Baráttan Guðný segir að það sé reiðin yfir stöðu brota­þola sem drífur hana áfram í að berj­ast fyrir rétt­indum þeirra. Hún hefur per­sónu­lega reynslu af kæru­ferl­inu og ber því ekki góða sög­una. Mynd: Golli

Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“

Þegar Guðný S. Bjarna­dóttir skrif­aði undir sam­þykki um að áverka­myndir sem teknar voru af henni á Neyð­ar­mót­töku Land­spít­ala fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis í októ­ber árið 2021 taldi hún að þær færu ekki lengra en til tækni­deildar lög­reglu. Það var ekki fyrr en tveimur árum síðar, eftir að mál hennar gegn manni sem hún hafði kært fyrir nauðgun hafði verið fellt niður, sem hún komst að öðru. Myndir sem höfðu verið teknar af henni á við­kvæm­asta augna­bliki lífs hennar höfðu verið afhentar verj­anda manns­ins og áttu þannig greiða leið til þess ein­stak­lings sem hún vildi hvað síst að kæm­ist yfir mynd­irnar: Mannsins sem hún kærði.

Högg. Þannig lýsir Guðný til­finn­ing­unni sem hún fékk þegar hún komst að þessu: „Þarna var enn og aftur brotið á mér.“ Áhyggjur af því hvort mynd­irnar gætu kom­ist í dreif­ingu vökn­uðu.

Guðný, sem um svipað leyti stofn­aði Hags­muna­sam­tök brota­þola, sá þarna enn einn van­kant­inn á því hvernig …

Kjósa
41
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Bryndís Dagbjartsdóttir skrifaði
    Hvað segir Persónuvernd um svona? Svakalega er þetta ógeðsleg hegðun, mér finnst að það ætti að vera nóg að lögmaður ákærða fengi að skoða myndirnar. Ég (og fleiri) sjáum engan tilgang í að hann fái þær afhentar, fullkomlega nægilegt að hann fái að sjá þær t.d. hjá lögreglu
    6
    • Guðný S. Bjarnadóttir skrifaði
      Þetta er byggt á úrskurði Persónuverndar sem segir að þetta sé í lagi.
      0
  • Þórdís Þórðardóttir skrifaði
    Hvernig í ósköpunum er þetta leyft? Ég fyllist reiði við lesturinn.
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

„Strákar sem mér hefði aldrei dottið í hug að væru að stunda þetta“
Viðtal

„Strákar sem mér hefði aldrei dottið í hug að væru að stunda þetta“

Krist­björg Mekkín Helga­dóttir varð fyrir staf­rænu kyn­ferð­is­of­beldi nýbyrjuð í mennta­skóla. Hún fékk ábend­ingu frá vini sínum að mynd sem hún hafði aðeins ætlað kærasta sínum væri komin í dreif­ingu. Frá þeirri stundu hefur Krist­björg fylgst með síðum þar sem slíkar myndir fara í dreif­ingu, látið þolendur vita og hvatt þá til að hafa sam­band við lög­regl­una, en þeir sem dreifi þeim séu bara „strákar úti í bæ“.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár