Ólga og uppsögn eftir aðalfund Pírata

Píratar vinna að sáttar­tillögu sem sögð er fela í sér umdeildar breytingar á framkvæmda­stjórn flokksins. Ágrein­ingur blossaði upp á milli fráfar­andi og nýkjörinnar stjórnar í kjölfar kosningar á nýrri framkvæmda­stjórn. Atla Þór Fanndal, samskipta­stjóra Pírata var sagt upp skömmu eftir aðal­fundinn. „Ég var látinn fara bara vegna bræði þing­flokksins yfir þessari niður­stöðu,“ segir Atli Þór. Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­formaður Pírata, hafnar lýsingu Atla Þórs á atburða­rásinni.

Umdeild niðurstaða
Umdeild nið­ur­staða Kosið var um nýja fram­kvæmda­stjórn á aðal­fundi Pírata fyrr í þessum mán­uði. Sitjandi for­maður og rit­ari fram­kvæmda­stjórnar lutu í lægra haldi og stjórnin var að mestu end­ur­nýjuð. Mynd: Sigtryggur Ari

Miklar deilur blossuðu upp innan raða Pírata eftir aðalfund sem fór fram í Hörpu 7. september. Á fundinum var kosið um nýja framkvæmda­stjórn og voru úrslit þau að sitjandi stjórn var allri skipt út.

Niður­stöðurnar komu mörgum flokks­mönnum á óvart og þá ekki síst fyrrum formanni framkvæmda­stjórnarinnar Atla Stefáni Yngvasyni sem lenti í fimmta sæti í kosningunum og náði kjöri sem varamaður stjórnarinnar. Margir í flokknum bjuggust við því að hann myndi ná kjöri og gæti þá starfað áfram í stjórn flokksins.

Þótti sumum innan flokksins að hópurinn sem sigraði kosningarnar hefði ekki upplýst nægilega vel um að þau hefðu stofnað til óformlegs bandalags í aðdrag­anda kosninganna. Þá voru líka uppi ásakanir um kosninga­smölun og að hópurinn hafi notið stuðnings áhrifa­manna innan flokksins sem sömuleiðis hafi ekki verið upplýst nægilega vel um.   

Í kjölfarið hefur samskipta­stjóra þing­flokks Pírata, Atla Þór Fanndal, verið sagt upp störfum. Það …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár