SUND Markmið Styrmis, Alex­and­ers og Bjarka er að opna úti­bað­að­stöðu í New York borg á næsta ári. Þar geta gestir farið í heita og kalda potta ásamt því að sækja gufu­böð. Mynd: SUND

Kynna íbúa New York fyrir íslenskri sundmenningu

Þrír íslenskir vinir vilja gera úti­bað­að­stöðu aðgengi­lega í New York-borg. Þeir segja sund stóran hluta af menn­ingu Íslend­inga og stefna á að opna SUND í stór­borg­inni á næsta ári. Fram­kvæmda­stjór­inn, Styrmir Elí Ing­ólfs­son, segir mik­il­vægt að vöru­merkið sé inn­blásið af íslenskum venjum og siðum.

Vinirnir Styrmir Elí Ing­ólfs­son, Alex­ander Breki Jónsson og Bjarki Sig­urð­ar­son ætla að opna úti­bað­að­stöðu á Man­hattan á næsta ári. Hug­myndin varð til þegar þeir sátu saman í gufu­baði í New York og hugs­uðu heim til Íslands. 

Heitapottaspjall sem varð að veruleika

„Við erum að opna fyrstu úti­bað­stöð­una að íslenski fyr­ir­mynd hér á Man­hattan,“ segir Styrmir Elí, með­stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri SUND. Nokkur ár eru síðan vin­irnir þrír, Styrmir, Alex­ander og Bjarki, fóru að ræða það sín á milli hvort það væri mögu­leiki á að opna úti­bað­að­stöðu. Það var svo í des­em­ber á síð­asta ári sem þeir ákváðu að láta slag standa og gera draum­inn að veru­leika. 

„Fólk er að kveikja á því hvað reglu­leg sána­notkun gerir fyrir mann heilsu­fars­lega og and­lega

Allir höfðu þeir þá búið í New York í nokkurn tíma. Styrmir Elí lauk námi í leik­list frá Stella Adler Studio of Acting í New York. Alex­ander Breki, fjár­mála­stjóri SUND, er mennt­aður fjár­mála­verk­fræð­ingur frá Columbia-háskóla og vann áður sem ráð­gjafi hjá Simon-Kucher. Bjarki, rekstr­ar­stjóri, er tón­list­ar­fram­leið­andi í dúó­inu Ra:tio og mennt­aður í stjórnun og stefnu­mótun frá Columbia-háskóla og Háskóla Íslands. Hann hefur meðal ann­ars unnið fyrir UN Women, Evr­ópu­sam­bandið og Brú Strategy.

KynningAlex­ander Breki fjár­mála­stjóri og Bjarki rekstr­ar­stjóri kynna SUND fyrir gestum í kynn­ing­ar­teiti fyr­ir­tæk­is­ins.

„Í byrjun var þetta heita­potta­spjall,“ segir Styrmir og brosir. „Hug­myndin kom upp­runa­legu í sánu. Við stundum allir sund og gufu­böð af miklum krafti þegar við erum heima á Íslandi.“ Þríeykið fann enga úti­bað­að­stöðu í stór­borg­inni og aðgangur að lík­ams­rækt­ar­stöðvum með gufu­böðum kost­aði sitt. „Við fórum þá að ræða af hverju það væri ekki aðstaða þar sem við gætum stundað þetta oftar,“ útskýrir Styrmir. 

Bjóða upp á gufu­böð að íslenskum siðFram­kvæmda­stjór­inn Styrmir Elí segir aukna vit­und meðal fólks í New York um ávinn­ing þess að stunda gufu­böð reglu­lega.

Hug­myndin um úti­bað­að­stöðu rímar vel við aukna vit­und Banda­ríkja­manna um heild­ræna nálgun á heilsu. „Fólk er að kveikja á því hvað reglu­lega sána­notkun gerir fyrir mann heilsu­fars­lega og and­lega,“ segir Styrmir. 

Milljón dollara fjármögnun

Í fyrstu voru vin­irnir ekki vissir um að hug­myndin væri rekstr­ar­hæf enda vanir ódýru vatni hér heima á Íslandi. „En eftir að hafa kannað það, þá komumst við að því að það er vel rekstr­ar­hæft,“ segir Styrmir sem bendir á að leigu­verð á iðn­að­ar­hús­næði hafi lækkað tölu­vert síðan heims­far­ald­ur­inn reið yfir. Því skap­að­ist gat á mark­aðnum fyrir Íslend­ing­ana til þess að láta til sín taka. „Fer­metra­verðið á atvinnu­hús­næði er víða ekki mikið dýr­ara en í Reykja­vík,“ útskýrir Styrmir. „Það er ákveðið móment í mark­aðnum til að fara og skapa ann­ars konar verð­mæti í iðn­að­ar­hús­næði.“

„Fer­metra­verð á atvinnu­hús­næði er víða ekki mikið dýr­ara en í Reykja­vík

Þegar Heim­ildin náði tali af Styrmi voru félag­arnir að leggja loka­hönd á eins milljón doll­ara fjár­mögnun í fyrsta fasa fjár­mögn­un­ar­ferl­is­ins, sú upp­hæð sam­svarar um 130 millj­ónum íslenskra króna. Þá hafa Styrmir, Alex­ander og Bjarki einnig skrifað undir samn­ing við dönsku arki­tekta­stof­una Bjarke Ingels Group. „Þau eru að taka að sér arki­tektúr og hönnun,“ segir Styrmir. „Sú reynsla og þekk­ing sem þau koma með inn á borðið er mjög verð­mæt.“

Styrmir Elí Ing­ólfs­sonFram­kvæmda­stjóri SUND segir hug­mynd­ina að fyr­ir­tæk­inu hafa komið þegar vin­irnir þrír fundu ekki úti­bað­að­stöðu í stór­borg­inni og sökn­uðu þess að kom­ast í heita gufu.

Fyr­ir­tækið er því á leið í næsta fasa fjár­mögn­un­ar­innar. Styrmir segir þá stefna að því að full­fjár­magna verk­efnið fyrir lok sum­ars­ins og opna SUND fyrir gestum undir lok næsta árs.

Íslend­ing­arnir eru í þann mund að tryggja sér þak­rými á Man­hattan með útsýni yfir borg­ina. Þar verður hægt að fara í gufu, heita potta og köld kör. Þeir vilja einnig bjóða upp á hóp­tíma í gufu­böð­unum þar sem gestir eru leiddir áfram í gegnum hit­ann. Þetta telja þeir henta íbúum stór­borg­ar­innar vel, enda eru þeir yfir­leitt á hrað­ferð. „Það tónar vel við New York-takt­inn að vera með svo­leiðis,“ segir Styrmir.

Gestum SUND verður ekki heim­ilt að vera með síma í gufum og köldum körum eins og tíðkast hér heima. „Fyrir okkur hljómar þetta auð­vitað mjög ein­falt, en það er það ekki fyrir mörgum Amer­ík­önum,“ segir Styrmir. 

„Við höfum hlegið að því að þegar við höfum verið að stunda sánu í lík­ams­rækt í New York að þá er fólk oft í íþrótta­skóm, rækt­ar­fötum og fer ekki í sturtu. Það er líka með síma, heyrn­ar­tól og spjald­tölvur með sér.“ Stymir hlær og seg­ist hjóma eins og sér­vit­urt gam­al­menni en ítrekar að vin­irnir leggi mikið upp úr því að vöru­merkið sé inn­blásið af íslenskum venjum og siðum.

Íslensk menning í Bandaríkjunum

Aðrir Íslend­ingar búsettir í New York hafa fagnað til­komu fyr­ir­tæk­is­ins og sakna þess að kom­ast reglu­lega í sund. „Þetta er stór hluti af okkar arf­leifð og menn­ingu,“ segir Styrmir. „Það er helst það að fólk sé ánægt með að við séum að deila okkar menn­ingu og inn­leiða  inn í amer­ískt sam­fé­lag. Þannig að maður finnur fyrir stolti líka.“

„Það sem við viljum gera er að búa til vöru sem sam­rým­ist því sem sund er á Íslandi

Mark­miðið með SUND er að gera úti­bað­að­stöður aðgengi­legar í New York. „Það sem við viljum gera er að búa til vöru sem sam­rým­ist því sem sund er á Íslandi,“ segir Styrmir. „Á Íslandi er sund úti um allt. Það er í korters fjar­lægð frá þér eig­in­lega sama hvar þú ert á land­inu.“ Styrmir, Alex­ander og Bjarki stefna á að halda verð­punkti aðgengi­legum og vilja að gestir geti inn­leitt sundið í sína dag­legu rútínu.

Spurður hvað sé það skemmti­leg­asta við að vera frum­kvöð­ull í New York svarar Styrmir að það sé dásam­legt að vinna með vinum sínum. „Við erum þrír sem stofn­uðum þetta og erum búnir að þekkj­ast síðan í mennta­skóla.“ Hann segir það gaman að skapa fyr­ir­tæki sem end­ur­speglar gildi þeirra Alex­and­ers og Bjarka. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár