<span>Veiktist í kjölfar morðhótana:</span>„Ekki lengur óttalausa stúlkan með sterku röddina“

Veiktist í kjölfar morðhótana:„Ekki lengur óttalausa stúlkan með sterku röddina“

Najmo Fiyasko Finn­boga­dóttir, íslensk-sómölsk bar­áttu­kona og fyrr­ver­andi sam­fé­lags­miðla­stjarna, hefur í kjöl­far ótal morð­hót­ana dregið sig í hlé frá bar­átt­unni fyrir bættum rétt­indum stúlkna og kvenna í Sómalíu. Najmo býr nú í Sómalíu þaðan sem hún flúði 13 ára gömul. Hún segir að langvar­andi streita af völdum ótta við hót­an­irnar hafi á end­anum brotið hana niður. „Ég tap­aði áttum og vildi bara kom­ast heim til mömmu.“

Ég er ekki lengur ótta­lausa stúlkan með sterku rödd­ina, sem beitti henni fyrir stelpur í Sómalíu og víðar, sem geta ekki tjáð sig með þeim hætti sem ég gerði. Það særir mig mest,“ segir Najmo Fiyasko Finn­boga­dóttir og vísar til bar­áttu sinnar gegn mis­þyrm­ingum á kyn­færum stúlkna og gegn barna­brúð­kaupum.

Najmo er þol­andi hvors tveggja. 

Heim­ildin náði á dög­unum sam­bandi við hana á heim­ili móður hennar í Móga­d­i­sjú. Najmo býr þar núna í fyrsta skipti frá því hún flúði frá Sómalíu fyrir 14 árum. Þá var hún þrettán ára og hafði verið í þving­uðu hjóna­bandi í tvö ár með frænda sínum en hann var á fer­tugs­aldri.

Komst í flótta­manna­búðir á MöltuNajmo var þrettán ára þegar hún komst loks í flótta­manna­búðir.

Najmo hrakt­ist milli landa eftir að hún flúði. Hún komst á end­anum til Möltu í flótta­manna­búðir, þaðan til meg­in­lands Evrópu og síðan til Íslands. Þá var hún orðin 18 …

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár