Hið kalda menningarstríð

Kalda stríð­inu er löngu lokið. En annað hug­mynda­fræði­legt stríð hefur verið gegn­um­gang­andi síð­ustu ára­tug­ina, og virð­ist langt því frá lokið.

Hið kalda menningarstríð
Einu sinni var heim­ur­inn full­kom­inn. Ef þú spyrð kristna íhalds­menn sem dvöldu í Banda­ríkj­unum í kringum 1980. Mynd: Heimildin / Jón Ingi

Þegar Sólveig Anna Jóns­dóttir flutti eldræðu sína um „vók“ á Sam­stöð­inni í apríl, óraði hana lík­lega ekki fyrir að hún væri að slaufa góða fólk­inu í leið­inni. Ræðan kom sem and­svar við gagn­rýni rit­höf­und­ar­ins Hall­gríms Helga­sonar sem lýsti yfir furðu á and­stöðu verka­lýðs­for­ingj­ans við „vókið“ og sagði hana við­hafa trumpíska orð­ræðu. Ummæli sem hann baðst afsök­unar á í sama þætti, eftir að Sólveig Anna sagði gagn­rýni hans hluta af hefð­bund­inni kæl­ingu góða fólks­ins þar sem þeir sem and­mæla vók­inu eru for­dæmdir jafn­skjótt. Þetta er allt mats­kennt, en án efa hluti af menn­ing­ar­stríði sem hefur ríkt í ára­tugi.

Sólveig Anna Jóns­dóttirSólveig Anna hitti á snöggan blett þegar hún skaut sér inn í menn­ing­ar­stríðið.

Menn­ing­ar­stríðið, eins og það birt­ist í dag, er að mestu valda­bar­átta á milli íhalds­sem­innar og hinna frjáls­lyndu. Úr verður karní­valskur glund­roði þar sem frjáls­lyndir upp­nefna íhalds­menn­ina sem fas­ista, ras­ista og kven­hatandi for­dóma­fulla íhalds­punga. …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • LVL
    Lárus Viðar Lárusson skrifaði
    Var ekki innrásin á Krímskaga 2014?
    3
  • GKB
    Guðmundur Karl Björnsson skrifaði
    Nokkuð gott yfirtlit nema þetta með Bítlana/68 kynslóðina, sem var í reynd hvorutveggja í senn framfara - og afturhaldsafl. Afturhaldið fólst í andstöðu við vísindi og tækniþróun og afturhvarfs til alskonar hindurvitna, svo sem stjörnuspeki, kristala,sálnaflakks svo fátt eitt c nefnt. Þetta tímabil hefur stundum verið kallað The Unenlightenment. Allt var þetta gerfispeki byggð á óskhyggju og lygum, líkt og hjá hægri öfgaöflunum Bandaríkja nútímans.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár