Utanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun tillögu að mótun stefnu í öryggis- og varnarmálum Íslands. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá því í desember kemur fram að mótuð verði öryggis- og varnarmálastefna.
Stefnunni er ætlað að lýsa helstu öryggisáskorunum til lengri og skemmri tíma með áherslu á ytri ógnir og draga fram markmið Íslands í alþjóðlegu öryggis- og varnarsamstarfi, fjalla um nauðsynlegan varnarviðbúnað, og skipulag og getu sem þurfi að vera til staðar á Íslandi, auk þess að benda á hugsanlegar umbætur á laga- og stofnanaumgjörð varnarmála.
Efling vöktunar
Á sama tíma og þessi vinna hefst verður ráðist í nauðsynlegar aðgerðir til að styrkja varnarviðbragð Íslands og stöðu landsins sem samstarfsaðila bandalagsríkja í varnarmálum, innan núverandi fjárheimilda til varnarmála. Þar er meðal annars horft til þess að auka samlegð í starfi stofnana á þessu sviði með auknu samstarfi, efldri vöktunar- og viðbragðsgetu og kaupum á sérhæfðum búnaði.
Meðal aðgerða sem ráðist verður í er uppsetning á samþættingarmiðstöð öryggis- og varnarmála á varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins í samvinnu við ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæsluna og CERT-IS. Þá verður ómannaður eftirlitskafbátur tekinn í notkun í samvinnu við Landhelgisgæsluna til að efla eftirlit með sæstrengjum og höfnum. Eftirlit með netárásum verður sömuleiðis eflt, örugg fjarskipti bætt og ráðist í kaup á búnaði til að nema og stöðva ólöglega dróna.
„Við þurfum að sjá til þess að hér sé til staðar nauðsynleg þekking, geta og innviðir til að tryggja öryggi Íslands í samstarfi við bandalagsríki okkar“
„Þörfin á styrkingu í öryggis- og varnarmálum er knýjandi og því hef ég flýtt þessari stefnumótun, sem unnin verður í samstarfi við alla flokka á Alþingi,“ er haft eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í tilkynningu frá ráðuneytinu. „Við þurfum að sjá til þess að hér sé til staðar nauðsynleg þekking, geta og innviðir til að tryggja öryggi Íslands í samstarfi við bandalagsríki okkar. Í dag erum við ekki aðeins að ýta úr vör stefnumótun heldur einnig aðgerðum,“ segir hún ennfremur.
Samráðshópur þingmanna
Samkvæmt utanríkisráðuneytinu verður við mótun stefnunnar byggt á stefnum og skuldbindingum sem Ísland hefur tekist á hendur og átt þátt í að þróa, meðal annars innan Atlantshafsbandalagsins og á grundvelli varnarsamningsins við Bandaríkin og svæðisbundins varnarsamstarfs.
Settur verður á fót samráðshópur þingmanna allra flokka sem sæti eiga á Alþingi til að ræða inntak og áherslur stefnunnar. Jafnframt verður óskað álits frá innlendum og erlendum sérfræðingum á sviði öryggis- og varnarmála. Þá verður náið samráð haft við utanríkismálanefnd, ráðherranefnd um öryggis- og varnarmál og þjóðaröryggisráð. Utanríkisráðuneytið heldur utan um vinnuna í samstarfi við dómsmálaráðuneytið og önnur ráðuneyti og stofnanir. Stefnt er að því að leggja fram drög að stefnu fyrir lok vorþings.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.










































Athugasemdir