Fjármálaóreiða FH fellur á hafnfirska útsvarsgreiðendur

Hátt í sjö hund­ruð milljón króna reikn­ingur FH verður lík­lega sendur til skatt­greið­enda eftir að FH fór flatt á bygg­ingu Knatt­húss­ins Skessunnar. Formaður félags­ins fær 73 millj­ónir í sinn hlut fyrir upp­bygg­ingu húss­ins, sem sligar nú félagið. Svört skýrsla Deloitte dregur fram fjár­mála­óreiðu.

Fjármálaóreiða FH fellur á hafnfirska útsvarsgreiðendur
Skessan kost­aði að end­ingu um ell­efu hund­ruð millj­ónir króna. Lán vegna hennar eru að sliga FH og er svo komið að félagið stendur ekki undir skuld­bind­ingum sínum. Mynd: Golli

Kolsvört skýrsla Deloitte um knatt­húsið Skessuna dregur fram óskipu­lag í utan­um­haldi bók­halds íþrótta­fé­lags­ins FH við upp­bygg­ingu húss­ins. Þar koma ítar­legar upp­lýs­ingar fram, meðal ann­ars að for­maður FH til síð­ustu átján ára, Viðar Hall­dórs­son, fékk í sinn hlut tæp­lega 73 millj­ónir króna, eða um hátt í sjö pró­sent af heild­ar­kostn­aði við upp­bygg­ingu knatt­húss­ins Skessunnar sem end­aði á því að fara um þrjú hund­ruð millj­ónum fram úr áætlun. Um 34 pró­sent af heild­ar­upp­hæð­inni sem fór í upp­bygg­ingu húss­ins fór í gegnum félag bróður for­manns­ins sem var jafn­framt for­maður knatt­spyrnu­deildar FH þegar upp­bygg­ingin átti sér stað, Jón Rúnar Hall­dórs­son. 

Skuldir aukist um fimm hundruð prósent

Skuldir FH hafa auk­ist um ríf­lega fimm hund­ruð pró­sent frá árinu 2017 og er svo komið að félagið á við alvar­legan fjár­hags­vanda að stríða. Hafn­ar­fjarð­ar­bær hefur því ákveðið að ganga til samn­inga við félagið um að yfir­taka skuldir tengdar Skess­unni, á kostnað útsvars­greið­enda. Hafn­ar­fjarð­ar­bær hefur krafið …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MIR
    Margrét Ingibjörg Ríkarðsdóttir skrifaði
    Skil ekki af hverju knatthúsið er ekki selt á frjálsum markaði í stað þess að skattgreiðendur eigi að greiða fyrir sukkið 😳Þar sem megin mantra íhaldsins er frelsið mikla hlýtur það að liggja í augum uppi að margumtalaðir frelsins menn og þmt svokallaðir fjārfestar séu útvaldir til að reisa upp æru knatthússbyggingar framkvæmdsraðila.
    0
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Þarna er góð lýsing á fjarmálasnilli fulltrúa sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði ! Auðvitað er reikningurinn sendur til bæjarbúa !
    4
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Dæmigert íslenskt SUKK og SVÍNARÍ !!!!
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár