Hollensk loftslagsamtök höfða nýtt mál gegn Shell

Hollensk lofts­lagsam­tök, Mili­eu­defensie, hafa höfðað nýtt mál gegn Shell til að stöðva fjár­fest­ingar í nýjum olíu- og gaslindum. Þau segja fyr­ir­tækið brjóta hol­lensk lög og að aðgerðir þess gangi gegn mark­miðum Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins.

Í olíuleit
Í olíu­leit Samkvæmt Mili­eu­defensie á Shell að fullu eða að hluta 700 olíu- og gasverk­efni sem enn eru í vinnslu Mynd: EPA

Hollensk nátt­úru­vernd­ar­sam­tök, Mili­eu­defensie, til­kynntu í dag að þau hefðu höfðað nýtt mál gegn olíu­fyr­ir­tæk­inu Shell. Mark­miðið er að koma í veg fyrir að félagið fjár­festi í nýjum olíu- og gaslindum.

Í nóv­em­ber síð­ast­liðnum felldi áfrýj­un­ar­dóm­stóll í Hollandi úr gildi tíma­móta­úr­skurð frá 2021, þar sem Shell var gert að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda um 45 pró­sent fyrir árið 2030. Dóm­stóll­inn féllst þó á að Shell bæri að leggja „við­eig­andi fram­lag“ til mark­miða Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins, án þess þó að setja fyr­ir­tæk­inu skýr mark­mið um losun.

Par­ís­ar­sam­komu­lagið kveður á um að öll ríki skuli draga úr losun kolefnis til að tak­marka hlýnun jarðar við tvær gráður á Celsíus, með það að mark­miði þó að haldan aftur að hækkun um 1,5 gráður.

Í bréfi til Shell sakar Mili­eu­defensie fyr­ir­tækið um að brjóta gegn laga­legri skyldu sinni sam­kvæmt hol­lenskum lögum með því að halda áfram að fjár­festa í nýjum olíu- og gasverk­efnum.

…
Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár