„Til þess að lifa þurfum við að deyja“

Þau eru upp­eld­is­fræð­ingur, lög­fræð­ingur, hag­fræð­ingur og verk­fræð­ingur að mennt, koma vel fyrir og bera ekki með sér að vera sér­fræð­ingar í glæpum. Það hafa þau Lilja Sig­urð­ar­dóttir, Ragnar Jónasson, Yrsa Sig­urð­ar­dóttir og Satu Rämö samt gert og slegið í gegn – bæði hér heima og erlendis. Þau ræða hinn ful­komna glæp, ótt­ann, dauð­ann og sorg­ina.

„Til þess að lifa þurfum við að deyja“
Satu, Yrsa, Lilja og Ragnar eru allt höf­undar sem hafa verið þýddir á mörg tungu­mál. Mynd: Golli

Eftir að hafa galdrað fram þús­undir blað­síðna um glæpi, dul­ræna atburði og ráð­gátur sem leys­ast, situr þetta rólyndis fólk hér saman, þrjár konur og einn karl, og reynir að svara spurn­ing­unni: Hver er hinn full­komni glæpur?

Yrsa: „Ætli það væri ekki glæpur sem eng­inn veit að hefur verið fram­inn?“

Lilja: „Það er er nátt­úr­lega glæpur sem við­kom­andi kemst upp með.“ 

Satu: „Það er þegar við­kom­andi fremur ekki glæp­inn fyrir sjálfan sig heldur vegna rétt­lætis.“

Lilja: „Ef rit­höf­und­ur­inn ætl­ast til að les­and­inn standi með glæpa­mann­inum þá verður að vera góð ástæða fyrir glæpnum.“

Satu: „Í bók skiptir máli að fá les­and­ann með. Fremja ekki glæp, bara vegna þess að það er svo gaman að drepa fólk. Morð­ing­inn er að fremja glæp út af ein­hverju og les­and­inn skilur af hverju.“ 

Ragnar: „Hann er bara á blaði. Það er nóg af hræði­legum hlutum í heim­inum.“

Hvað þarf að hafa í huga?

Margt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár