri þar af leið­andi ekki beitt. Reyndin hefur þrátt fyrir það verið sú að sjúk­lingar eru beittir ýmsum þving­unum og stjórn­ar­skrár­varin rétt­indi þeirra verið tak­mörkuð á einn eða annan hátt án þess að fyrir því hafi staðið laga­heim­ild. [...] Reynslan hefur sýnt að nauð­ung væri beitt víða þar sem veita á með­ferð með ýmsum hætti, þrátt fyrir skort á laga­heim­ildum til þess.“

Með til­vísan í skýrslu umboðs­manns Alþingis segir Geðhjálp að Land­spít­al­inn hafi sett sér­stakar verk­lags­reglur sem lúti meðal ann­ars að aðgerðum sem geti falið í sér inn­grip, þving­anir eða aðra vald­beit­ingu gagn­vart sjúk­lingum. „Og eru umfram það sem fylli­lega verður fellt undir með­ferð í merk­ingu laga um rétt­indi sjúk­linga og þar með þving­aða með­ferð í merk­ingu lög­ræð­islaga. Um er að ræða reglur og verk­lag sem spít­al­inn hefur ákveðið sjálfur og styðst ekki við skýrar laga­heim­ildir.“

Nefnir Geðhjálp úrræði svo sem ein­angrun, her­berg­is­dvöl, virkt eft­ir­lit, lík­am­lega þvingun eða þving­aða lyfja­gjöf, skerta úti­vist og hand­lagn­ingu – sem hafi verið rétt­lætt með vísan til með­ferð­ar­sjón­ar­miða. „Hvað er því til fyr­ir­stöðu að slíkar aðgerðir verði ekki not­aðar í refsiskyni en rétt­lættar með vísan til þess að um „með­ferð“ hafi verið að ræða?“ spyr Geðhjálp.

Innihaldslaust að tala um forgangsröðun taugaþroskaraskana

Annar þáttur í svari Íslands sem Geðhjálp setur út á er til­vísan í aðgerð­ar­á­ætlun í geð­heil­brigð­is­málum árin 2023-2027. „Það þarf ekki annað en að líta á fjár­mála­á­ætlun rík­is­ins til næstu fimm ára og fjár­lög þessa árs til að sjá að aðgerð­ar­á­ætlun er því miður að mestu leyti ófjár­mögnuð.“ Segir Geðhjálp í því sam­hengi að ljóst sé að fjár­magn sé ekki nægj­an­legt miðað við umfang.

Þá segir í svari Íslands segir einnig að áætlað sé að fólk með tauga­þroskarask­anir verði sett í for­gang. „Þetta svar er því miður inni­halds­laust og á sér enga stoð í raun­veru­leik­anum,“ segir í umsögn Geð­hjálpar og því bætt við að ekk­ert styðji þetta svar í fjár­lögum fyrir árið 2025 og fjár­mála­á­ætlun til næstu fimm ára. 

„Það er hins vegar fullt til­efni að setja mál­efni hóps­ins í algjöran for­gang því fjöl­mörg dæmi sýna að heil­brigðis- og félags­þjón­usta hafa algjör­lega brugð­ist þegar kemur að lög­bund­inni þjón­ustu þess­ara kerfa við þennan hóp. Það er grafal­var­legt.“

Geðhjálp setur einnig út á það að ekk­ert í fjár­lögum bendi til sóknar í mál­efnum barna, líkt og Ísland heldur fram ann­ars staðar í svörum sínum. „Það er ljóst að ára­löng van­ræksla mála­flokks­ins verður ekki leið­rétt á nokkrum mán­uðum enda inn­viða­skuldin mjög stór en mála­flokk­ur­inn hefði þurft miklu afger­andi við­bragð frá stjórn­völdum. Raun­veru­leiki næstu ára hvað varðar aðgerðir tengdum geð­heilsu barna fylgir ekki hinum fögru fyr­ir­heitum.“

Segja svarið til marks um hvítþvott

Annað svar sem Geðhjálp telur hvorki við­un­andi né í sam­ræmi við raun­veru­leik­ann er það að allar þving­un­ar­að­gerðir sem Ísland hafi inn­leitt frá Evr­ópu­sam­band­inu eða Sam­ein­uðu þjóð­unum, séu í fullu sam­ræmi við alþjóða­lög – þar á meðal alþjóð­lega mann­rétt­inda­samn­inga.

„Þrátt fyrir skort á laga­heim­ildum fyrir þeim inn­gripum, þving­unum og vald­beit­ingu sem við­hafðar hafa verið innan deilda og stofn­ana þar sem fólk fær þjón­ustu, þá er þeim beitt dag­lega.“

Segir þá að sam­kvæmt ákvæðum bæði stjórn­ar­skrár og alþjóð­legra mann­rétt­inda­sátt­mála sé óheim­ilt að beita nauð­ung eða tak­marka stjórn­ar­skrár­varin rétt­indi fólks nema fyrir því sé skýr laga­heim­ild.

„Jafnvel þótt laga­heim­ild væri til staðar gilda ströng skil­yrði um beit­ingu inn­gripa gagn­vart per­sónu­rétt­indum er varða líf og frelsi ein­stak­linga sem búin er sér­stök vernd í stjórn­ar­skrá. Á þetta hefur Geðhjálp bent um langt ára­bil og mót­mælir því að þving­un­ar­að­gerðir og nauð­ung sem ein­stak­lingar eru beittir dag­lega á Íslandi séu rétt­lættar með þeim hætti og í raun hvít­þvegnar eins og gert er í þessu svari Íslands.“

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár