„Á ekki möguleika á að fá réttláta málsmeðferð“

Nauðg­un­ar­kæran var felld niður, en umboðs­maður Alþingis tekur undir aðfinnslur við rann­sókn lög­reglu, varð­andi atriði sem hefðu getað skipt máli við sönn­un­ar­mat. Eftir athugun á máli Guðnýjar S. Bjarna­dóttur sendi umboðs­maður Alþingis einnig rík­is­sak­sókn­ara ábend­ingu varð­andi varð­veislu gagna í saka­málum og árétt­aði mik­il­vægi þess að ákær­andi hafi öll gögn undir höndum þegar hann tekur afstöðu.

„Á ekki möguleika á að fá réttláta málsmeðferð“
Við­ur­kenn­ing Guðný segir að léttir felist í nið­ur­stöðu umboðs­manns en að það sé sárt að sitja uppi með nið­ur­stöð­una engu að síður. Mynd: Golli

„Ég á ekki mögu­leika á að fá rétt­láta máls­með­ferð,“ segir Guðný Bjarna­dóttir, „því kerfið við­ur­kennir ekki mis­tök.“ Nauðg­un­ar­kæra sem Guðný lagði fram var lögð niður af hálfu rík­is­sak­sókn­ara, sem fékk nú í vik­unni ábend­ingar frá umboðs­manni Alþingis vegna máls­ins. En þó að ábend­ing­arnar séu til­komnar vegna með­ferðar á nauðg­un­ar­kæru Guðnýjar breyta þær engu um nið­ur­stöð­una fyrir hana, heldur er til­tekið að þeim sé komið á fram­færi með það fyrir augum að rík­is­sak­sókn­ari geti haft þessi atriði í huga eft­ir­leiðis. 

Nið­ur­staðan kom Guðnýju á óvart. Hún sendi erindi til umboðs­manns Alþingis þann 14. apríl 2024 og vissi ekki af því að málið væri þar til með­ferðar. Ekki fyrr en hún fékk nið­ur­stöð­una allt í einu í tölvu­pósti, nú í vik­unni, rúmu ári síðar. Hún var í vinn­unni þegar tölvu­póst­ur­inn barst og var veru­lega brugðið. „Það er eng­inn til böf­fer. Allt í einu kom tölvu­póstur upp úr þurru.“ 

Þar kom …

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    1. gr.
    [Mannréttindasáttmáli Evrópu hefur lagagildi á Íslandi, en með honum er átt við ákvæði eftirfarandi samninga:
    1. [Samnings frá 4. nóvember 1950 um verndun mannréttinda og mannfrelsis, með áorðnum breytingum samkvæmt samningsviðauka nr. 11 frá 11. maí 1994 við samning um verndun mannréttinda og mannfrelsis varðandi endurskipulagningu á eftirlitskerfi samningsins, ásamt viðauka, með áorðnum breytingum samkvæmt samningsviðauka nr. 14 frá 13. maí 2004 við samning um verndun mannréttinda og mannfrelsis um breytingu á eftirlitskerfi samningsins og með áorðnum breytingum samkvæmt samningsviðauka nr. 15 frá 24. júní 2013 um breytingu á samningi um verndun mannréttinda og mannfrelsis.] 1)
    2. Samningsviðauka frá 20. mars 1952 við samninginn um verndun mannréttinda og mannfrelsis (samningsviðauka nr. 1), með áorðnum breytingum samkvæmt samningsviðauka nr. 11.
    3. Samningsviðauka nr. 4 frá 16. september 1963 við samninginn um verndun mannréttinda og mannfrelsis um tiltekin önnur mannréttindi en greinir þegar í samningnum og fyrsta viðauka við hann, með áorðnum breytingum samkvæmt samningsviðauka nr. 11.
    4. Samningsviðauka nr. 6 frá 28. apríl 1983 við samninginn um verndun mannréttinda og mannfrelsis varðandi afnám dauðarefsingar, með áorðnum breytingum samkvæmt samningsviðauka nr. 11.
    5. Samningsviðauka nr. 7 frá 22. nóvember 1984 við samninginn um verndun mannréttinda og mannfrelsis, með áorðnum breytingum samkvæmt samningsviðauka nr. 11.
    [6. Samningsviðauka nr. 13 frá 3. maí 2002 við samninginn um verndun mannréttinda og mannfrelsis, varðandi afnám dauðarefsinga í öllum tilvikum.] 2)
    [Samningur um verndun mannréttinda og mannfrelsis og samningsviðaukar nr. 1, 4, 6, 7 og 13, með áorðnum breytingum samkvæmt samningsviðaukum nr. 11, 14 og 15, eru birtir sem fylgiskjal með lögum þessum.] 1)] 3)
    1)L. 118/2015, 1. gr. 2)L. 128/2003, 1. gr. 3)L. 25/1998, 1. gr.
    1
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    I. kafli. Hlutverk lögreglu o.fl.
    1. gr. Hlutverk.
    1. Ríkið heldur uppi starfsemi lögreglu.
    2. Hlutverk lögreglu er:
    a. að gæta almannaöryggis og halda uppi lögum og reglu, leitast við að tryggja réttaröryggi borgaranna og vernda eignarrétt, opinbera hagsmuni og hvers konar lögmæta starfsemi,
    b. að stemma stigu við afbrotum og koma í veg fyrir athafnir sem raska öryggi borgaranna og ríkisins,
    c. að vinna að uppljóstran brota, stöðva ólögmæta háttsemi og fylgja málum eftir í samræmi við það sem mælt er fyrir um í lögum um meðferð [sakamála] 1) eða öðrum lögum,
    d. að greiða götu borgaranna eftir því sem við á og aðstoða þá þegar hætta steðjar að,
    e. að veita yfirvöldum vernd eða aðstoð við framkvæmd starfa sinna samkvæmt fyrirmælum laga eða venju eftir því sem þörf er á,
    f. að starfa í samvinnu við önnur stjórnvöld og stofnanir sem hafa með höndum verkefni sem tengjast starfssviði lögreglu,
    g. að sinna öðrum verkefnum sem henni eru falin í lögum eða leiðir af venju.
    1)L. 88/2008, 234. gr.

    70. gr.
    [Öllum ber réttur til að fá úrlausn um réttindi sín og skyldur eða um ákæru á hendur sér um refsiverða háttsemi með réttlátri málsmeðferð innan hæfilegs tíma fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstóli. Dómþing skal háð í heyranda hljóði nema dómari ákveði annað lögum samkvæmt til að gæta velsæmis, allsherjarreglu, öryggis ríkisins eða hagsmuna málsaðila.
    Hver sá sem er borinn sökum um refsiverða háttsemi skal talinn saklaus þar til sekt hans hefur verið sönnuð.] 1)
    1)L. 97/1995, 8. gr.

    M.S.E. 13. gr. Réttur til raunhæfs úrræðis til að leita réttar síns.
    Sérhver sá sem á er brotinn sá réttur eða það frelsi hans skert, sem lýst er í samningi þessum, skal eiga raunhæfa leið til að ná rétti sínum fyrir opinberu stjórnvaldi, og gildir einu þótt brotið hafi framið opinberir embættismenn.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár