Ný ríkisstjórnin ósamstíga varðandi inngöngu inn í ESB

Grund­vallará­grein­ingur er innan rík­is­stjórn­ar­innar um inn­göngu inn í ESB. Allir for­menn­irnir eru þó sam­mála um að efna til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um málið.

Ný ríkisstjórnin ósamstíga varðandi inngöngu inn í ESB
Grund­valla­á­grein­ingur er innan nýrrar rík­is­stjórnar um inn­göngu inn í ESB, þó að allir for­menn séu sam­mála um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um málið. Mynd: Golli

Rík­is­stjórnin er ósam­mála í afstöðu sinni til inn­göngu í ESB. Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, sagði á blaða­manna­fundi í Hafn­ar­borg, þar sem samt­arfs­samn­ingur flokk­anna var und­ir­rit­aður, að hún væri and­víg inn­göngu í ESB. Á sama tíma er hún hlynnt þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um að taka upp við­ræður á ný.

„Per­sónu­lega vil ég ekki ganga inn í Evr­ópu­sam­bandið að svo komnu, en þjóðin á alltaf að eiga loka­orðið,“ sagði hún á fund­inum. Þannig er að teikn­ast upp sams­konar staða og þegar VG og Sam­fylk­ingin hófu upp­runa­lega samn­inga­við­ræður við ESB skömmu eftir Hrun. Þá var VG and­vígt inn­göngu sem olli miklum átökum innan flokk­anna.

Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði að það væru uppi áhyggjur vegna máls­ins.

„Það hafa margir áhyggjur af því að það verði sundr­ung í umræð­unni, þess vegna skptir máli tím­inn, tíma­setn­ingar og aðdrag­andi,“ sagði hún og bætti við að þess vegna meðal ann­ars væri ákveðið að kjósa á …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Munurinn á Ingu og Vg varðandi ESB umsókn er sá, að Inga ætlar að beygja sig undir vilja þjóðarinnar, sem Vg gerði ekki. Inga hefur ekki áhuga á að hljóta sömu örlög og Vg.
    1
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Hvers svo sem "vilji þjóðarinnar" kann að vera þá hefur hann ekkert lagagildi umfram stjórnarskránna og hún heimilar ekki ESB aðild. Það er einföld staðreynd.
      0
  • Gunnar Hólmsteinn skrifaði
    Það er ekkert að því að þjóðin fái að ,,kíkja í pakka" - eða að minnsta kosti að hún fái tækifæri til þess. Hér eru hins vegar ýmsir sem vilja hindra þjóðina í því í nafni þröngra sérhagsmuna. Tími kominn til að gefa þeim frí.
    8
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Hérna er pakkinn: https://www.eeas.europa.eu/node/18060_en
      Þið hafið fengið 12 ár til að kíkja í hann.
      0
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Stjórnarskráin leyfir ekki ESB aðild. Engin þjóðaratkvæðagreiðsla getur breytt því. Allir þingmenn verða að vinna drengskaparheit að stjórnarskrá og þeir mega ekki virða það að vettugi með því að stuðla að broti gegn stjórnarskránni. Enginn stjórnarsáttmáli getur breytt því.
    -5
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    "Ný ríkisstjórnin ósamstíga varðandi inngöngu inn í ESB" Hvað með það? Þær sögðu það sem skiptir máli. Þjóðin ræður.
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár