Segja 37 lóupör missa kjörlendi sitt

Norð­ur­þing afl­aði lög­fræði­á­lits vegna kæru sam­tak­anna Nátt­úru­griða.

Segja 37 lóupör missa kjörlendi sitt
Skorn­ingar Mörgum brá í brún að sjá mólendi við Húsavík vera snúið á hvolf fyrir skóg­rækt. Mynd: Áskell Jónsson

„Í þessum tveimur verk­efnum verða áhrifin sam­an­lagt þau, til lengri tíma, að 284 hekt­arar af núver­andi mólendi muni klæð­ast skógi og þar með muni um það bil 37 pör af heið­lóum missa varp­kjör­lendi (0,011% íslenska stofns­ins) og eitt­hvað lægra hlut­fall af spóa­stofn­inum,“ segir meðal ann­ars í lög­fræði­á­liti sem Norð­ur­þing afl­aði vegna kæru sam­tak­anna Nátt­úru­griða á útgáfu fram­kvæmda­leyfa sveit­ar­fé­lags­ins til umfangs­mik­illar skóg­ræktar í landi Þverár og Saltvíkur.

Málið á upp­runa sinn í mik­illi gagn­rýni sem spratt fram er áber­andi rásir voru herf­aðar í mólendi utan við Húsavík til að und­ir­búa kolefn­is­bind­ing­ar­verk­efni einka­fyr­ir­tæk­is­ins Ygg­drags­ils Carbon. Fleiri slík eru á stefnu­skránni í sveit­ar­fé­lag­inu.

Var meðal ann­ars gagn­rýnt að með svo miklum breyt­ingum á landi myndi fugla­líf verða fyrir áhrifum. Lög­fræð­ingur Norð­ur­þings segir í grein­ar­gerð sinni að skóg­rækt­ar­verk­efnin muni hafa óveru­leg áhrif á heild­ar­stofna þeirra algengu fugla­teg­unda sem nýta svæðin í dag en að skógur skapi svo kjör­lendi fyrir aðrar fugla­teg­undir. Er nið­ur­staða álits­ins sú að sveit­ar­fé­lagið hafi á lög­mætan og mál­efna­legan hátt lagt mat á áhrif fram­kvæmd­anna á nátt­úru og dýra­líf.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Guðmundsdóttir Motzfeldt skrifaði
    Svona gera menn alls ekki - þetta er nauðgun á náttúrunni🥲
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár