Náttúruhlaup gefa orku og vellíðan

Sigurður Kon­ráðs­son er átt­faldur Lauga­vegs­hlaup­ari. Hann fór fyrst eftir sex­tugt.

Náttúruhlaup gefa orku og vellíðan
Sigurður Kon­ráðs­son Byrjaði seint að hlaupa. Mynd: Golli

Nátt­úru­hlaup gefa fólki allt annað en götu­hlaup en það er meðal ann­ars talað um að und­ir­lagið fari betur með skrokk­inn, fólk fái orku frá nátt­úr­unni og svo er það áskor­unin sem fylgir hlaup­unum. Aðstæður geti verið öðru­vísi en reiknað var með, leiðin grýtt eða und­ir­lagið mjúkt og hér á landi er allra veðra von. Það eru þessir þættir sem heilla fyrir utan fal­lega nátt­úru. 

Sigurður Kon­ráðs­son, pró­fessor emeritus í íslenskri mál­fræði, byrj­aði að hlaupa fyrir um 20 árum og hljóp Lauga­veg­inn nokkrum árum síðar, þá kom­inn yfir sex­tugt. Hann segir margt við utan­vega­hlaup heilla og hefur hlaupið Lauga­veg­inn átta sinnum, síð­ast í sumar sem leið við afar erf­iðar aðstæður en hlaupið þykir bæði krefj­andi og eitt skemmti­leg­asta utan­vega­hlaup á land­inu enda nátt­úru­feg­urð sem umlykur leið­ina.

Hljóp fyrst Laugaveginn kominn yfir sextugt

Sigurður hafði ekki stundað hlaup mjög lengi þegar hann spurði þjálf­ara sinn hvort hann væri til­bú­inn í Lauga­vegs­hlaupið, sem er 55 km utan­vega­hlaup, en Lauga­veg­ur­inn tengir saman tvær af okkar helstu nátt­úruperlum, Land­manna­laugar og Þórsmörk, þar sem hlauparar enda hlaup sín.

Sigurður Kon­ráðs­sonKeppir á inn­an­húss­mótum um vetur.

„Ég byrj­aði að hlaupa í hlaupa­hópi hjá Sigga P., eða Sigurði P. Sig­munds­syni, og Torfa og hafði hlaupið í örfá ár með Sigga P. þegar ég spurði hvort hann héldi að ég gæti farið Lauga­veg­inn. Hann hélt það nú,“ segir Sigurður og hlær. „Þannig byrj­aði þetta. Ég var á nám­skeiði hjá þeim félögum í hálft ár eða svo en und­ir­bún­ing­ur­inn gengur út að að vera með þjálf­ara sem skipu­leggur hlaupin, sem er mjög mik­il­vægt, og ég held að almennt sé það svo. Þetta er heil­mikið átak og maður fer ekk­ert nema að vera búinn að æfa sig vel og það er ákveðin gul­rót að klára hlaupið og kom­ast á leið­ar­enda. Það þýðir líka að þegar maður er kom­inn á þennan aldur þá þarf maður að vera að allan vet­ur­inn að und­ir­búa sig. Ég hleyp Esjuna reglu­lega og ýmsar brekkur og spretti. Ég hef svo farið Lauga­veg­inn á hverju ári í ein átta ár. Þetta er ósköp þægi­leg dags­ferð, maður þarf ekk­ert að taka flug­vél til útlanda til að hlaupa og svo er þetta til­tölu­lega þægi­legt hlaup að mörgu leyti. Það er þó langt, ég er um átta tíma að hlaupa, það er nokkuð langt fyrir okkur sem förum þetta hægt, þá er maður lengi á fótum.“ 

Sigurður hrósar þeim sem standa að und­ir­bún­ingi fyrir Lauga­vegs­hlaupin en fram­kvæmd­ar­að­ili er Íþrótta­banda­lag Reykja­víkur, ÍBR. Ákveðin þátt­töku­skil­yrði eru í hlaupið og gerð er krafa um að þátt­tak­endur ljúki því innan til­tek­inna tíma­marka milli ákveð­inna staða á leið­inni. „Það er ákaf­lega vel staðið að þessu hlaupi og það eru engar líkur á að maður lendi í ein­hverjum ógöngum. Það er líka hlaupið á þeim tíma þegar veðrið er hvað best í júlí þannig að hlauparar þurfa ekki að búast við snjó­byljum eða slíku. Ég hef verið hepp­inn, ég hef ekki þurft að hætta hlaupi en það eru gerðar lág­marks­kröfur á Lauga­veg­inum, að hlauparar nái til­teknum stöðum á til­teknum tíma, ann­ars verða þeir stöðv­aðir og mega ekki halda áfram.“ 

Hélt að hann yrði að hætta hlaupi sökum sandstorms

Það hlýtur að gefa þér mikið að hlaupa svona úti í nátt­úr­unni með lands­lagið allt um kring? „Það er það sem er, ef þú berð saman að hlaupa þarna og svo á bretti inni í stöð þá er það eins og svart og hvítt, þetta er allt annað og lagar algjör­lega allt, meðal ann­ars hug­ann. Maður lifir á því að fara svona ferð það sem eftir er árs­ins. Ég hef farið í fleiri svipuð hlaup eins og Heng­ils­hlaupið og Fimm­vörðu­háls­inn og svo ætla ég í Öræfa­hlaupið í sumar sem er í Skafta­felli, en það er nýtt hlaup og mikið til­hlökk­un­ar­efni. Þetta gefur okkur hlaup­ur­unum öllum óskap­lega mikið að koma út í svona fal­lega nátt­úru á sumrin.

„Það er meira en að segja það að fá svona sand­storm beint framan í sig
Sigurður Kon­ráðs­son

Þú hefur að öllum lík­indum lent í mis­jöfnum veðrum og ein­hverjum erf­ið­leikum á þessum hlaupum? „Jú, það er nú óhætt að segja það. Nú síð­ast í fyrra var Lauga­vegs­hlaupið ansi erfitt og það erf­ið­asta sem ég hef farið. Það var svo mik­ill mót­vindur og sand­stormur,“ segir hann með áherslu. „Það tók ansi mikið úr manni. Ég var þarna næst því að halda að þetta myndi ekki ganga, að ég kæm­ist ekki á leið­ar­enda. Það er meira en að segja það að fá svona sand­storm beint framan í sig, það er ekk­ert hægt að kom­ast í skjól eða annað, maður verður bara að moða sig ein­hvern veg­inn áfram, þetta var það erf­ið­asta sem ég hef lent í á Lauga­veg­inum.“

Sigurður segir að þrátt fyrir að hann geti ekki notið mikið nátt­úr­unnar á hlaupum sjón­rænt þá gefi það mikla vellíðan. „Það er nú þannig að þegar maður er að hlaupa þá þarf maður að horfa þessa fimm metra fram fyrir sig þannig að það er ýmis­legt sem fer fram hjá hlauparanum en mér líður óskap­lega vel þarna úti í nátt­úr­unni, það gefur lang­mest.“

Hljóp í rauðri viðvörun

Und­ir­bún­ingur er mik­il­vægur og að fólk gefi sér tíma í hann. Góðir hlaupa­skór og góður þjálf­ari er það mik­il­væg­asta fyrir utan­vega­hlaup segir Sigurður. Hann segir að fólk sem byrji að hlaupa utan­vegar snúi yfir­leitt ekki aftur frá þeim, þau gefi allt annað en götu­hlaupin og inni­hlaupin. Ætlarðu aftur í sumar í Lauga­vegs­hlaupið?

„Já og ég er að und­ir­búa mig. Ég fer í Puffin Run í Vest­manna­eyjum í byrjun maí. Það er afar vin­sælt og vel skipu­lagt hlaup um Heimaey. Einna spennt­astur er ég þó fyrir Öræfa­hlaup­inu í Skafta­felli, sem verður haldið í fyrsta skiptið núna í lok júní. Eftir Lauga­veg­inn er það síðan Fimm­vörðu­háls­hlaupið í fimmta skiptið og hið dásam­lega Þórs­merk­ur­hlaup. Ýmis fleiri hlaup eru svo sem á dag­skrá enda úr miklu að velja.“

Sigurður keppir líka inni um vetur.

„Ég hleyp lang­mest úti og alltaf frá vori til hausts en á vet­urna er ég dálítið inni á 200 metra brautum en það er ólíkt því að hlaupa úti og í nátt­úr­unni. Ég hef vanið mig á að taka þátt í alls konar mótum inni og keppi þá í allt frá 200 metra upp í 3.000 metra hlaupum.“

Aðspurður segir Sigurður það eiga vel við sig að hlaupa í nátt­úr­unni og raunar lang­flesta sem fara að iðka utan­vega­hlaup af ein­hverju viti en fólk þurfi að gefa sér tíma í að und­ir­búa sig vel. „Það þarf að vera mikil reglu­semi í þessu, ég á við að ef maður ætlar að hlaupa þrisvar í viku þá verður maður að gera það. Nátt­úru­hlaupin eru allt annað en inn­an­húss­hlaup eða hlaup á braut, maður þarf að taka frá tíma í þetta alveg eins og með ýmis­legt annað. Maður veit aldrei hvernig aðstæður eru, í hvernig skóm er best að vera, á nöglum, grófum eða fínum, en skó­bún­að­ur­inn skiptir mjög miklu máli. Ég hef lent í ansi mörgum veðrum og ég hef hlaupið í rauðri við­vörun en verst var að hlaupa í sand­rok­inu síð­ast­liðið sumar. Öll vit voru full af sandi og maður bruddi sand mest­alla leið­ina,“ segir Sigurður.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hlaupablaðið 2025

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár