Pandórubox deilna um Vonarskarð opnað á mánudag

Þrettán ára gam­alt deilu­mál verður tekið fyrir á auka­fundi Vatna­jök­uls­þjóð­garðs á mánu­dag, hvort hefja eigi ferli sem liggur í átt að tíma­bund­inni opnun Von­ar­skarðs fyrir bílum. Öku­tækjum hefur ekki verið heim­ilt að fara um svæðið frá stofnun þjóð­garðs­ins.

Pandórubox deilna um Vonarskarð opnað á mánudag
Von­ar­skarð Nátt­úru­stofa Suð­aust­ur­lands sagði í áliti árið 2020 best að halda Von­ar­skarði sem kyrr­látu víð­erni og því mælti stofn­unin ekki með því að umferð yrði hleypt þar í gegn. Það gerði Nátt­úru­stofa Norð­ur­lands eystra ekki heldur og hið sama má segja um Nátt­úru­fræði­stofnun og rann­sókn­ar­hóp sem Vatna­jök­uls­þjóð­garður fékk til að skoða málið, Mynd: Landvernd

Auka­fundur hefur verið boð­aður í stjórn Vatna­jök­uls­þjóð­garðs næst­kom­andi mánu­dag en annað af þeim málum sem taka á fyrir þar er þó mjög gam­alt þrætu­epli – hvort opna eigi fyrir umferð vél­knú­inna öku­tækja um við­kvæmt svæði, svo­kallað Von­ar­skarð.

Nátt­úru­fræði­stofnun og fleiri aðilar hafa mælt gegn því að það verði gert en óheim­ilt hefur verið að aka um svæðið frá stofnun Vatna­jök­uls­þjóð­garðs árið 2009. Hópur úti­vist­ar­manna, sér­stak­lega þeirra í ferða­klúbbnum 4x4 hefur talað fyrir opnun skarðs­ins og var það meðal ann­ars til umfjöll­unar á fundi 4x4 og Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar umhverf­is­ráð­herra síð­ast­liðið mið­viku­dags­kvöld.

Ef stjórn þjóð­garðs­ins sam­þykkir til­lögu um tíma­bundna opnun Von­ar­skarðs fyrir vél­knú­inni umferð mun hún þurfa að rök­styðja þá ákvörðun, útbúa til­lögu að breyt­ingu á stjórn­unar- og vernd­ar­á­ætlun og setja hana í lög­bundið umsagnar- og kynn­ing­ar­ferli. Stjórnin þarf jafn­framt að rök­styðja það ef hún hafnar til­lögu um opnun skarðs­ins fyrir vél­knú­inni umferð.

Stjórn sem á ekki …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Páll Ásgeir Ásgeirsson skrifaði
    Samút stendur alls ekki undir nafni sem einhvers konar samtök útivistarfólks. Hið rétta er að þetta er lítil klíka jeppakalla sem undanfarna áratugi hefur tekist að hreiðra um sig í kerfinu og dulbúast sem málsvari alls útivistarfólks.
    Af þessu leiðir að raddir mjög stórra hópa útivistarfólks eiga enga rödd innan þessara undarlegu samtaka sem hafa m.a. samtök húsbílaeigenda innan sinna vébanda en ekki Ferðafélag Íslands svo eitt dæmi sé tekið.
    Samút hefur lengi verið eins og lítill klúbbur Sjálfstæðismanna. Fulltrúi Samút til áratuga í stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs er í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn og fráfarandi formaður samtakanna eftir áratuga slímusetu hefur verið virkur í bæjarmálum í Garðabæ fyrir flokkinn. Þeir hafa grímulaust dregið taum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar í fylkingaskipan flokksins og hann launað fylgispektina með því að láta ráðuneyti sitt styrkja Samút um milljónir þótt samtökin uppfylli alls ekki þau skilyrði sem þarf að uppfylla til slíks samstarfs.
    En hingað er þráhyggja þeirra og áratuga pex komið með þá. Dyggur fótgönguliði flokksins, Jón Helgi Björnsson, sem er stjórnarformaður þjóðgarðsins vinnur eftir fyrirmælum ráðuneytis og hlýðir húsbónda sínum sem þarf að launa jeppaköllum greiða og stuðning. Til eru vönduð lögfræðiálit, frá Lex og fleirum sem telja að opnun á umferð um svæðið myndi kalla lögsóknir yfir þjóðgarðinn en þeir hafa greinilega ákveðið að láta á það reyna. Spyrjum að leikslokum.
    1
  • Karl Ingólfsson skrifaði
    Svæðisráð samþykkti árið 2020, að aflokknu vönduðu umsagnarferli, að leyfa skyldi hjólreiðar um hefðbundna leið um Vonarskarð og að ökuleiðin skyldi opnuð 1. september til prufu í þjú ár. Göngumenn sækja lítt í Vonarskarð í september enda er svæði alþekkt veðravíti.
    Þessu til viðbótar samþykkti svæðisráðið að hnykkja þyrfti á vernd jarðhitasvæðisins en illu heillli hefur stefna VJÞ falist í því að beina allri umferð inn í ofurviðkvæmt jarðhitasvæðið. Þeir sem segjast tala fyrir náttúruvernd í Vonarskarði hafa látið sig litlu skipta traðk ferðamanna um ofurviðkvæmt jarðhitasvæðið sem er með al viðkvæmustu svæðum Miðhálendisins.
    Öku og hjólaleiðin er hinsvegar víðsfjarri jarðhitasvæðinu og fer um ógróið og greiðfært land.

    Fyrirkomulagið undanfarin 13 ár hefur hámarkað álagið á jarðhitasvæðið en lokað á umferð reiðhjóla og bíla um land sem er hvorki viðkvæmara eða sérstæðara en land norðan og sunnan Vonarskarðs. Samtök Útivistarféalga hafa ítrekað bent á að þessi stefna feli í sér "Lágmarks aðgengi með hámarks skaðsemi".
    Vonandi næst að afgreiða þetta mál í samræmi við sáttatillögu Svæðisráðs frá 2020. Sú tillaga er nær samhljóða sáttatillögu svæðisráðsins frá 2010, en yngri tillagan hnykkir á aukinni vernd jarðhitasvæðisins í samræmi við áherslur Samút.

    Það er rangt að það sé einungis þröngur hópur jeppamanna sem talar fyrir breyttu aðgengi að Vonarskarði. Hjólreiðamenn eru einnig verulega ósáttir við órökstudda lokun og Samtök Útivistarfélaga styðja einnig sáttatillögu svæðisráðsins. Það segir mikið um (ó)heilindi lokunarmanna að nefna hvorki Samút eða hjóreiðamenn en tönnlast á jeppamönnum sem frá upphafi hafa sætt sig við sáttatillögur Samút um Vonarskarð.
    Vonandi fer þessari þarflausu deilu að ljúka svo tryggja megi aðgengi að þeim hluta Vonarskarðs sem þolir umferð og að tryggt verði betur en verið hefur að jarðhitasvæðið fái þá vernd er þarf.
    Um þetta er að nokkru fjallað í þessari grein minni í Kjarnanum:

    https://kjarninn.is/skodun/2021-02-22-vonarskard-um-hvad-er-deilt/

    Höfundur er varamaður Samút í Svæðisráði Vestursvæðis VJÞ og félagi í Íslenska Alpaklúbbnum.
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár