Taylor Swift Söng­konan og laga­höf­und­ur­inn Taylor Swift er 35 ára og með fræg­ustu popp­stjörnum nútím­ans. Hún styður Kamölu Harris í emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna. Mynd: AFP

Taylor Swift fékk nóg af djúpfölsun Trump

Taylor Swift styður Kamölu Harris í fram­boði til for­seta Banda­ríkj­anna. Hún fann sig knúna til að birta stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu eftir að Donald Trump birti djúp­fals­aðar myndir, búnar til af gervi­greind, sem sýndu aðdá­endur hennar styðja Trump. Sjálfur seg­ist Trump aldrei hafa verið aðdá­andi Swift.

Falsaðar myndir, gerðar af gervi­greind, sem sýna aðdá­endur Taylor Swift, eina fræg­ustu popp­stjörnu sam­tím­ans, styðja Donald Trump, urðu til þess að söng­konan ákvað að stíga fram og styðja Kamölu Harris, fram­bjóð­anda Demókra­ta­flokks­ins, opin­ber­lega í fram­boði til for­seta Banda­ríkj­anna. 

Í lok ágúst birti Trump myndir á sam­fé­lags­miðl­inum Truth Social, sem hann stofn­aði sjálfur, af aðdá­endum Taylor Swift í bolum með áletr­un­inni: „Swifties for Trump“, en Swifties eru það sem aðdá­endur söng­kon­unnar kalla sig. „Ég sam­þykki!“ skrif­aði Trump og birti nokkrar myndir sem sýna Swifties sem styðja Trump. 

Djúp­fölsunDonald Trump birti mynd­irnar, sem gerðar eru af gervi­greind, á eigin sam­fé­lags­miðli, Truth Social. Sjálfur seg­ist hann þó aldrei hafa verið hrifin af Swift.

Það virð­ist hafa verið kornið sem fyllti mæl­inn hjá Swift. Rétt eftir að kapp­ræðum for­seta­fram­bjóð­end­anna í Fíla­delfíu lauk á þriðju­dags­kvöld birti hún opin­bera stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við fram­boð Harris. Stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingin kemur ekki á óvart, Swift studdi Joe Biden fyrir kosn­ing­arnar 2020. 

En Trump tókst það sem engum öðrum tókst að gera: Að pirra Swift nógu mikið til að segja eitt­hvað um for­seta­kosn­ing­arnar, og það á degi sem hafði reynst honum krefj­andi. Harris og Trump hitt­ust í fyrsta sinn í kapp­ræð­unum, ótrú­legt en satt. Harris tókst að slá Trump út af lag­inu í kapp­ræð­unum og stjórn­mála­skýrendur eru flestir sam­mála um að Harris hafi ögrað Trump, lagt fyrir hann gildrur sem hann gekk nán­ast und­an­tekn­ing­ar­laust í.   

Sannleikurinn svarið við upplýsingaóreiðu

Swift birti færslu á Instagram rétt eftir að kapp­ræð­unum lauk. Birting mynd­anna á Truth Social gerðu Swift ljóst að hún þyrfti að gera eitt­hvað. Mynd­irnar afhjúp­uðu ótta hennar við gervi­greind­ina svart á hvítu og gerðu henni ljóst að hún verður að vera opin­ská um hvernig hún ætlar að nýta kosn­inga­rétt­inn. „Auð­veldasta leiðin til að sigr­ast á upp­lýs­inga­óreiðu er sann­leik­ur­inn,“ skrifar Swift í stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu sinni við fram­boð Harris á Instagram. 

Barnlausa kattakonan

„Ég kýs Kamölu Harris af því að hún berst fyrir rétt­indum og mál­stöðum sem ég trúi að þurfa bar­áttu­mann til að verja,“ segir Swift í yfir­lýs­ing­unni. Und­ir­rit­unin vakti tölu­verða athygli: Taylor Swift, barn­laus kisu­kona, en köttur prýðir mynd­ina ásamt Swift sem hún birti með yfir­lýs­ing­unni. Swift var ekki aðeins að skjóta á Trump heldur nýtti tæki­færið og beindi sjónum sínum einnig að JD Vance, vara­for­seta­efni Trump, sem hefur kallað þing­menn Demókra­ta­flokks­ins „barn­lausar katta­konur sem líður ömur­lega með ákvarð­anir sínar í líf­inu og vilja að löndum þeirra líði líka ömur­lega“. 

Trump var ekki lengi að bregð­ast við stuðn­ings­yf­ir­lýs­ing­unni. „Ég hef aldrei verið aðdá­andi Taylor Swift. Hún er mjög frjáls­lynd mann­eskja. Það er eins og hún styðji alltaf demókrata, og hún mun lík­lega gjalda fyrir það í við­skipta­heim­inum,“ sagði Trump. 

Swifties virð­ast ætla að svara kall­inu, en yfir 337 þús­und smelltu á tengil sem Swift birti í stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu sinni sem leiddi á síð­una vote.gov þar sem kjós­endur geta skráð sig til að greiða atkvæði í for­seta­kosn­ing­unum 5. nóv­em­ber. 

Kamala-tíma­bilið?Aug­lýs­ing sem birt­ist skömmu eftir að Taylor Swift birti stuðn­ings­yf­lýs­ingu sína. Tón­leika­ferða­lag Swift nefn­ist The Era's Tour og nú er spurn­ing hvort komið sé að Kamala Era?

Stuðn­ingur fræga fólks­ins við fram­bjóð­endur (e. celebrity end­or­sem­ent) getur verið tví­eggja sverð. Slíkur stuðn­ingur getur haft áhrif á óákveðna kjós­endur, ekki síst yngri kjós­endur sem eru virkir á sam­fé­lags­miðlum. Vett­vangur Swift er gríð­ar­stór, á því leikur eng­inn vafi, hún er til að mynda með 284 milljón fylgj­endur á Instagram og bætt­ust nokkur hund­ruð þús­und við eftir að hún birti stuðn­ings­yf­ir­lýs­ing­una.  

Frægð­ar­sól Swift heldur áfram að rísa eftir magn­aða end­ur­komu. Ár­ið 2016 var Swift nefni­lega slauf­að fyr­ir að vera drama­tískt fórn­ar­lamb. Síð­an þá hef­ur hún gef­ið út sjö plöt­ur og tón­leika­ferða­lag­ið henn­ar, The Era's Tour, verð­ur að öll­um lík­ind­um tekju­hæsta tón­leika­ferða­lag allra tíma. Í vik­unni bætt hún enn við afreka­skrána þegar hún vann til sjö verð­launa á Video Music Awards (VMA), MTV-verð­launa­há­tíð­inni. Enginn sól­ótón­list­ar­maður hefur unnið til jafn margra verð­launa á hátíð­inni og Swift, sem sló met Beyoncé á mið­viku­dags­kvöldið. 

Nú kemur í ljós hvort Swift muni láta stuðn­ings­yf­ir­lýs­ing­una duga eða hvort hún muni taka virkan þátt í kosn­inga­bar­áttu fram­bjóð­anda Demókra­ta­flokks­ins. Harris er klár í að mæta Trump að nýju en hann hefur nú gefið það út að hann hefur engan áhuga á að mæta Harris aftur fyrir kjör­dag. Trump og líkti henni við hnefa­leika­kappa sem tapar bar­daga og heimti um leið að mæt­ast aftur. „Skoð­ana­kann­anir sýndu greini­lega að ég vann kapp­ræð­urnar gegn félaga Kamölu Harris,“ sagði Trump á eigin sam­fé­lags­miðli. Harris segir aftur á móti að kjós­endur eiga það skilið að sjá þau mæt­ist aftur fyrir kjör­dag. 

For­seta­kosn­ingar í Banda­ríkj­unum fara fram 5. nóv­em­ber, eftir 51 dag.

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar í BNA 2024

Sigur Trump í höfn
FréttirForsetakosningar í BNA 2024

Sigur Trump í höfn

Donald J. Trump er spáð sigri í for­seta­kosn­ing­unum og verður því að öllum lík­indum næsti for­seti Banda­ríkj­anna. Eftir að hafa tryggt sér kjör­menn frá Penn­syl­vaníu er Trump tal­inn eiga sig­ur­inn vísan. Frétta­miðlar ytra hafa enn sem komið er ekki stað­fest úrst­litin fyrir utan banda­rísku frétta­veit­una Fox sem lýsti Trump sig­ur­veg­ara kosn­ing­anna fyrir skömmu. Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra hefur óskað Trump til ham­ingju með sig­ur­inn.
Íslendingar í Bandaríkjunum fylgjast spenntir með kosningunum
FréttirForsetakosningar í BNA 2024

Íslend­ingar í Banda­ríkj­unum fylgj­ast spenntir með kosn­ing­unum

Banda­ríkja­menn kjósa sér for­seta í dag. Heim­ildin náði tali af tveimur Íslend­ingum sem eru búsettir í Banda­ríkj­unum. Báðir við­mæl­endur töldu lík­legt að Harris færi með sigur en mikil óvissa ríkir um úrslit kosn­ing­anna og sig­ur­mögu­leika fram­bjóð­end­anna. Skoð­ana­kann­anir benda flestar til þess að afar mjótt sé á mun­inum milli Harris og Trump.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár