Samdráttur í samfélagslosun en samt erum við í mínus

Hvernig okkur tekst til við að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda er ekki aðeins umhverf­is­mál heldur stór fjár­hags­leg spurn­ing, segir sér­fræð­ingur hjá Umhverf­is­stofnun. Við eigum langt í land með að ná settu marki og spurn­ingin er: Ætlum við að eyða pen­ingum í að draga úr losun eða ætlum við að borga fyrir umfram losun? Sá verð­miði gæti orðið svim­andi hár.

Samdráttur í samfélagslosun en samt erum við í mínus
Á rauðu ljósi? Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá vega­sam­göngum dróst saman um hálft pró­sent í fyrra. Það er ekki alslæmt, þótt lítið sé, því bílum hefur fjölgað. Mynd: Shutterstock

Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á Íslandi dróst saman um þrjú pró­sent í tveimur skuld­bind­inga­flokkum af þremur milli áranna 2022 og 2023 og í öðrum þeirra nemur sam­drátt­ur­inn fjórtán pró­sentum frá við­mið­un­ar­ár­inu 2005. „Það eru góðar fréttir,“ segir Birgir Urbancic Ásgeirs­son, sér­fræð­ingur hjá Umhverf­is­stofnun. 

En færa má rök fyrir því að þær séu þó ekk­ert til að bein­línis hoppa húrra yfir enda víðs fjarri settu marki. Mark­miðið er að árið 2030 verði los­unin 41 pró­senti minni en hún var árið 2005. Og árið 2030 nálg­ast óðfluga. Birgir neitar hins vegar að slá ein­hvern svart­sýn­is­tón.

Spurður hvenær komi að því að sér­fræð­ing­arnir fari að slá í borðið og krefj­ast meiri árang­urs segir hann á léttum nótum að það geri þeir þegar árlega. En í fullri alvöru segir hann að það séu það stjórn­mála­menn­irnir sem hafi völdin. „Í sumar kom upp­færð aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í lofts­lags­málum með mörgum góðum aðgerðum en sumar eru enn aðeins á hug­mynda­stigi. Ef að menn koma þessum aðgerðum í far­veg, að þetta séu ekki aðeins hug­myndir á blaði heldur verði að raun­veru­leika, þá komust við lang­leið­ina og kannski alla leið. En það fer eftir því hvernig stjórn­völd, atvinnu­lífið og við sem ein­stak­lingar stöndum okkur. Þetta er sam­starfs­verk­efni okkar allra.“

Flokk­arnir þrírSkuld­bind­ingar í lofts­lags­málum eru flokk­aðar í þrjá flokka.

 Það tekur tíma að vinna úr gögn­unum sem Umhverf­is­stofnun notar til að byggja útreikn­inga og grein­ingar sínar um losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á. Það skýrir af hverju losun árs­ins 2023 er nú kynnt, þegar langt er liðið á árið 2024. Og þetta eru bráða­birgða­tölur. Hins vegar gefa þær að sögn Birgis góðar vís­bend­ingar um stöð­una og hafa síð­ustu ár verið í góðum takti við loka­töl­urnar. 

Ísland skuld­batt sig með Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu til að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda rétt eins og tugir ann­arra ríkja. Los­un­ar­þættir eru flokk­aðir í þrjá skuld­bind­inga­flokka og sá fyrsti, sam­fé­lags­losun, hlýtur jafnan mesta athygli. Sá var áður kall­aður losun á beinni ábyrgð Íslands en lík­lega hefur það þótt vill­andi. Því þótt álver og flug til­heyri öðrum flokki, ETS við­skipta­kerf­inu, fylgir losun frá þeim geirum vissu­lega mikil ábyrgð. Þriðji og síð­asti flokk­ur­inn er svo land­notkun (LULUCEF) og innan hans er losun frá til dæmis rækt­uðu landi og skóg­rækt og þá bind­ing hennar. 

Meint bind­ing myndu kannski ein­hverjir segja því síð­ustu miss­eri hafa komið fram ólíkar skoð­anir frá fjölda sér­fræð­inga, hér heima og erlendis, á gildi skóg­ræktar til að binda kolefni. Stór sár í fjalls­hlíð við Húsavík vegna und­ir­bún­ings jarð­vegs fyrir skóg­rækt í þágu lofts­lags vöktu enda mikla athygli - og við­brögð. Fleiri slík stór­tæk skóg­rækt­ar­verk­efni eru á teikni­borð­inu og deilan því langt í frá útkláð. Ekki síst í ljósi þess að sumir vís­inda­menn vilja meina að landið sem fyrir var hafi bundið mikið og bylt­ing þess losi mikið. Aðrir hafa verið á önd­verðum meiði og telja skóg­rækt stór­kost­legt tæki til bind­ingar. 

Sam­fé­lags­losun nær yfir vega­sam­göngur, smærri iðnað, úrgang, land­búnað, virkj­anir, fiski­skipa­flot­ann og svo mætti áfram telja. Og hún dróst saman um 3 pró­sent milli 2022 og 2023 og hefur dreg­ist saman um 14 pró­sent frá árinu 2005.  „Við stefnum áfram á að vera á nið­ur­leið,“ segir Birgir af bjart­sýni. 

Sami sam­dráttur varð í losun frá geirum er til­heyra ETS við­skipta­kerf­inu. Sam­dráttur var í losun frá stór­iðju en aukn­ing í flug­inu. Losun frá land­notkun er slá­andi mikil, þrefalt meiri en sam­fé­lags­losun, en hún breyt­ist hins vegar lítið frá ári til árs, að minnsta kosti við þá aðferða­fræði sem nú er notuð, hér sem ann­ars staðar. Íslensku skóg­arnir eru stærsta breytan eins og staðan er nú.

Stærstu póst­arnirÞegar horft er til stakra los­un­ar­þátta er álf­ram­leiðsla á Íslandi fyr­ir­ferð­ar­mest.

Oft er vísað til þess hversu stór póstur í los­un­ar­bók­hald­inu vega­sam­göngur eru og það er rétt, hún telur nú um 20 pró­sentum allrar los­unar utan land­notk­unar. Orku­skiptin eru komin þar nokkuð á veg, margir aka nú orðið á raf­magns­bílum. Sam­drátt­ur­inn milli ára frá vega­sam­göngum nemur þó aðeins hálfu pró­senti. En það segir kannski ekki alla sög­una að sögn Birgis. „Við vitum að það eru fleiri bílar á göt­unum en það er þá tölu­verður sam­dráttur í losun á ekinn kíló­metra.“ Hann er því fegn­astur að ekki hafi orðið aukn­ing í los­un­inni.

Úrgangs­málin eru líka að kom­ast í betra horf. Það skýrist af meiri flokkun og söfnun líf­ræns úrgangs. Þær aðgerðir munu ekki skila sér að fullu fyrr en eftir ein­hver ár því gróð­ur­húsa­teg­undin metan, sem losnar við urðun og í kjöl­farið rotnun á líf­rænum úrgangi, er enn að losna úr þeim úrgangi sem urð­aður var fyrir mörgum árum. En losun frá úrgangi ætti smám saman að minnka héðan í frá.  

Í mínus en vonin lifir

En þrátt fyrir sam­drátt í sam­fé­lags­losun er það þó þannig að við erum í mínus í lofts­lags­bók­hald­inu. Það skýrist af því að á hverju ári er dregið úr los­unar­út­hlut­unum. Ýmis sveigj­an­leika­á­kvæði eru til staðar sem eru nýtt og væri hægt að nýta, til­færslur milli flokka að ógleymdum kaupum á heim­ildum til los­unar. Til að breyta mínus í plús.

Birgir er beð­inn að útskýra þetta betur. „Sumar segja: Eigum við ekki að stand­ast okkar úthlut­anir, óháð ein­hverjum sveigj­an­leika­á­kvæðum. Aðrir segja: Þau eru partur af dæm­inu og ef við stönd­umst ekki úthlut­anir þá kaupum við heim­ildir af öðrum löndum og er það ekki allt í lagi.“

Sér­fræð­ingurBirgir urbancic Ásgeirs­son.

Einhvern veg­inn þurfum við að brúa þetta bil, heldur hann áfram. Það getum við gert með aðgerðum inn­an­lands, aðgerðum sem skila sér í mun minni losun en nú er að eiga sér stað, sveigj­an­leika­á­kvæðum úr hinum kerf­unum eða með því að kaupa heim­ildir frá öðrum ríkjum. Það eigi að vera síð­asta úrræðið. „En þá er þetta kannski frekar orðið fjár­hags­leg spurn­ing. Hvert er best að setja hvern millj­arð.“ 

Kannski, segir hann, er spurn­ingin sið­ferð­is­leg líka. „Sumir segja að við eigum ekki að kaupa okkur út úr vand­anum erlendis frá.“ Sjálfur vill Birgir ekki leggja mat á hvað sé rétt og rangt í þessu.

Það sem hann getur hins vegar sagt er þetta:     

„Það er verk að vinna ef við ætlum að stand­ast úthlut­anir, Nú kom upp­færð aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í lofts­lags­málum út í sumar. Og þar kemur fram ákveð­inn sam­dráttur af þeim aðgerðum sem er unnt að meta. Ef að stjórn­völd halda vel á spöð­unum og gera allt sem stendur í aðgerð­ar­á­ætl­un­inni, líka þær aðgerðir sem eru á hug­mynda­stigi, þá gæti þetta alveg náðst. En það veltur á því hversu dug­leg stjórn­völd eru, ef svo má að orði kom­ast, og fjár­magni.“

Losunin er gerð upp í fimm ára tíma­bilum og ákveð­inn sveigj­an­leiki er líka til staðar til að flytja á milli ára. Við erum því ekki enn á köldum klaka.  

Er þessi sam­dráttur í takti við það sem þarf að ger­ast til að við náum okkar mark­miðum? Hefði þetta þurft að vera miklu meira?

„Það eru vissu­lega góðar fréttir að það sé sam­dráttur í sam­fé­laglos­un­inni,“ end­ur­tekur Birgir. „Í fljótu bragði er ekki hægt að skýra hann með utan­að­kom­andi ástæðum líkt og heims­far­aldri eða hruni. Almennt hefur verið aukin losun sam­hliða auknum umsvifum í sam­fé­lag­inu. Sam­fé­lagið okkar fer líka vax­andi, það er fleira fólk, það eru fleiri bílar á göt­unum og keyrt meira. Það má segja að jafn­vel þótt að við værum með stöð­ug­leika í losun þá væri sam­dráttur á hvern íbúa eða hvern bíl.“

„Ef að menn koma þeim aðgerðum sem eru að finna í aðgerð­ar­á­ætlun stjórn­valda í lofts­lags­málum í far­veg, að þetta séu ekki aðeins hug­myndir á blaði heldur verði að raun­veru­leika, þá komumst við lang­leið­ina og kannski alla leið“
Birgir Urbancic Ásgeirs­son,
sér­fræð­ingur hjá Umhverf­is­stofnun.

En skuld­bind­ing­arnar okkar miða ekki við að losun minnki á hvern íbúa eða hvern bíl. Heldur þurfum við á raun­veru­legum sam­drætti að halda. „Við þurfum að gera betur heldur en að standa í stað. Við þurfum að vera á nið­ur­leið. Og núna erum við komin í 14 pró­sent sam­drátt miðað við 2005 en við þurfum að gera miklu betur. Árið 2030 þurfum við að kom­ast niður í rúm 40 pró­sent. Og það er bara korter í það. Það er því heil­mikið sem þarf að ger­ast á stuttum tíma.“ 

Hvað hefðum við þurft að draga saman í losun í fyrra svo að þið hjá Umhverf­is­stofnun mynduð anda léttar?

„Það að það sé sam­dráttur veldur því að maður andar aðeins léttar,“ svarar Birgir. „Að það sé ekki aukn­ing. Vonandi erum við að sjá ein­hvern við­snún­ing. Vonandi erum við á réttri leið, hvort sem það er í orku­skiptum eða hvernig við högum okkur í sam­fé­lag­inu. Það er í raun of snemmt að segja hvað muni ger­ast en það þarf að halda þónokkuð vel á spöð­unum ef að þetta á að nást en það er hægt.“

Hvað þarf að ger­ast næstu ár til að við náum mark­mið­unum fyrir 2030?

„Stóru þætt­irnir innan sam­fé­lags­los­unar eru vega­sam­göngur, fiski­skipin, land­bún­að­ur­inn og úrgangs­málin,“ minnir Birgir á. „Ef að menn koma þeim aðgerðum sem eru að finna í aðgerð­ar­á­ætlun stjórn­valda í lofts­lags­málum í far­veg, að þetta séu ekki aðeins hug­myndir á blaði heldur verði að raun­veru­leika, þá komumst við lang­leið­ina og kannski alla leið. En það fer eftir því hvernig stjórn­völd, atvinnu­lífið og við sem ein­stak­lingar stöndum okkur. Þetta er sam­starfs­verk­efni okkar allra.“

Hvenær farið þið að slá í borðið og segja fólki að girða sig í brók?

„Það er á hverju ári,“ svarar Birgir hlæj­andi en dregur svo í land. „Það er erfitt að segja. Við höldum utan um þessar tölur og tryggjum að þær séu eins réttar og hægt er. Svo er það stjórn­mála­mann­anna að ákveða í hvaða aðgerðir er farið. Við getum vissu­lega aðstoðað við að meta þær.“ 

En þetta snýst um tvennt að hans per­sónu­lega mati. Annars vegar hvernig land við viljum vera. „Auðvitað viljum við stand­ast okkar skuld­bind­ingar. Við erum með úthlut­anir og við viljum stefna þangað. Viljum vera fyr­ir­mynd. Ef við stönd­umst ekki þessar skuld­bind­ingar þá munum við þurfa að greiða. Við munum þurfa að kaupa heim­ildir ann­ars staðar frá og það er kostn­aður sem fellur á íslenska ríkið og þar af leið­andi á okkur almenn­ing. Ef maður horfir á það kalt, þá er þetta ákveðið reikn­ings­dæmi. Ég myndi frekar vilja búa í sam­fé­lagi þar sem fjár­munir eru nýttir til að draga úr mengun.“

Það megi svo ekki gleyma að það sé oft sam­legð með því að menga minna og ann­ars konar þáttum sem hafa áhrif á líðan fólks og sam­fé­lagið allt. „Að menga minna skapar betri loft­gæði,“ nefnir Birgir sem dæmi. „Ég held að ég vilji frekar sam­fé­lag þar sem við stöndum okkur heldur en að við höldum áfram að losa jafn­mikið og greiðum svo fyrir það.”

Myndi þetta kosta mikið, að lenda í mínus þegar tíma­bilið er gert upp?

„Í dag vitum við ekki hvað það myndi kosta því það fer eftir því hvernig aðrar þjóðir eru að standa sig. Ef önnur ríki standa sig vel hafa þau heim­ildir til sölu. Það er enn alveg óljóst hversu mikið fram­boðið verður. Þetta ræðst af mark­aðs­að­stæðum. Ef það eru fáir sem hafa eitt­hvað til sölu verður það dýrt.“

Nú erum við á Par­ís­ar­tíma­bil­inu. Þegar Kýótó­tíma­bil­inu lauk þurftum við að kaupa heim­ildir. Voru þær keyptar frá Slóvakíu fyrir 350 millj­ónir króna. En verð­mið­inn gæti orðið miklu hærri við lok Par­ís­ar­tíma­bils­ins árið 2030.

En eru ein­hver merki um að það hafi orðið mik­ils­háttar sam­dráttur í ár?

„Mikið af gögn­unum liggur ekki fyrir ennþá,“ segir Birgir. „Því miður erum við ekki komin með neina sýn á árið 2024. Nema að maður myndi halda að sam­dráttur yrði áfram í úrgangs­mál­unum þar sem sveit­ar­fé­lögin hafa verið að inn­leiða aukna flokkun. En hvernig þetta endar með vega­sam­göngur, fiski­skipin eða land­bún­að­inn er því miður ómögu­legt að segja.“ 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PH
    Pétur Hilmarsson skrifaði
    Það vantar stærsta þáttinn flugið inn í kökuritið. Á meðan við erum massa túrista land þá verður þetta erfitt að ná miklum árangri í að minnka losun því fyrir utan kolefnissporið af fluginu þá bætist við kolefnisspor af nýbyggingum fyrir ferðamennina og allt aðflutta vinnuaflið.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Loftslagsvá

Umhverfið

Hita­bylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur

„Það er mjög lík­legt að árið í ár verði eitt heitasta árið á öld­inni og næsta ár líka,“ segir Halldór Björns­son, haf- og veð­ur­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands. Sól­þyrstir Íslend­ingar þurfa að huga að því að skipu­leggja sum­ar­frí sín út frá hita­bylgjum. Yfir­stand­andi hita­bylgju í Evrópu má tengja við AMOC-velti­hringrás­ina segir vís­inda­mað­ur­inn Stefan Rahms­torf.

Mest lesið

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár