Fyrir áramót varði tólf ára gamall drengur löngum stundum á bókasafni Breiðagerðisskóla vegna þess að honum var meinað að sitja tíma með samnemendum sínum. Ástæðan var sú að drengurinn skrifaði skólastjóranum bréf ásamt vini sínum þar sem þeir kvörtuðu undan óþægilegri framgöngu kennara.
Í kjölfarið var báðum drengjunum vísað úr tímum hjá kennaranum. Um hálfum mánuði síðar baðst annar drengurinn afsökunar og fékk þá að koma aftur inn í tíma. Hinum var haldið utan kennslustunda hjá þessum kennara í rúma tvo mánuði, án þess að nokkur tilraun væri gerð til að sannreyna réttmæti ásakana barnanna. Eftir að hafa árangurslaust leitað lausna hjá skólastjórnendum, Norðurmiðstöð, skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar og Landsteyminu kærðu foreldrar drengsins að lokum til lögreglu, enda málið farið að hafa mikil áhrif á líðan og velferð barnsins.
Erfiður vetur
„Ég vil bara að þetta hætti,“ sagði tólf ára gamall drengurinn í samtali við Heimildina í vor, …
Sýnist kerfið ekki hafa batnað neitt til muna síðan þá...
Þetta er ömurlegt mál og var því klúðrað strax af skólastjórnendum - FYRIR þetta skólaár! ALLA sem stóðu sig ekki gagnvart börnunum, í þessu máli, á að leysa frá störfum og meina þeim að starfa aftur með málefni barna - skömmin er alfarið þeirra!!!