Ragnar Kjart­ans­son: Á brúnu tíma­bili. Mynd: Golli

„Við elskum að skamma fólk“

Nýverið opn­aði Ragnar sýn­ingu í I8 í Marshall-hús­inu með yfir­skrfit­inni: Brúna tíma­bilið. Raunar er hann á brúnu tíma­bili en var til í við­tal sem end­aði í öllum litum regn­bog­ans. Rætt um skömm­ina, Trump, Rússland, slaufun, aktí­vista í Palest­ínu og Beethoven – svo eitt­hvað sé nefnt. Smá óður til gleð­innar og samt rætt um illsk­una.

Þegar skrifað er við­tal við Ragnar Kjart­ans­son dugar ekk­ert minna en að hlusta á Óðinn til gleð­innar. Að stíga inn í vinnu­stof­una hans er kúnstpása frá heim­inum þarna úti sem virð­ist við það að koll­varp­ast fram af brún­inni – og öfug­snú­inn léttir að heyra Ragnar minna á að Beethvoen hafi lifað líka tíma og nú.

„Beethoven er af kyn­slóð sem varð fyrir miklum von­brigðum,“ minnir hann á. „Sem maður frjáls­lyndis og frelsis, maður sem elskaði upp­lýs­ing­una og hug­myndir frönsku bylt­ing­ar­innar en endar svo bara á skeiði Napól­e­ons sem afskræmir þær í ein­ræði, rit­skoðun og djöf­ul­gangi sem drepur allt!“

Nánar verður vikið að örlögum tón­skálds­ins síðar í við­tal­inu. Byrjum upp á nýtt, enda við hæfi að við­tal við Ragnar end­ur­taki sig.

SmaliLista­mað­ur­inn með smala­myndir sínar í bak­grunni.

 Hvar er Valli?

Nýverið opn­aði Ragnar sýn­ingu í I8 í Marshall-hús­inu með yfir­skrift­inni: Brúna tíma­bilið. Und­ir­rituð …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár