Nýr formaður Mannréttindastofnunar fyrrverandi ræðismaður Ísraels

Sigurður Kári Krist­jáns­son var heið­urs­konsúll Ísraels á Íslandi um tveggja ára tíma­bil. Hann lét af þeim störfum fyrir tveimur mán­uðum síðan og hefur tekið að sér for­mennsku stjórnar Mann­rétt­inda­stofn­unar Íslands.

Nýr formaður Mannréttindastofnunar fyrrverandi ræðismaður Ísraels

„Ég var beð­inn um að taka þetta að mér á sínum tíma en er nú hættur,“ segir nýr for­maður stjórnar Mann­rétt­inda­stofn­unar Íslands, Sigurður Kári Krist­jáns­son, lög­maður og fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en hann var kjör­ræð­is­maður Ísraels í um tvö ár.

„Ég hætti form­lega sem ræð­is­maður í síð­asta mán­uði en brott­hvarf mitt átti sér lengri aðdrag­anda,“ svarar Sigurður Kári spurður hvenær hann lét af þeim störfum. Ágætt er að árétta að ræð­is­maður er ekki launað starf og felst í því að aðstoða Íslend­inga í við­kom­andi ríki, eða þá þjóð sem ræð­is­maður starfar fyrir, en Sigurður Kári var heið­urs­konsúll Ísraels á Íslandi. Þá er eitt hlut­verk ræð­is­manna að greiða fyrir við­skiptum á milli landa.

Hávær krafa um sniðgöngu

Fyrst stóð til að Brynjar Níelsson, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tæki að sér for­mennsku en í lögum er kveðið strangt á um að þing­menn geti ekki setið sem for­menn hjá þess­ari nýju stofnun. …

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Mikið er þetta dapurlegt. Þetta er stofnun sem á að gæta að mannréttindum fatlaðs fólks og þarna er verið að setja mann í forsvar eins og Brynjar sem hefur margsinnis líst yfir í fjölmiðlum fordómum, ranghugmyndum og afbökuðum staðalmyndum um fatlað fólk. Ömurlegt.
    1
  • Grétar Reynisson skrifaði
    „Um ári síðar var búið að tilnefna hann sem formann sömu stofnunar og hann gagnrýndi. Hann þáði boðið eftir að hafa sagt af sér varaþingmennsku.“
    Brynjar þolir ekki pólitíska aktivista eða allar nefndirnar og ráðin. Nema . . . . . hann komist í þau sjálfur. Semsagt týpískur ómarktækur sjálfmiðaður „kjaftívisti".
    7
  • Guðrún Aðalsteinsdóttir skrifaði
    Sat þessi ekki í fangelsi eftir svindl og svínarí eftir hrun
    0
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Besta mál. Réttur maður á réttum stað.
    -15
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár