Vinátta, eltihrellir og morð: Þrjár sterkar seríur á Netflix

Þrjár þátt­araðir sem vöktu athygli og umtal á árinu sem er að líða.

Vinátta, eltihrellir og morð: Þrjár sterkar seríur á Netflix
Þátta­röðin sem vakti senni­lega mesta athygli í ár var Baby Reindeer, sem kom út í vor. Mynd: Netflix

Líkt og margir hef ég þann vana að end­ur­horfa trekk í trekk á sama efnið þegar ég kveiki þreyttur á sjón­varp­inu eftir langan dag, hvort sem um er að ræða vand­aðar ser­íur sem ég fæ ekki nóg af eða grínser­íur með 20 mín­útna þáttum sem telja í tuga­tölum. Þess vegna er svo frísk­andi þegar það detta inn nýjar og spenn­andi þátt­araðir. Í ár voru þrjár þátt­araðir sem vöktu mína athygli – og flest allra þeirra sem horfa á Netflix.

19 ára saga af vináttu

Þátta­röðin One Day kom út í byrjun árs­ins, 8. febr­úar. Þætt­irnir fjalla um ung­mennin Emmu og Dexter sem kynn­ast við útskrift úr háskóla þegar þau standa á tíma­mótum og lífið blasir við þeim. Við fylgj­umst með sögu­hetj­unum í gegnum lífið og sjáum þau mót­ast í full­orðna ein­stak­linga, um leið og sam­band þeirra þró­ast. Í gegnum sitt sam­band takast þau á við djúp­stæð­ari til­finn­ingar en fylgir hefð­bundnum vina­sam­böndum.

Sagan er frá­brugðin öðrum að því leyti að hver þáttur ger­ist á árs­fresti. Fyrsti þáttur á sér stað árið 1988 og sá sein­asti 2007.

Þætt­irnir nutu mik­illa vin­sælda víða fyrir gríp­andi sögu­þráð sem sló á hjarta­strengi áhorf­and­ans, en einnig fyrir frá­bæran leik Ambika Mod og Leo Woodall í þátta­röð­inni.

Saga þeirra Emmu og Dexter er upp­runa­lega úr bók eftir David Nicholls sem gefin var út árið 2009. Tveimur árum síðar kom kvik­myndin One Day, með Anne Hathaway og Jim Sturgess í aðal­hlut­verkum, en þætt­irnir stóð­ust svo sann­ar­lega vænt­ingar þeirra sem héldu upp á mynd­ina.

One Day: 8,1 á IMDB, 91% á Rotten Tomatoes. 

Á flótta undan eltihrelli

Þátta­röðin sem vakti senni­lega mesta athygli í ár var Baby Reindeer, sem kom út í vor, eða þann 11. apríl. Þætt­irnir eru byggðir á reynslu Richard Gadd og segja frá upp­lifun hans af elti­hrelli þegar hann var ungur lista­maður að feta sig áfram sem grínisti í stór­borg­inni London.

Richard leikur sjálfan sig í þátt­unum, sem Donny. Hann starfar sem bar­þjónn þegar hann kynn­ist konu sem fær nafnið Martha í þátta­röð­inni. Donny finnur til með Mörthu sem situr döpur ein síns liðs á barnum og býður henni upp á drykk. Eftir það var ekki aftur snúið.

Þætt­irnir eru ótrú­lega vel skrif­aðir. Þú gjör­sam­lega sog­ast inn í þá og tekur varla eftir því að þú ert að klára heilu þátta­röð­ina án þess að taka nokkurn tím­ann pásu til þess að standa upp úr sóf­anum. Þætt­irnir eru átak­an­legir á köflum, þar sem horfst er í augu við óþægi­legt við­fangs­efni með trú­verð­ugum hætti. Hægt er að finna til sam­kenndar með öllum sem eiga hlut að máli. Þar skiptir sköpum frá­bær leikur Richard Gadd og Jessicu Gunning, sem bæði unnu til Emmy-verð­launa fyrir frammi­stöð­una.

Richard Gadd skrif­aði upp­runa­lega ein­leik­inn Baby Reindeer sem hann setti fyrst á svið árið 2019. Miklar vin­sældir ein­leiks­ins kveiktu áhuga Netflix á að koma sög­unni á stóra skjá­inn.

Skömmu eftir útgáfu þátt­anna steig kona að nafni Fiona Harvey fram í við­tali við Piers Morgan. Sagði hún að per­sóna Mörthu væri byggð á sér en farið væri með rangar sakir á hendur henni. Málið rataði fyrir banda­ríska dóm­stóla, þar sem úrskurðað var að Fionu Harvey væri heim­ilt að höfða meið­yrða­mál gegn Netflix. Ranglega hafi verið full­yrt að um sanna sögu væri að ræða, engin til­raun hafi verið gerð til að sann­reyna frá­sögn­ina og láðst hafi að dul­búa Mörthu, svo elti­hrellir­inn var auð­fund­inn.

Baby Reindeer: 7,7 á IMDB og 99% á Rotten Tomatoes. 

Menendez-æðið

Í haust tók saka­málið um Menendez-bræður mikið pláss á sjón­ar­sviði popp­menn­ingar og umfjall­anir um sögu þeirra voru úti um allt. Netflix-þættir um saka­mál bræðr­anna vöktu áhuga heims­ins, en Erik og Lyle Menendez voru hand­teknir fyrir að myrða for­eldra sína sum­arið 1989. Fyrir dómi báru bræð­urnir því við að hafa þurft að þola gróft ofbeldi alla sína æsku af hálfu for­eldra sinna.

Í leik­stjórn Ryan Murphy er saga þeirra rakin í gegnum leikna þætti. Viðbrögð við þátt­unum voru mis­góð. Sumir hafa gagn­rýnt leik­stjór­ann fyrir rangar áherslur og telja að hann hafi ekki sagt sögu þeirra bræðra á heið­ar­legan hátt, með því að draga upp fals­aða mynd af sam­bandi þeirra og því hverjir þeir eru sem ein­stak­lingar.

Þætt­irnir eru önnur sería af þátta­röð­inni Monsters sem veitir inn­sýn inn í atburða­rás­ina á bak við þekkt­ustu saka­mál Banda­ríkj­anna. Fyrsta ser­ían fjall­aði um raðmorð­ingj­ann Jeffrey Dahmer og vakti einnig tals­verða umfjöllun fyrir tveimur árum.

Í kjöl­far þátt­anna kom út heim­ild­ar­myndin The Menendez Brothers sem margir ósáttir áhorf­endur þátt­anna leit­uðu í. Heim­ild­ar­myndin á að hafa málað skýr­ari og sann­ari mynd af upp­eldi bræðr­anna og ofbeld­inu sem þeir urðu fyrir, en þætt­irnir voru gagn­rýndir fyrir að hafa lagt meiri áherslu á að sýna þá bræður sem morð­ingja frekar en fórn­ar­lömb.

Monsters - The Menendez Brothers: 7 á IMBD og 74% á Rotten Tomatoes. 

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár