Skattadrottningin þakklát skattakónginum fyrir söluna

Skatta­kóng­ur­inn Sigurjón Ósk­ars­son ákvað að selja ríf­lega fimm­tugt fjöl­skyldu­fyr­ir­tækið þegar kvót­inn dugði ekki lengur til þess að hafa fólk í vinnu allt árið. Dóttir hans, skatta­drottn­ingin Þóra Hrönn Sig­ur­jóns­dóttir, er þakk­lát föður sínum fyrir að hafa ákveðið að selja, því það gefur henni færi á að helga sig alveg rekstri heilsu­gæslu í Gambíu. Samtals fékk Ós-fjöl­skyldan 13,5 millj­arða í fjár­magnstekjur á síð­asta ári og greiddu þau um þrjá millj­arða í skatt af þeim tekjum.

Skattadrottningin þakklát skattakónginum fyrir söluna
22. maí 1986 Sigurjón Ósk­ars­son ásamt börnum sínum að vinna að afl­anum. Frá vinstri: Gylfi Sig­ur­jóns­son, Þóra Hrönn Sig­ur­jóns­dóttir, Sigurjón Ósk­ars­son og Viðar Sig­ur­jóns­son. Mynd: Sigurgeir Jónasson

Getur maður ekki bara verið hreyk­inn af því?“ spyr Sigurjón Ósk­ars­son skatta­kóngur – og marg­faldur afla­kóngur – blaða­mann þegar honum er tjáð að hann hafi fengið þessa nýju umdeildu nafn­bót. Millj­ón­irnar 1.222 sem skatt­kerfið tók við af honum vegna söl­unnar á útgerð­ar­fé­lag­inu Ósi virð­ast ekki trufla hann. „Ég vor­kenni mér bara ekk­ert að borga þetta.“

For­eldrar Sig­ur­jóns,Óskar Matth­í­as­son og Þóra Sig­ur­jóns­dóttir, stofn­uðu fyr­ir­tækið fyrir rúm­lega hálfri öld ásamt Sig­ur­jóni, eig­in­konu hans, Sig­ur­laugu Alfreðs­dóttur og bróður Sig­ur­jóns, Matth­í­asi Ósk­ars­syni. 

Sigurjón fór fyrst á sjó 14 ára gam­all og var á sjó þar til hann varð fimm­tugur. Greyptar í minnið frá þeim tíma eru minn­ingar af lífs­björg. 

„Við björg­uðum fjórum skips­höfnum í sjáv­ar­háska, í eitt skiptið var það bróðir minn sem við björg­uðum við erf­iðar aðstæður. Við björg­uðum ekki bara honum heldur líka skips­höfn­inni hans,“ segir Sigurjón og vísar til þess þegar áhöfnin á Þórunni Sveins­dóttur, skip­inu sem Sigurjón stýrði, bjarg­aði áhöfn …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2024

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár