Eldgos hefst á ný við Grindavík

Öflug skjálfta­hrina benti til þess að tíð­inda væri að vænta. Það leið ekki nema rétt rúmur hálf­tími þar til eldur braust úr jörðu.

Eldgos hefst á ný við Grindavík
Eldgos Mynd frá síð­asta gosi. Mynd: Almannavarnir

Eldgos er hafið á ný á Sund­hnúks­gíga­röð­inni, á svip­uðum slóðum og áður, austan við Sýl­ing­ar­fell.

Eldgosið sést vel frá Sel­tjarn­ar­nesi og víðar. Hægt er að fylgj­ast með lif­andi útsend­ingu hér: 

Sund­hnúkar - Live from Iceland - Webcams around Iceland

Fyrr í kvöld var neyð­ar­stigi lýst vegna skjálfta­hr­inu sem hafði staðið í um fjör­tíu mín­útur þegar gosið eldur braust úr jörðu. Öflugir skjálftar, breyt­ingar í aflögun og þrýst­ings­breyt­ingar á bor­holum HS Orku bentu til þess að tíð­inda væri að vænta.

Verið var að vinna að varn­ar­görðum þegar rým­ing hófst. Búið er að rýma bæði vinnu­svæðið, verið er að rýma Grinda­vík og Bláa lónið og búið er að loka svæð­inu fyrir for­vitnum veg­far­endum. Þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar er á leið í loftið til þess að kanna aðstæður.  

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár