Setja spurningarmerki við aðkomu Landsvirkjunar að frumvarpi

Á sama tíma og Jóhann Páll ráð­herra mælti fyrir umdeildu frum­varpi um breyt­ingar á raf­orku­lögum, fund­uðu Lands­virkjun og umhverf­is­ráðu­neytið um bráða­birgða­leyfi. Frum­varpið hefur sætt gagn­rýni þar sem ríkið og Lands­virkjun eru í dóms­máli um Hvamms­virkjun, sem hér­aðs­dómur felldi virkj­ana­leyfi úr gildi í jan­úar.

Nátt­úru­sam­tökin Nátt­úru­grið gagn­rýna Jóhann Pál Jóhanns­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra fyrir tvo fundi sem ráðu­neytið átti með starfs­fólki Lands­virkj­unar sama dag og dag­inn eftir að hann lagði frum­varpið fram á Alþingi sem ætlað er að bregð­ast við því að virkj­ana­leyfi Hvamms­virkj­unar var fellt úr gildi af dóm­stólum.

Snæbjörn Guð­munds­son, for­maður Nátt­úru­griða og jarð­fræð­ingur, segir að frum­varpið veki „áleitnar spurn­ingar um þrí­skipt­ingu valds“, þar sem það gæti í sjálfu sér snúið nið­ur­stöðu dóm­stóla við. Lands­virkjun og ríkið hafa áfrýjað dómnum og bíður málið því frek­ari með­ferðar dóm­stóla.  

„Stjórnsýslulegt hneyksli“

„Ráðu­neytið er að makka með samá­frýj­anda sínum sem er beint gegn úrskurði hér­aðs­dóms þar sem land­eig­endur lögðu ríkið og Lands­virkjun,“ segir Snæbjörn um fundi ráðu­neyt­is­ins og Lands­virkj­unar. Hann segir að um „stjórn­sýslu­legt hneyksli“ sé að ræða. Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands hafa tekið undir með Nátt­úru­grið en í umsögn þeirra segir: „Lands­virkjun virð­ist vera alveg inni á gafli hjá ráð­herra fyrir og …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Varðandi virkjanir þá velti ég stundum fyrir mér hvað við munum gera til þess að búa til meira rafmagn þegar það er búið að virkja allar sprænurnar á landinu. Og í framhaldi af svarinu; getum við ekki gert ÞAÐ núna og slept því að eiðileggja allar sprænurnar?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár