Bæjarstjórn samþykkir íbúakosningu vegna Coda Terminal

Hafn­firð­ingar fá að kjósa um Coda Terminal verk­efnið svo­kall­aða en til­laga þess eðlis var sam­þykkt með öllum greiddum atkvæðum í bæj­ar­stjórn.

Bæjarstjórn samþykkir íbúakosningu vegna Coda Terminal
Carbfix hyggst dæla þremur millj­ónum af koldí­oxíði ofan í hafn­firska jörð. Mynd: Golli

Bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar sam­þykkti í dag íbúa­kosn­ingu um Coda Terminal-verk­efni Carbfix. Mikill styr stóð um verk­efnið en íbúar mót­mæltu harð­lega stað­setn­ingu þess. Carbfix hyggst, í gegnum Coda Terminal-verk­efnið, flytja inn 3 millj­ónir tonna af koldí­oxíði frá fyr­ir­tækjum erlendis og dæla því ofan í jörð þar sem það umbreyt­ist í stein á um tveggja ára tíma­bili.

Í upp­hafi átti verk­efnið að vera bundið við Straums­vík en fleiri bor­teigum hefur verið bætt við sam­kvæmt nýj­ustu áætl­unum og nær ein þeirra upp í Kapellu­hraun sem er skammt frá Völlunum.

Íbúar hafa mót­mælt verk­efn­inu af fjöl­mörgum ástæðum, meðal ann­ars vegna hættu á jarð­skjálftum, sem vís­inda­menn telja þó ólík­lega. Einnig vegna mik­illar óvissu sem ein­kennir verk­efnið sem hefur ekki enn verið fjár­magnað að fullu. Carbfix er eitt af und­ir­fyr­ir­tækjum Orku­veit­unnar og er stefnan á að fá fjár­festa inn í verk­efnið. Þá vildi Carbfix að Hafn­ar­fjarð­ar­bær legði til höfn til verk­efn­is­ins, sem hefði kostað hátt í tíu millj­arða króna.

Það var svo á fundi með bæj­ar­búum í sumar sem bæj­ar­full­trúar Fram­sóknar- og Sjálf­stæð­is­flokks­ins til­kynntu að það yrði haldin íbúa­kosn­ing áður en lengra yrði haldið með málið. 

Tillagan um að íbúa­kosn­ing yrði haldin þegar öll gögn máls­ins og val­kostir væru fyr­ir­liggj­andi, var sam­þykkt með öllum greiddum atkvæðum.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár