Sundlaugum lokað vegna bilunar í Nesjavallavirkjun

Vegna bilunar í Nesja­valla­virkjun er skert fram­leiðsla á heitu vatni og rafmagni á höfuð­borgar­svæðinu. Verið er að loka öllum sund­laugum í Reykjavík vegna þessa og fólk er hvatt til að spara heita vatnið. Viðgerðir standa yfir.

„Við vorum að fá upplýsingar um þetta og erum að fara að tilkynna um lokun,“ sagði Brá Guðmunds­dóttir, aðstoðar­forstöðu­maður í Laugar­dalslaug, í samtali við Heimildina upp úr klukkan þrjú. Hún tók fram að vatnið kólnaði ekki strax þannig að það lægi ekki á að fólk færi strax upp úr lauginni. Hins vegar væri ljóst samkvæmt þeim upplýsingum sem hún hafi fengið að það verði skortur á heitu vatni og því  hafi verið gripið til þess ráðs að loka sund­laugum á höfuð­borgar­svæðinu. „Hversu lengi vitum við ekki,“ segir hún.

Samkvæmt tilkynningu frá Orku nátt­úrunnar varð bilun í Nesja­valla­virkjun til þess að fram­leiðsla á heitu vatni var skert. Hluti þeirra véla sem sjá um fram­leiðsluna eru komnar aftur af stað en virkjunin er ekki á fullum afköstum. Vegna þessa biðja Veitur sem dreifa vatninu til íbúa á höfuð­borgar­svæðinu, fólk um að fara sparlega með heita vatnið á meðan á viðgerð stendur.

„Það sem við eigum við þegar við hvetjum fólk til þess að fara sparlega með vatnið er ekki að fólk sleppi því að fara í sturtu. Fyrst og fremst skiptir máli að fólk reyni að halda varmanum inni í húsum sínum og sé ekki með glugga opna að óþörfu eða láti renna í pottinn á meðan á viðgerðinni stendur,“ segir Sólrún Kristjáns­dóttir framkvæmda­stýra Veitna.

Þá hafa Veitur einnig haft samband við sína stærstu viðskipta­vini sem eru á skerðanlegum töxtum og biðlað til þeirra að lágmarka heita­vatnsnotkun eins og unnt er. Þetta eru þeir viðskipta­vinir sem kaupa heitt vatn á afslætti gegn því að þegar ástand líkt og hér um ræðir skapast, hafi Veitur heimild til skerðinga. 

„Við erum að reka tvær hita­veitur á höfuð­borgar­svæðinu og það er hlutverk okkar að gera allt sem við getum til þess að halda þeim í jafnvægi. Að biðla til fólks um að minnka notkun og halda hitanum inni er liður í því að tryggja þetta jafnvægi.

Uppfært klukkan 15:33.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Það væri kannski ekki vitlaust að hafa fleiri hitavatnstanka. Einn í Öskjuhlíð hýsir núna gervijökul og fyrir nokkru var frétt um að loka einum í viðbót og setja einhvern annan óþarfa í hann.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár