Eldgos og afkomendur Tyrkjaránsins vinsælast á Vísindavefnum

Eldgos, stjórn­mál, lána­mál og Tyrkjaránið var það sem Íslend­ingar voru hvað for­vitn­astir um í ár. Vís­inda­vef­ur­inn tók saman helstu svörin sem þjóðin leit­aði að.

Eldgos og afkomendur Tyrkjaránsins vinsælast á Vísindavefnum
Vís­inda­vef­ur­inn til­heyrir Háskóla Íslands og svarar spurn­ingum almenn­ings með upp­lýs­ingu að leið­ar­ljósi.

Vís­inda­vef­ur­inn hefur tekið saman það efni sem var vin­sæl­ast á vefnum í ár og kennir þar ýmissa grasa. Helst voru það eld­gosin sem vöktu áhuga almenn­ings og fékk fólk til þess að leita sér frek­ari upp­lýs­inga. Þannig var svar þeirra Magnúsar Tuma Guð­munds­sonar og Jóns Gunnars Þor­steins­sonar vin­sæl­ast: Hvað hefur gosið oft á Reykja­nesskaga síðan 2021 og hversu stór hafa gosin verið?

Næst­vin­sæl­ast voru stjórn­málin. Sér­stak­lega hug­takið starfs­stjórn og hvaða reglur gilda um hana. Svarið rit­aði Hafstein Þór Hauksson, dós­ent í lög­fræði við Háskóla Íslands.

Vestmannaeyjar og Grindavík

Þá voru Vest­manna­eyjar Íslend­ingum ofar­lega í huga og tengj­ast aug­ljós­lega ham­för­unum í Grinda­vík. Þriðja mest lesna efnið á Vís­inda­vefnum er spurn­ingin: Hvers vegna var talið óhætt að flytja til Eyja skömmu eftir gos á meðan Grinda­vík er nú var­an­lega ótraust. Svarið skrif­aði Páll Ein­ars­son. Það var stutt og í þremur liðum. Annar lið­ur­inn svarar þó spurn­ing­unni nokkuð vel. 

„Flest bendir til að við séum enn í miðjum atburði í Grinda­vík. Kviku­söfn­unin undir Svarts­engi hefur þegar leitt til þriggja alvar­legra atburða (tvö gos, eitt gangainn­skot án goss), og er enn í fullum gangi,“ skrif­aði Páll.

Lánamál ofarlega í huga margra

Þá veltu margir fyrir sér lána­málum. Gylfi Magn­ús­son, pró­fessor við HÍ, svar­aði þannig almenn­ingi um það hvor yrði fyrri til að greiða upp jafnhá lán á sömu vöxtum; sá sem tekur verð­tryggt lán, eða sá sem tekur óverð­tryggt lán? Svarið er nokkuð fyr­ir­sjá­an­legt; þeir eru jafn­lengi að því að sögn pró­fess­ors­ins. En auð­vitað er það ekki svo ein­falt.

Hvar eru börn Tyrkjanna?

Svo virð­ist sem þing­mál hafi rekið fjöl­marga til þess að fletta upp fróð­leik um Tyrkjaránið. Fimmta vin­sælasta efnið á Vís­inda­vefnum er spurn­ingin: Er vitað til þess að Tyrkja­ráns­menn hafi eign­ast börn með íslenskum konum?

Það var í febr­úar sem þau Birgir Þór­ar­ins­son, Ásmundur Frið­riks­son, Diljá Mist Ein­ars­dóttir, Óli Björn Kárason og Vil­hjálmur Árnason lögðu til að Íslenskri erfða­grein­ingu yrði falið að gera rann­sókn á ummerkjum Tyrkja­ráns­ins í erfða­mengi Íslend­inga á Íslandi. En einnig bland­aðra afkom­enda Íslend­inga í Alsír.

Íslensk erfðagreining fengin í málið

Eins og þekkt er átti Tyrkjaránið sér stað sum­arið 1627, fyrir um 400 árum síðan, þegar ræn­ingja­skip komu að Íslandi frá Norður-Afríku. Ránsmenn voru ann­ars vegar frá Marokkó og hins vegar frá Alsír og komu að í Grinda­vík, á Aust­fjörðum og loks í Vest­manna­eyjum þaðan sem flestir voru numdir á brott. Hátt í 400 Íslend­ingar voru brottnumdir sem þrælar til Sale í Marokkó og Algeirs­borgar í Alsír og hátt í 50 drepnir eða lim­lestir í Tyrkjarán­inu. 

Í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu hóps­ins var lagt til að reistur yrði minn­is­varði um þennan atburð sem ætti að afhjúpað 16. júlí á næsta ári að við­stöddum full­trúum þjóð­þinga þeirra landa sem helst komu við sögu, það er, Dan­merkur, Hollands, Alsír og Marokkó auk fleiri landa.

Í greina­gerð þing­manna kom einnig fram að rætt hefði verið við Íslenska erfða­grein­ingu og þar á bæ hefði verið tekið vel í til­lög­una um að leita að afkom­endum Tyrkja­ráns­ins. Kostn­aður vegna þessa áttu að vera 40 millj­ónir króna, ofan á 20 millj­ónir sem átti að veita í fræðslu­sjóð þessu tengdu.

Íslend­ingar eru fróð­leiks­fús þjóð og spurði fræði­manna­sam­fé­lagið hvernig í pott­inn væri búið. Svarið, sem Már Jónsson pró­fessor í sagn­fræði rit­aði, var í ein­földu máli eft­ir­far­andi: 

Óhætt er að full­yrða að engin börn hafi fæðst á Íslandi á vor­mán­uðum 1628 sem áttu sjó­ræn­ingja frá Norður-Afríku, Englandi, Hollandi eða Spáni fyrir föður. Aftur á móti er full­víst að ein­hverjir hinna her­teknu Íslend­inga hafi aukið kyn sitt í Norður-Afríku næstu árin.

 

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HG
    Hildur Gunnlaugsdóttir skrifaði
    "Afkomendur Tyrkjaránsins" - ekki er öll vitleysan eins. Er enginn að lesa yfir?
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár