Ætla að vernda þrjátíu prósent hafsins við Ísland

Jóhann Páll Jóhanns­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­mála­ráð­herra, segir Ísland ætla sér að vernda þrjá­tíu pró­sent hafs­ins í lög­sögu lands­ins fyrir árið 2028. Þetta kom fram í máli hans á Haf­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna sem fór fram í vik­unni.

Ætla að vernda þrjátíu prósent hafsins við Ísland

ÁHaf­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna greindi Jóhann Páll Jóhanns­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­mála­ráð­herra, frá því að Ísland ætl­aði að ná mark­miðum samn­ings­ins 30 fyrir 30 fyrir árið 2028. Þetta þýðir að Ísland muni skapa vernd­ar­svæði í hafi fyrir þrjá­tíu pró­sent hafs­ins í íslenskri lög­sögu. Í dag er hlut­fallið undir tveimur pró­sentum. 

Ráð­stefnan fór fram í Nice í Frakk­landi í vik­unni og lýkur í dag. Á henni koma saman þjóð­ar­leið­togar alls staðar að úr heim­inum, ásamt sam­tökum, aðgerðasinnum, fyr­ir­tækjum og öðrum hags­muna­að­ilum. Jóhann Páll sækir ráð­stefn­una fyrir hönd Íslands og flutti erindi um þær aðgerðir sem Ísland ætl­aði að ráð­ast í á ráð­stefn­unni. 

Jóhann Páll Jóhanns­sonUmhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra.

Varúðarráðstafanir vegna djúpsjávarnámuvinnslu

Í ræðu sinni sagði Jóhann Páll það mik­il­vægt að sýna varúð þegar kemur að djúp­sjáv­ar­námu­vinnslu og að passa þyrfti að raska engu sem ekki væri hægt að end­ur­heimta. Vís­inda­fólk hefur varað við djúp­sjáv­ar­námu­vinnslu þar sem rann­sóknir sýni að slíkt muni eyði­leggja vist­kerfi. Sum fyr­ir­tæki hafa lýst yfir áhuga á djúp­sjáv­ar­námu­vinnslu til þess að grafa eftir málmum á borð við nikkel, kóbalt og mangan. Íslensk umhverf­is­vernd­ar­sam­tök settu í aðdrag­anda ráð­stefn­unnar þrýst­ing á Jóhann Pál að taka afstöðu gegn djúp­sjáv­ar­námu­vinnslu og sýna þannig alþjóð­lega for­ystu. 

Jóhann Páll lýsti því einnig yfir að Ísland hyggð­ist full­gilda haf­rétt­ar­samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna um líf­fræði­lega fjöl­breytni en í þeim samn­ingi má meðal ann­ars finna ákvæði um umhverf­is­vernd á úthafi og reglu­verk sem styður ríki heims um að ná mark­miðum 30 fyrir 30. Samn­ing­ur­inn er eitt meg­in­mála sem rætt hefur verið á Haf­ráð­stefn­unni og voru ríki hvött til þess að skrifa undir eða full­gilda hann.

Samvinna Norðurlandanna

Norð­ur­löndin kynntu einnig á ráð­stefn­unni sam­eig­in­lega skuld­bind­ingu um að styðja við hlut­verk hafs­ins við verndun heilsu fólks og jarðar. „Sterk sam­vinna og nýsköpun eru nauð­syn­legar til þess að vernda hafið og til að tryggja sjálf­bær fæðu­kerfi í vatni,“ sagði Marianne Sivert­sen Nææs, sjáv­ar­út­vegs- og haf­mála­ráð­herra Noregs. 

„Norð­ur­löndin bera ábyrgð á að vera leið­andi og við munum leggja okkar af mörkum bæði með rann­sóknum og sam­starfi til að tryggja að hafið verði áfram upp­spretta mat­væla, starfa og líf­væn­legra sam­fé­laga,“ sagði Karen Ellemann, fram­kvæmda­stjóri Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar.

David AttenboroughSegir hafið mik­il­væg­asta stað á jörðu.

Áhrif Attenborough 

Mikil vit­unda­vakn­ing hefur verið í mál­efnum hafs­ins í aðdrag­anda ráð­stefn­unnar en hana má meðal ann­ars rekja til nýrrar heim­ild­ar­myndar, Ocean with David Attenborough, sem frum­sýnd var 8. maí síð­ast­lið­inn, á 99 ára afmæli Attenborough. Skilaboð hans á afmæli sínu voru þau að hafið sé mik­il­væg­asta svæði jarðar. 

Í mynd­inni má finna áður óséð efni af botn­vörpu­veiðum en þær hafa gríð­ar­lega mikil áhrif á þau svæði sem veitt er á. Veið­ar­færin skafa hafs­botn­inn og ryðja öllu og eyði­leggja sem á vegi þeirra verður. Í við­tali sem Vil­hjálmur krón­prins tók við Attenborough í aðdrag­anda Haf­ráð­stefnu SÞ sagð­ist Attenborough hrylla yfir því hvað við hefðum gert við hafs­botn­inn. Hann segir að ef slík eyði­legg­ing ætti sér stað á landi myndi fólk ekki láta það við­gang­ast. 

Í byrjun júní lögðu yfir­völd í Bret­landi til að stækka það haf­svæði þar sem ekki mætti nota botn­vörpur til veiða. Svæðið yrði stækkað úr 18 þús­und fer­kíló­metrum í 48 þús­und. Umhverf­is­ráð­herra Bret­lands, Steve Reed, sagði í tengslum við til­lög­una að „án taf­ar­lausra aðgerða yrði eyði­legg­ing hafs­ins óaft­ur­kræf.“ 

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár