„Sérstakt þegar heil stétt misskilur svona“

Kennari við Rétt­ar­holts­skóla segir það sér­stakt ef heil starfs­stétt hafi átt að geta mis­skilið orð Einars Þor­steins­sonar borg­ar­stjóra um kenn­ara. Afstöðu hans var mót­mælt harð­lega við Ráðhús Reykja­víkur í vik­unni.

„Sérstakt þegar heil stétt misskilur svona“
Ósátt Borg­ar­stjóri var ekki staddur á land­inu og gat því ekki rætt við ósátta kenn­ara. Mynd: Golli

Að segja að ég hafi ekki áhuga á að umgang­ast börn, mér finnst það mjög dóna­legt. Ég verð leið í hjart­anu því að það er þess vegna sem ég er í þessu. Mér finnst ótrú­lega gaman að vera með þessum krökkum.“

Þetta sagði Halla Gunn­ars­dóttir, kenn­ari í Rétt­ar­holts­skóla, við blaða­mann Heim­ild­ar­innar á mót­mælum kenn­ara við Ráðhús Reykja­víkur síð­ast­lið­inn þriðju­dag. Halla var þar stödd ásamt starfs­systk­inum sínum til að mót­mæla ummælum sem Einar Þor­steins­son borg­ar­stjóri hafði við­haft um kenn­ara. 

Tals­verður fjöldi var saman kom­inn að mót­mæla. Sumir báru fána og aðrir skilti þar sem Einar var meðal ann­ars beð­inn um að hlusta á kenn­ara og honum bent á að segja af sér.

Orðin sem vöktu þessa úlfúð meðal kenn­ara voru látin falla á fjár­mála­ráð­stefnu Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga í síð­ustu viku. Þar sagði Einar að öll töl­fræði benti til þess að …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Það verður auðvitað að gera þær kröfur til borgarstjórans að beri virðingu fyrir starfsfólki borgarinnar.

    Þessi aulafyndni Einars dæmir hann sjálfan og það sveitarstjórnar fólk sem þarna var að skemmta sér á kostnað almennings í landinu og njóta veitinga í föstu formi og fljótandi
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár