Síðustu helgi fögnuðu Íslendingar því að heilagur andi hafi færst yfir lærisveinana, á meðan Rússar fóru hamförum í Úkraínu, Greta Thunberg var færð í ólögmætt varðhald í Ísrael og forseti Bandaríkjanna sýndi að hann er tilbúinn til að beita hervaldi á eigin þjóð. „Hann er þannig karakter,“ heyrðist í útvarpinu. „Hann hefur gaman af því að sýna vald sitt.“
Pistlahöfundur New York Times, sem á rætur að rekja til Rússlands, sagði: „Við erum að ganga inn í hættulegasta skeið Trump-tímabilsins: Normalíseringu.“
Síðar í vikunni var vinsælasta fréttin á Íslandi: Sigmar fluttur út úr húsinu.
Mörk hins leyfilega
Nú eru tæpir fimm mánuðir liðnir síðan Trump varð aftur forseti Bandaríkjanna. Eitt ár og átta mánuðir eru liðnir frá því að Ísraelsmenn lokuðu íbúa Gaza inni og réðust á þá. Þrjú ár og fjórir mánuðir eru síðan Rússar réðust inn í Úkraínu.
Þrír menn sem ganga svo harkalega fram af heiminum, að á endanum ræður fólk ekki við meira. Doðinn fylgir þegar dauðinn vofir yfir. Dauði barna og foreldra þeirra á Gaza. Rof sáttmála um mörk hins leyfilega. Hrun samfélags sem eitt sinn gaf sig út fyrir frelsi, en hefur tekið þá stefnu að frelsið sé fyrst og fremst þeirra sem eru við völd.
Kannski er það full dramatísk túlkun. Kannski er doði óhjákvæmilegur þegar áreitið er alltaf og alls staðar. Kannski þurfti þessa þrjá ekki til.
Á síðustu árum hefur áhorf á fréttir hrunið, með þeim afleiðingum að tíufréttir heyra sögunni til og Vikan varð vinsælli en fréttatími RÚV. Afþreyingarefni tekur yfir, vefmiðlar eru fullir af fréttum af ríka og fræga fólkinu og birta vikulegar myndir af berum bossum áhrifavalda sem þrá ekkert heitar en að fanga athyglina í smástund.
„Prufaðu að sleppa fréttum í eina viku. Skrifaðu heldur niður skemmtilegar fréttir um það jákvæða sem gerist í lífi þínu.“ Þannig er undirfyrirsögnin á greininni Nokkrar einfaldar leiðir að hamingjunni, sem birt var á Heilsutorgi.
Vertu besta útgáfan af sjálfum þér, en hættu að fylgjast með þjáningum þeirra sem fjallað er um í fréttum.
Vaxandi menningarleg áhersla er á vellíðan og persónulegan þroska, bækur um hamingjuna flæða yfir markaðinn, sjálfshjálp er á meðal vinsælustu flokkanna í útgáfubransanum og vinsælasta námskeið Yale fyrr og síðar fjallar um: Hamingjuna.
Líður þér ekki vel?
Brosandi ráðherra
Íslensk kona sem er búsett í Los Angeles lýsti ótta leigubílstjóra sem keyrði hana heim um helgina. Konan talaði spænsku, var dökk á hörund og of fátæk til að vera heima en skelfingu lostin við að þurfa að vera úti á meðal fólks. Vegabréfið var í vasanum og allir pappírar tiltækir ef svo færi að hún yrði næst. Ef hún yrði skyndilega tekin af Innflytjendastofnun Bandaríkjanna.
Maður var á leið frá vinnu þegar hann var handtekinn. Síðan var hann sendur til El Salvador, ásamt 230 öðrum mönnum. Enginn þeirra fékk réttláta málsmeðferð. Þegar í ljós kom að mistök höfðu verið gerð við brottvísun mannsins, sem hafði hlotið vernd í Bandaríkjunum, hóf forsetinn rógsherferð gegn honum, meðal annars á samfélagsmiðlum Hvíta hússins. Þegar maðurinn komst loks aftur til Bandaríkjanna var hann dreginn fyrir dóm vegna ásakana um aðild að skipulagðri glæpastarfsemi.
Í El Salvador stillti innanríkisráðherra Bandaríkjanna sér upp fyrir framan myndavélarnar í fangelsinu. Þar er þröngt, hreinlæti ábótavant og takmarkaður aðgangur að hreinu drykkjarvatni. Ljós eru kveikt allan sólarhringinn og fangar dvelja saman í stórri álmu, sofa á stálplötum og fá hvorki dýnur né kodda. Fangarnir anda aldrei að sér fersku lofti, loftkæling er takmörkuð, hitinn getur farið upp í 35 gráður. Aðstæður í fangelsi eru sérstaklega erfiðar og hefur verið talað um það sem svarthol mannréttinda. Á bak við brosandi ráðherrann voru innilokaðir fangarnir. „Þessi aðstaða er tól í verkfærakassa okkar sem við munum nota,“ áréttaði ráðherrann.
Allt í einu var veruleiki íslenskrar konu í Bandaríkjunum sá að nágrannar fylgdust með hver fyrir annan, því verið er að taka fólk af götunni án dóms og laga. „Þessir menn labba hérna um eins og einhverjar rolur með grímur,“ sagði Dröfn Ösp Snorradóttir-Rozas og átti við innflytjendaeftirlitið.
Eftir rassíu í Los Angeles þar sem yfir 100 einstaklingar voru handteknir brutust út mótmæli. Forsetinn nýtti tækifærið til að fara gegn ríkisstjóranum og beita þjóðvarðliði, herþyrlum og táragasi gegn almennum borgurum. Dröfn sagði skelfilegt að sjá skriðdreka í miðri borg, vestrænni borg þar sem lýðræði á að vera til staðar. „Þetta eru bara einhverjar fasískar leikaðferðir.“
„Við ætlum að frelsa Los Angeles,“ sagði forsetinn. Ríkisstjórnin sé óhrædd við að ganga lengra.
Sem ætti ekki að koma á óvart. Í aðdraganda kosninga boðaði hann að hann myndi beita hernum til að losna við glæpi úr bandarískum borgum. „Við þurfum ekki að bíða lengur.“
Bad bitch í Reykjavík
Yfirlýst stefna forsetans er að slá met í brottvísun óskráðra innflytjenda.
Rasisarnir valdeflast og rísa upp.
Líka hér á litla Íslandi.
Ungur tónlistarmaður heldur þrumuræðu um gildi íslenskrar menningar og ógnina sem stafar af útlendingum. Hann er klæddur bol sem er merktur dóttur fyrrverandi forsætisráðherra. Bad bitch í Reykjavík er vinsælasta lagið hans.
„Án þess að fara of djúpt í uppsprettu illskunnar.“
Áður hafði tengdafaðir hans vakið undrun heimsins með viðbrögðum sínum við árásum Ísraela.
Aðeins byrjunin
Sérfræðingar í fasisma yfirgefa Bandaríkin. Í skoðanagrein sem birtist í New York Times lýstu þeir afstöðu sinni: Stjórnarskrárkreppa er skollin á. Lærdómurinn af 1933 er að þú ferð fyrr en seinna.
Nemandi við Tufts-háskólann var numinn á brott á miðri götu, vegna þess að hún var meðhöfundur að grein sem birtist í skólablaðinu. Einn prófessorinn sagðist ekki vita hvað hún myndi gera ef grímuklæddir menn myndu grípa nemanda sinn. Hvort hún myndi öskra, reyna að draga af þeim grímuna, toga þá af honum, taka atvikið upp á myndband eða verða hrædd og hlaupa í burtu.
Um er að ræða vísvitandi valdbeitingu, ónauðsynlega, aðeins til þess fallna að skapa gjá á milli okkar og þeirra, sögðu sérfræðingarnir.
„Þú veist að þú býrð í fasísku ríki þegar þú þarft stöðugt að fara yfir ástæður þess að þú ert öruggur í huganum.“
Að vita ekki hver er næstur er lamandi ástand.
Þessi hugmynd um að valdhafar geti gert hvað sem þeir vilja við þig og þú hefur engin úrræði. Þar sem allt og allir geta gengið kaupum og sölum. „Ég er staðráðinn í að kaupa og eiga Gaza,“ sagði Trump, sem krafðist einnig endurgreiðslu fyrir stuðning við Úkraínu.
Það er ekkert rétt eða rangt þegar réttlæti og sannleikur eru orðin að söluvöru sem ganga kaupum og sölum.
Forsetinn er í Epstein-skjölunum, hrópaði Elon Musk sótillur. Eyddi síðan færslunni.
Forseti Bandaríkjanna og hans bandamenn segja bara það sem hentar hverju sinni. Stöðug vinna felst í því að fara yfir hvað sé rétt og rangt. Síðan er ráðist á alla þá sem veita aðhald: Fjölmiðla, fræðimenn og dómara.
Á nokkurra mánaða tímabili hafa réttindi jaðarhópa verið afnumin, hundruð manna hafa verið fluttir frá Bandaríkjunum án málsmeðferðar, stórfelld hreinsum hefur verið gerð á FBI og fleiri lykilstofnunum samfélagsins, háskólar hafa sætt refsiaðgerðum, fjölmiðlar málsóknum, aðgengi þeirra að Hvíta húsinu hefur verið takmarkað og vald dómara véfengt. Þingið veitir standandi lófaklapp og forsetinn útilokar ekki að sitja þriðja kjörtímabilið.
„Við erum rétt að byrja,“ segir forsetinn.
Hvert hann leiðir bandarískt samfélag veit enginn. Sérfræðingarnir lýstu því hvernig mörkin eru smám saman færð til, eitt skref í einu, þar til fólk fer að finna fyrir því að þrengt hefur verið að frelsi þeirra. „Þú þarft stöðugt að spyrja þig: Er þetta í lagi?“
Þegar staðan hefur verið normalíseruð, eru engin takmörk fyrir því hvað hægt er að gera.
Reiðar konur
Birtingarmynd þess er hvergi skýrari en á Gaza, þar sem fólk er lokað inni, það er svelt og skotið er á það þegar það sækist eftir mataraðstoð. Fólk er hrakið af heimilum sínum, síðan úr flóttamannabúðum og aftur og aftur og aftur, þar til það er ekkert eftir. Ráðist er á fólki úr lofti, á landi og af sjó.
Minnst 55 þúsund Palestínubúar hafa verið drepnir frá því að árásirnar hófust og 127 þúsund eru slasaðir. Í síðustu viku voru 497 drepnir, þar af þrír hjálparstarfsmenn og fjórir blaðamenn.
Þegar Greta Thunberg og skipsfélagar hennar reyndu að sigla með hjálpargögn til Gaza voru þau færð í varðhald í Ísrael. Hún sagði leiðangurinn svar við „kerfisbundinni hungursneyð yfir tveggja milljón manna og þjóðarmorði í beinni útsendingu“. Þótt brýn þörf væri fyrir aðstoð á Gaza hefði hún einnig haft annan tilgang: „Að sýna samstöðu og segja að við sjáum ykkur. Við sjáum hvað er að gerast og við getum ekki sætt okkur við að vera bara vitni að þessu öllu og gera ekkert.“
Aðspurð út í ummæli Bandaríkjaforseta, sem lýsti henni sem reiðri manneskju og lagði til að hún færi á námskeið í reiðistjórnun, svaraði hún því til að heimurinn þyrfti á fleiri reiðum konum að halda, ekki síst í ljósi alls sem er að gerast.
Tekur ekki langan tíma
Það þarf ekki að taka langan tíma að brjóta niður borgaraleg réttindi. Þar sem harðast er gengið fram gerist það jafnvel á einum degi, nokkrum vikum eða mánuðum.
„Það sem áður var leyfilegt varð skyndilega bannað. Það var eins og ljósin væru slökkt á einni nóttu,“ segir í Persepolis, sjálfsævisögulegri myndabók eftir íransk-franska rithöfundinn Marjane Satrapi.
Konum var fyrirskipað að bera slæður, opinberar skólabækur voru endurskrifaðar, fjölmiðlar ríkisvæddir, fólk var handtekið vegna meintrar andstöðu við stjórnvöld og pólitískir andstæðingar pyntaðir, jafnvel líflátnir.
Á örfáum mánuðum hafði allt breyst.
Með skrifum sínum dró höfundurinn upp skýra mynd af því hvernig óttinn við reglur um útlit og hegðun kvenna kæfðu stærri og mikilvægari spurningar um réttlæti. „Stjórnvöld höfðu skilið að manneskja sem fer út úr húsi og spyr sjálfa sig:
Eru buxurnar mínar nógu síðar? Er slæðan mín á réttum stað? Sést förðunin? Munu þeir húðstrýkja mig?
Spyr sig ekki lengur:
Hvar er hugsanafrelsið mitt? Hvar er tjáningarfrelsið mitt? Er líf mitt lífvænlegt? Hvað er að gerast í pólitískum fangelsum?“
Tungumálið sem tæki
Á undanförnum árum hefur valdamesta fólk heims eignast ný vopn til að ná tökum á umræðunni í gegnum samfélagsmiðla, þar sem áróður dynur á fólki án þess að það átti sig endilega á því.
Tungumálið er öflugt tæki til að hafa áhrif á tilfinningar, hugsanir og hegðun. Hvað þá þegar orðræða, myndmál og táknrænar athafnir eru sniðin að því að senda sömu skilaboðin.
Ein leið til að halda völdum er að stuðla að sundrungu samfélagshópa. Með því að espa upp átök á milli almennra borgara er verið að veikja fyrirstöðuna og hindra að þeir sameinist í andstöðu gegn ríkjandi valdhöfum.
Í pólitísku andrúmslofti samtímans er sannleikurinn lítils virði. Staðreyndir eru hunsaðar, hlegið er að þeim eða þær stimplaðar sem falsfréttir. Falsfréttum er dreift til að vekja tilfinningar, skapa hughrif og kalla fram viðbrögð. Fólki er haldið ringluðu, ráðalausu og fyllt vanmætti. Sífellt erfiðara verður að greina hvað er raunverulegt og hvað ekki. Ráðamenn komast upp með réttlætingar, útúrsnúninga og afvegaleiðingu.
Uppnefni, upphrópanir og endurteknar fullyrðingar sem byggðar eru á rangfærslum eru til þess fallnar að höfða til tilfinninga þeirra sem fylgjast með.
Verið hrædd. Við munum bjarga ykkur.
Við munum bjarga ykkur frá Úkraínumönnum, Palestínumönnum og innflytjendum. Trans fólki og konum. Friðsömum mótmælendum og Gretu Thunberg.
„Við ætlum að frelsa Los Angeles,“ sagði forsetinn, þegar hann sendi hermenn inn í borgina.
Ótti eykur líkur á hóphugsun og hjarðhegðun. Ótti sviptir fólk gagnrýnni hugsun. Í slíku ástandi er það ekki endilega sá besti eða klárasti sem leiðir för heldur hinn sterkasti. Sá sem er tilbúinn til að ganga lengst.
Fyrr í vikunni fékk forsetinn herinn til að baula á pólitíska andstæðinga sína. Fram undan er hersýning, á afmæli forsetans um helgina, í anda Norður-Kóreu.
„Sjáðu hvað gerðist. Er þetta ekki brjálað?“ spurði hann á dögunum.
Svo slekkur fólk á fréttum og sekkur sér ofan í sjálfshjálparbækur.
Athugasemdir (2)