Engin verðmæti án vinnandi fólks

Forseti ASÍ segir að brýn­ustu verk­efnin í sam­fé­lagi sem kennt er við vel­ferð og lýð­ræði séu hús­næð­is­vand­inn, verð­bólgan, vax­andi ójöfn­uður og mis­skipt­ing valds, og aukn­ing verk­taka­vinnu og ótryggra starfa. For­sæt­is­ráð­herra seg­ist vilja leiða rík­i­s­tjórn í þágu vinn­andi fólks.

Engin verðmæti án vinnandi fólks
Risastór Venus­ar­stytta var end­ur­gerð fyrir 1. maí með vísan í bar­áttu­dag­inn 1970 þegar Rauð­sokkur báru slíka styttu, en var þá gert að vera aft­ast í göng­unni. Dagskrá hátíð­ar­hald­anna í Reykja­vík bar sterkan keim af Kvenna­ár­inu 2025. Mynd: Golli

1. maí árið 1970, fyrir 55 árum, mark­aði upp­haf Rauð­sokka­hreyf­ing­ar­innar, þegar konur á rauðum sokkum mættu í kröfu­göngu verka­lýðs­ins með risa­vaxna Venus­ar­styttu. Styttan var skreytt borða sem á stóð „Mann­eskja, ekki mark­aðsvara“ og vakti mikla eft­ir­tekt.

Fjöl­miðlar sögðu frá því að Rauð­sokka­hreyf­ingin hefði borið stytt­una í óþökk full­trúa­ráðs verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og nokk­urt stapp var um hvort þær fengju að taka þátt í göng­unni, en eftir miklar samn­inga­við­ræður fengu þær á end­anum að ganga aft­ast.

Hátíð­ar­höld 1. maí í Reykja­vík nú báru sterkan svip af vísun í göng­una 1970. Þannig bauð full­trúa­ráð verka­lýðs­fé­lag­anna í Reykja­vík með­limum Rauð­sokka­hreyf­ing­ar­innar að ganga fremst í göng­unni í ár, en Venus­ar­styttan var end­ur­gerð af þessu til­efni. 

Stytt­unni var komið fyrir við Hall­gríms­kirkju þar sem bar­átt­u­ganga verka­lýðs­ins hófst en síðan gekk fylk­ingin, með stytt­una, niður Skóla­vörðu­stíg og á Ing­ólfs­torg þar sem bar­áttufundur var hald­inn. 

ASÍ, BHM, BSRM og KÍ tóku höndum saman við sam­tök kvenna, femínista, fatl­aðs fólks og hinsegin fólks og lýsti því yfir að árið 2025 sé kvennaár, þar sem sér­stök áhersla er lögð á upp­ræt­ingu kyn­bund­ins ofbeldis og launa­munar kynj­anna. „Þrátt fyrir að margt hafi breyst til batn­aðar und­an­farna ára­tugi er jafn­rétt­is­bar­átt­unni ekki lokið. Ísland er til að mynda fyrir neðan með­al­tal í sam­an­burði OECD og ofbeldi gegn konum er útbreitt. Við erum líka minnt á um þessar mundir að stöðugt þarf að standa vörð um mann­rétt­indi – bakslags gætir í jafn­rétt­is­málum“, segir í sam­eig­in­legri grein í aðdrag­anda bar­áttu­dags verka­lýðs­ins frá þeim Finn­birni A. Her­manns­syni, for­seta ASÍ, Kolbrúnu Hall­dórs­dóttur, for­manni BHM, Magnúsi Þór Jónssyni, for­manni KÍ og Sonju Ýr Þor­bergs­dóttur, for­manni BSRB.

Vaxandi ójöfnuður

Yfir­skrift bar­áttu­dags­ins í ár var „Við sköpum verð­mætin“ og í ávarpi sínu sem for­maður ASÍ sagði Finn­björn að þeirri stað­reynd verði ekki mót­mælt. „Þetta kunna að virð­ast aug­ljós sann­indi en því miður er það svo að þess­ari stað­reynd þarf jafnan að halda á lofti gagn­vart ráð­andi öflum í sam­fé­lag­inu. Án vinn­andi fólks verða engin verð­mæti sköpuð og engum hjólum atvinnu­lífs snúið. Verð­mæta­sköpun og atvinnu­líf eru grund­vall­ar­for­sendur sam­fé­lags og vel­ferðar,“ sagði hann. 

„Verð­bólga, dýr­tíð og stjórn­laus fjár­fest­inga­mark­aður, sem áður var hús­næð­is­mark­aður, almenn­ings hefur bitnað af fullum þunga á þessu fólki
Finn­björn A. Her­manns­son, for­seti ASÍ

Þrátt fyrir þessi aug­ljósu sann­indi búi hópar lág­launa­fólks við kröpp kjör hér á landi þrátt fyrir langan vinnu­dag. „Verð­bólga, dýr­tíð og stjórn­laus fjár­fest­inga­mark­aður, sem áður var hús­næð­is­mark­aður almenn­ings, hefur bitnað af fullum þunga á þessu fólki sem í orðs­ins fyllstu merk­ingu heldur sam­fé­lag­inu gang­andi í þágu okkar allra,“ sagði Finn­björn í ávarp­inu.

Þá nefndi hann þau verk­efni sem séu brýn­ust í sam­fé­lagi okkar, sem kennt hefur verið við vel­ferð og lýð­ræði. Það séu hús­næð­is­vand­inn, verð­bólgan, vax­andi ójöfn­uður og mis­skipt­ing valds, og aukn­ing verk­taka­vinnu og ótryggra starfa. 

„Barátta verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar er vissu­lega póli­tísk en hún er bundin við það eitt að standa vörð um almanna­hags­muni og vinna að bættum kjörum og afkomu fólks­ins í land­inu. Þess vegna hlýtur verka­lýðs­hreyf­ingin jafnan að hafa skoðun á fram­göngu rík­is­stjórna og ráða­manna; fagna því sem vel er gert í þágu almenn­ings og þjóð­ar­hags en jafn­framt for­dæma sér­hags­muna­gæslu, fúsk og illa grund­aðar ákvarð­anir þeirra sem telja sig eina vita,“ sagði hann. 

Hert eftirlit með starfsmannaleigum

Stjórn­mála­flokk­arnir buðu venju sam­kvæmt í kaffi í til­efni dags­ins. Þannig bauð Sam­fylk­ing­ar­fé­lagið í Reykja­vík til verka­lýðs­kaffis í Oddfellow-hús­inu við Von­ar­stræti. Þar tók for­sæt­is­ráð­herra, Kristrún Frosta­dóttir, til máls þar sem hún sagð­ist vilja leiða rík­is­stjórn í þágu vinn­andi fólks: „En ég er fylli­lega með­vituð um að það er ekki nóg að segja þetta bara. Verkin tala.“

Þá minnti hún á að „í stefnu­yf­ir­lýs­ingu Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og Flokks fólks­ins kemur skýrt fram að rík­is­stjórnin hygg­ist taka fast á félags­legum und­ir­boðum, m.a. með því að herða eft­ir­lit með starfs­manna­leigum, inn­leiða keðju­á­byrgð í stærri verk­legum fram­kvæmdum, efla heim­ildir til vinnu­staða­eft­ir­lits og lög­festa skýr­ari refsi­á­kvæði vegna vinnumansals. Vinna þessu tengt er farin af stað og ég mun fylgja þessu fast eftir,“ sagði hún. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár