Mæðgurnar Dunda og Mía. Dóttirin fór loks að passa í föt fyrir eigin aldur eftir að hún greind­ist með sel­íak og hætti að borða glúten. Mynd: Golli

Helmingi dýrari matarkarfa eina ráðið við sjúkdómnum

„Við höfum oft íhugað mjög alvar­lega að flytja bara út af þessu,“ segir Anna Gunndís Guð­munds­dóttir um þær hindr­anir sem fólk með sel­íak mætir hér á landi. Dóttir hennar, Mía, er með sjúk­dóm­inn sem er ein­ungis hægt að með­höndla með glút­en­lausu fæði. Mat­ar­k­arfa fjöl­skyld­unnar hækk­aði veru­lega í verði eftir að Mía greind­ist. Þá er það þrautin þyngri fyrir fólk með sel­íak að kom­ast út að borða, panta mat og mæta í mann­fögn­uði.

Þegar hin átta ára gamla Mía fer í afmæli eða aðrar veislur þarf hún oft­ast að taka með sér nesti. Hún má nefni­lega alls ekki borða það sem flestum finnst mesta kræs­ing: Glúten. Já, eða þær kræs­ingar sem oft­ast nær inni­halda það – kökur, pít­sur, pasta og ótrú­lega margt fleira en glúten er prótein sem finnst í hveiti, byggi og rúgi.

Því Mía er með sel­íak, sjálfsof­næm­is­sjúk­dóm sem tal­inn er hrjá um að minnsta kosti eitt pró­sent heims­byggð­ar­innar, og jafn­vel hærra. Talið er að ein­ungis 30 pró­sent þeirra sem eru með sjúk­dóm­inn séu með grein­ingu, sam­kvæmt alþjóð­legu sel­íaksam­tök­unum. Tölur um fjöld­ann skortir á Íslandi.

„Stundum er þetta alveg mjög leið­in­legt,“ segir Mía, sem greind­ist snemma, sex ára gömul. Móðir hennar, Anna Gunndís Guð­munds­dóttir, kölluð Dunda, sér oft­ast um nest­is­gerð­ina.

„Þetta er nátt­úr­lega svaka­legt álag,“ segir Dunda. „Ef það er vöfflu­kaffi kem ég með mitt eigið vöfflu­járn og geri …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár