„Það er svo mikið sem við getum sagt með líkamanum“

Matthea Lára Pedersen var aðeins 19 ára gömul þegar hún byrj­aði að vinna sem atvinnu­dans­ari. Hún hefur hug­rekki að leið­ar­ljósi og hvetur fólk til þess að sækja tæki­færin sem það langar í.

„Það er svo mikið sem við getum sagt með líkamanum“
Matthea Lára Pedersen Er atvinnu­dans­ari og hefur starfað sem slíkur frá 19 ára aldri. Mynd: Johannes Hjorth

Matthea Lára Pedersen er atvinnu­dans­ari, búsett í Utrecht í Hollandi. Síðustu ár hefur hún dansað með fremstu dans­flokkum heims og unnið víðs vegar um Evrópu. Hún segir listir mik­il­vægar og hvetur fólk til þess að fylgja for­vitn­inni sinni. Um þessar mundir dansar hún í óperu­sýn­ingu í þýsku borg­inni Hanover.

Dansari

Matthea Lára PedersenFlutti til Sví­þjóðar 16 ára gömul ásamt for­eldrum sínum og stund­aði nám við Kon­ung­lega sænska ball­ett­skól­ann.

Matthea fór á sína fyrstu ball­ettæf­ingu aðeins þriggja ára gömul en man fyrst eftir sér í hiphop og djass­dansi í Dans­skóla Birnu Björns. Þegar hún var 11 ára gömul ákvað hún að prófa tíma í List­dans­skóla Íslands eftir sam­ræður við eldri bróður sinn, atvinnu­dansar­ann Frank Fannar Pedersen. „Við fundum gamla ball­ett­bún­inga af mömmu sem voru alveg upp í háls og opnir niður í bak,“ segir Matthea og brosir. „Mér fannst þetta ótrú­lega gaman.“

Móðir Mattheu er Katrín Hall, fyrrum …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár